Morgunblaðið - 13.06.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1992
29
Sandspyrna
á sunnudag
ÍSLANDSMÓTINU í sandspyrnu
verður fram haldið á sunnudag, 14.
júní. Þetta er önnur keppni sumars-
ins, en keppt verður á nýrri braut í
Jósefsdal, en þar er góð aðstaða
m.a. fyrir áhorfendur sem keppend-
ur. Keppnin hefst klukkan 14 og er
áætlað að henni ljúki um kl. 16.
Gítartónleik-
ar Arnalds
Amaldssonar
ARNALDUR Arnaldsson gít-
arleikari heldur tónleika í
Askirkju á vegum Listahátíð-
ar sunnudaginn 14. júní og
hefjast þeir klukkan 17.
Amaldur sigraði nú nýverið
í keppni gítarleikara á Ítalíu,
sem kennd er við tónskáldið
Fernando Sor. Þetta er í fyrsta
sinni, sem íslenskur gítarleikari
sigrar í skíkri keppni, segir í
frétt frá Listahátíð.
Morgunblaðið/Sverrir
Leirlistakonurnar Margrét og Sigrún Gunnarsdætur setja upp verk
sín fyrir myndlistarsýningu í Garðalundi í Garðabæ, sem opnar í
dag. Fremst sést málverk eftir Árna Elfar.
Garðabær:
Fímmtán listamenn
sýna í Garðalundi
Menningarmálanefnd Garða-
bæjar stendur fyrir myndlistar-
sýningu í Garðalundi í Garðaskóla
í tengslum við norrænt vinabæja-
mót, sem þar verður haldið í síð-
Sjö millj. kr. tap á tón-
leikum Iron Maiden
Breskur aðstandandi hyggnr á mikil
umsvif í skemmtanahaldi hér á landi
TAP af tónleikum bresku þungarokkhljómsveitarinnar Iron Maiden
nemur um sjö milljónum króna, að sögn forsvarsmanna tónleika-
haldara hér á landi. Breski athafnamaðurinn Howard Kruger stóð
fyrir tónleikunum og ber því tapið, en hann hyggur á frekari
umsvif í íslensku skemmtanalífi.
Ekki keyptu nema um 2.000 sig
inn á tónleikana föstudaginn 5.
júní sl., en kostnaður við tónleika-
haldið fór og nokkuð úr böndunum
vegna kostnaðar við að flytja hljóð-
og ljósakerfi hingað til lands.
Umboðsaðili Howards Krugers,
sem á og rekur TKO fyrirtækin,
hér á landi er Tónkó hf. Þeir Rik-
hard Eyfeld, framkvæmdastjóri
Tónkó, og Gísli Gíslason Iögmaður,
sögðu að Howard hefði tekið tap-
inu létt og sagst líta á það sem
fjárfestingu, en hann hyggur á
rekstur umboðsfyrirtækis hér á
landi, sem myndi standa fyrir
ýmsum uppákomum og þannig
hafa upp í tapið.
Fyrirtæki Howards Krugers,
TKO Entertainment Group, er
umsvifamikið fjölþjóðafyrirtæki
sem teygir anga sína víða um heim
og stendur fyrir íþróttamótum og
-sýningum, tónleikum og ýmsum
uppákomum, auk þess sem innan
vébanda þess er hljómplötufyrir-
tæki. Meðal þeirra listamanna sem
TKO hefur á sínum snærum má
nefna Julio Iglesias, Placido
Domingo, Rudolf Nureyev og ýms-
ar popp- og rokkstjömur.
Að sögn Gísla og Rikhards seg-
ir Howard milljónirnar sjö sem
hann tapaði á tónleikum Iron Maid-
en nauðsynlegan herkostnað til að
vinna tiltrú tónleikagesta hér á
landi eftir hremmingar undanfar-
inna missera, en hann hyggur á
ámóta tónleika strax í haust. Þeir
Meðal þess sem er í farvatninu
er að halda hér á landi árlega
keppni sterkustu manna heims, því
að mati Howards hentar ísland
sérstaklega vel undir slíka keppni
og auðvelt að leggja áherslu á að
sterkustu menn heims komi yfir-
leitt- frá íslandi. Þættirnir yrðu
teknir upp hér á landi í ágúst ár
hvert og síðan seldir sem sjón-
varpsefni um allan heim, en samn-
ingar standa yfir við breska ríkis-
sjónvarpið um sýningu á besta
tíma yfir jólin á þætti sem gerður
verður í ágúst næstkomandi.
ustu viku júnímánaðar. Á sýning-
unni, sem opnuð verður í dag,
sýna verk sín 15 myndlistarmenn,
sem búa í bænum, auk tveggja
arkitekta, sem búsettir eru annars
staðar.
