Morgunblaðið - 13.06.1992, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1992
41
Mágkona mín, Gunnvör Braga
Sigurðardóttir, hefur lokið sinni
lífsgöngu hér á jörðu, eftir hetjulega
baráttu. Okkur öllum er þótti vænt
um hana finnst hún hafa farið allt-
of fljótt.
Við erum líklega svo eigingjöm
og viljum of oft grípa fram í fyrir
gangi forsjónarinnar, því í raun og
vem er ekkert eðlilegra en dauðinn
frá því er við fæðumst. En það
verður stórt skarð við frá, fall henn-
ar, það bregður mörgum við er hún
hefur annast, en mest honum elsku
bróður mínum, er hefur þurft svo
mikla hjúkmn og mikinn styrk síð-
ustu árin.
Ég hefi hugsað svo mikið til
þeirra úr fjarlægðinni síðustu vik-
urnar og tekið svo sárt að geta
ekkert létt þeim erfiðleikana. En
þá er gott að geta sent þeim bæn-
arkvak og beðið um styrk frá þeim
er öllu ræður og þann styrk fékk
Gunnvör sannarlega, því frétt hefi
ég að hún hafi aldrei æðrast né
kvartað.
Það stóð ekki á svarinu. Mig
dreymdi að við Gunnvör vorum
staddar í litlum undurfögrum
hvammi, sem er með fegurstu stöð-
um á jörðinni, rétt fyrir ofan Ekra
í Stöðvarfírði, bernskuheimili
Björns eiginmanns hennar. Þama
ríkti ólýsanlegur friður, kyrrð, birta
og hlýja. Gunnvör hélt á breiðum
borða eða bandi, mér fannst hún
ætla að fóðra lautina með því. Mér
verður litið til hliðar, ég hrópa upp
og segi: „Sjáðu alla græðlingana."
Hún brosir blítt og við horfum á
marga græðlinga misstóra, ásamt
ótal litlum blómum, þessum undur-
fögm, sem hvergi á íslandi er jafn
mikið af á einum stað, sem þessum.
Hún hefur gefíð fósturjörðinni
marga heilbrigða og fallega græð-
linga.
Það gladdi mig ósegjanlega mik-
ið að vera vitni að því hve tengd
hún var þessum stað og hafði ein-
mitt kostið sér hann til hvíldar síð-
ustu stundirnar.
Eftir þetta vissi ég að endalokin
vora skammt undan, en aðeins upp-
hafið að enn meiri fegurð.
Gunnvör hafði marga góða kosti
til að bera, t.d. heyrði ég hana aldr-
ei tala illt um nokkurn mann. Henni
þótti vænt um öll börn og talaði
ætíð til þeirra með sérstakri virð-
ingu.
Ég á henni margt að þakka.
Fyrir nú utan það að taka marg-
sinnis á móti okkur Birni af alúð,
vinsemd og mikilli gestrisni að
Meltröð 8 og síðast í Vogatungu
61, þá lögðu þau hjónin á sig langt
ferðalag til að samgleðjast mér er
ég átti merkisafmæli, í því tilefni
flutti hún þá einu ræðu er flutt
hefur verið mér til heiðurs á allri
ævinni.
Fyrir mörgum árum dvöldum við
Björn sex vikur erlendis. Þá lét
Gunnvör sig ekki muna um að
bæta ungum syni okkar við hópinn
sinn. Það hefur stundum hvarflað
að mér hvað þau hjónin hefðu gert
ef við hefðum ekki komið aftur eins
og stundum vill verða. Ég er viss
um að þau hefðu ekki látið hann
frá sér, þau réðu aldrei við gjafmild-
ina og hjálpsemina, voru allra
manna vísust til að láta allt sitt til
náungans til að greiða götu hans.
Það er hinn sanni kristindómur.
Mig langar að bæta við, þó ég
viti að Gunnvöra er ekki nein þægð
í því, hve fjölhæf hún var. Hún kom
stundum í sérkennilega fallegum
fötum, sem hefðu allt eins getað
verið frá tískuhúsum erlendis, hún
hafði þá sniðið þetta og saumað.
Hún var mjög fljót að útbúa veislu-
borð, þó maður kæmi án þess að
gera boð á undan sér, með blómum,
kertaljósi og fallegri litasamsetn-
ingu. Henni virtist auðvelt að
mynda marga leikhópa á fjölmennu
ættarmóti er haldið var á Stöðvar-
firði fyrir nokkrum árum, gaf að-
eins efnið. Þetta tókst með ágætum
án nokkurs undirbúnings, laðaði
fólkið saman og það var ánægt með
að vera þátttakendur í mótinu. Við
munum sakna vinar í stað á næsta
ættarmóti.
Virðing mín og þökk fylgja henni
inn á eilífðarlandið,
Þorbjörg Einarsdóttir,
Hóli, Stöðvarfirði.
og Gunnþórunn Steinarsdóttir
við afgreiðsluborðið i nýja far-
fuglaheimilinu á Bakkafirði.
Bakkafiörður;
Farfugla-
heimili
opnað á
Bakkafirði
Bakkafirði.
HINN 1. júní sl. var opnað far-
fuglaheimili í skólahúsnæði
Bakkafjarðar og verður það opið
alla virka daga frá kl. 15-22 en
frá kl. 13-18 á sunnudögum. Opið
verður í allt sumar til 31. ágúst.
Hægt er að taka við 60-70 manns
til næturdvalar í einu, mat er hægt
að fá ef pantað er. Einnig verður
boðið uppá austurlenskan mat á
sunnudagskvöldum, matreiddan af
Bakkfírðingum af austurlenskum
uppruna. Nauðsynlegt er að panta
fyrir kl. 22 á laugardagskvöldum í
þann mat.
Tvær stúlkur, þær Arndís Einars-
dóttir og Gunnþórunn Steinarsdótt-
ir, munu reka farfuglaheimilið í
sumar og era þær mjög bjartsýnar
því boðið er uppá flest allt sem
hugurinn stendur til í sumarfríi, svo
sem bátsferðir, bæði til fuglaskoð-
unar og stangveiði, silungsveiði í
vötnum og veiði á bryggjunni sem
hefur oft gefíð mikla og góða veiði.
Gönguferðir, bæði á eigin vegum
og svo með leiðsögumanni og þá út
í Digranesvita sem er mjög falleg
leið.
- Á.H.G.
TJöfðar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
Selabændur hvattir til að hefja selveiðar að nýju:
Markaður opnast fyr-
ír 1.000 kópaskimi
Selskinnsflíkur frá Eggert feldskera á haustsýningum í Þýskalandi
Morgunblaðið/Sverir
Eggert Jóhannsson feldskeri vinnur með selskinn og við hlið
hans er fullbúin selskinnskápa.
SELABÆNDUR hafa fengið
pantanir frá dönskum skinna-
kaupmanni og Grænlendingum
á hátt í þúsund kópaskinnum.
Samtök selabænda hafa því
beðið bændur um að veiða sel
í sumar. Markaður fyrir sel-
skinn lokaðist um 1980 vegna
mótmæla græhfriðinga. Sú
andúð á selveiðum og selskinns-
flíkum sem vakin var upp er
nú að mestu liðin hjá, að sögn
Árna Snæbjörnssonar hlunn-
indaráðunauts Búnaðarfélags
Islands