Á sýningunni í Garðalundi eru
málverk, verk unnin úr leir, textíl-
verk og skúlptúrar. Höfundar þeirra
eru Pétur Bjarnason, Ragnheiður
Jónsdóttir, Edda Jónsdóttir, Gísli
Sigurðsson, Haukur Clausen, Pétur
Friðrik, Árni Elfar, Sigrún Gunnars-
dóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Jón
Óskar Hafsteinsson, Hrafnhildur
Sigurðardóttir, Garðar Jökulsson,
Bryndís Þórarinsdóttir, Greta Hák-
ansson og Ingibjörg Styrgerður Har-
aldsdóttir. Auk þess verða á sýning-
unni sýnd verk arkitektanna Ingi-
mundar Sveinssonar og Skúla
Norðdahls.
Við opnun sýningarinnar verður í
fyrsta sinn úthlutað starfslaunum til
listamanns í Garðabæ. Hér er um
að ræða 3 mánaða starfslaun og er
hugmyndin að bæði geti listamenn-
irnir sjálfir sótt um styrkinn og einn-
ig aðrir komið ábendingum á fram-
færi við menningarmálanefndina.
Sýningin í Garðalundi stendur til
28. júní og er efnt til hennar í tengsl-
um við norrænt vinabæjamót, sem
haldið verður í Garðabæ 25. til 28.
júnl. Þá koma til bæjarins gestir frá
Birkerod í Danmörku, Asker í Nor-
egi, Eslöv í Svíþjóð, Jakobsstad í
Finnlandi og Þórshöfn í Færeyjum.
Framkvæmdastjóri sýningarinnar er
Ragnheiður Elín Clausen.
*
Olympíuskákmótið:
íslendingar í 8. sæti
eftir fjórar iimferðir
Skák
Bragi Kristjánsson
ÍSLENDINGAR töpuðu U/2-
2Vi fyrir sveit frá hinni stríðs-
hrjáðu Bosniu-Herzegóvínu í
fjórðu umferð Ólympíuskák-
mótsins í fyrradag. Jóhann
og Helgi töpuðu með svörtu,
Margeir vann og Jón L. gerði
jafntefli. Bosníumenn voru
fyrir mótið með fimmtu stiga-
hæstu sveitina, þannig að
ekki getur það talist afhroð
að tapa fyrir þeim með
minnsta mun, þótt menn eigi
aldrei að vera ánægðir með
ósigur.
Margeir Pétursson vann stór-
meistarann, ívan Sókólov, á
öðru borði í skemmtilegri skák.
Bosníumaðurinn, sem með
2.630 ELO- skákstig er meðal
sterkustu skákmanna heims,
tefldi byijunina glannalega og
náði aldrei að jafna taflið.
Hvítt: Margeir Pétursson.
Svart: í. Sókólov (Bosníu-H.)
Enskur leikur.
1. c4 - e5, 2. Rc3 - Bb4,
3. Rd5 - Ba5!?, 4. b4 - c6,
5. bxa5 — cxd5, 6. cxd5 —
Dxa5, 7. Db3 - d6.
Trúlega hefur Sókólov ekki
líkað 7. — Rf6, 8. Rf3 (eða jafn-
vel 8. d6!?), 8. - e4, 9. Rd4 -
Dxd5, 10. Dxd5 — Rxd5, 11.
Ba3 - Rc6, 12. Rb5 - Rcb4,
13. Hcl o.s.frv., en hann hlýtur
að hafa undirbúið þessa glanna-
legu byijun „við eldhúsborðið
heima“.
8. Ba3 - Rf6, 9. Bxd6 -
Rbd7, 10. Rf3 - e4, 11. Rd4
- Rb6.
Eftir 11. - Dxd5, 12. Rb5 -
Dxb3, 13. Rc7+ - Kd8, 14.
axb3 — Hb8, 15. Hxa7 ásamt
16. Rb5 með vinningsstöðu fyr-
ir hvítan.
12. Rb5 - Rbxd5, 13. Ba3
- Be6, 14. Rd6+ - Kd7, 15.
Rxb7 - Db6, 16. Rc5+ -
Kd8, 17. e3 — Dxb3, 18. axb3
- Rb6, 19. Rxe6+ — fxe6, 20.
Ba6.
Margeir hefur náð mun betri
stöðu. Hann hótar m.a. Ba3-d6,
ásamt Ba6-b7. Biskupamir
njóta sín vel á opnu borði og
svörtu peðin á a7, e6 og e4 eru
veik.
20. - Rc8, 21. Ke2 - Hb8,
22. Hhcl - Kd7, 23. Hc4.
Önnur góð leið er hér 23. —
Bb2 (hótunin 24. Be5), t.d. 23.
- Hxb3, 24. Bxf6 - gxf6, 25.
Bxc8+ — Hxc8, 26. Hxa7n------
Kd8, 27. Hxc8+ - Kxc8, 28.
Hxh7 og hvítur ætti að vinna
endataflið.
23. - Hxb3, 24. Hd4+.
Hvítur fær mjög hagstætt
endatafl eftir 24. Bxc8+ —
Hxc8, 25. Hxc8 — Kxc8, 26.
Bf8 o.s.frv.
24. - Kc7, 25. Bc5 - e5,
26. Hc4 - Rb6, 27. Hc2 -
Kd7, 28. Bc4 - Rxc4, 29.
Hxa7+ — Ke6, 30. Hxc4.
Margeir á unnið tafl, peði
meira og mun virkari stöðu.
30. - Hc8, 31. Hb4 - Hd3.
Eða 31. - Hxb4, 32. Bxb4 -
Rd5, 33. Ba3 o.s.frv. ætti að
leiða til sömu niðurstöðu.
32. Hb6+ - Kf5.
33. Hxg7! - Hxc5, 34. Hf 7
— Hcc2, 35. Hbxf6+ — Kg5,
36. f4+! - exf4
eða 36. — exf3+, 37. Kxd3
- fxg2, 38. Hf2! - glD, 39.
Hg7+ ásamt 40. Hxgl og hvítur
vinnur létt.
37. exf4+ - Kg4, 38. Hg7+
og Sókólov gafst upp, því
hann verður mát eftir 38. —
Kh5, 39. g4+ - Kh4, 40. Hh6+
mát.
Sýnum ábvrað. flokkum sorp
og notum gámastöðvar
sögðu að menn veltu nú fyrir sér
hentugasta fyrirkomulagi slíkra
tónleika til að allir sem keyptu sér
miða gætu verið öruggir um að
af tónleikunum yrði eða þeir fengju
endurgreitt ella.
Væntanlegur er hingað til lands
í næstu viku útsendari TKO sem
á að skrá hvað til er af tækjabún-
aði og hvaða staðir henta fyrir
tónleikahald, en hann hyggur á
stofnun dótturfyrirtækis hér, sem
myndi koma sér upp ljósa- og hljóð-
búnaði til að draga verulega úr
kostnaði og lækka miðaverð við
tónleikahald og stórskemmtanir.
Timbur • málmar • garðaúrgangur • pappír • spilliefni • grjót
Gámastöðin þín er í næsta nágrenni:
• Mosfellsbær: Við hesthúsabyggðina í Mosfellsbæ.
• Noröausturhverfi Reykjavíkur, Austurbær,
Fossvogur og Árbær: Við Sævarhöfða.
• Hafnarfjörður, Garöabær og Bessastaðahreppur:
Miðhrauni 20, Garðabæ.
• Seltjarnarnes og Vesturbær: Við Ánanaust.
• Kópavogur: Viö Dalveg.
• Breiðholt: Við Jafnasel.
• Grafarvogur: Við Gylfaflöt.
f------------------------■ •—-—--------------------
Stöðvarnar eru opnar alla daga frá 10:00 - 22:00.
Tekið er á móti förmum allt að tveimur rúmmetrum.
S©RFA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs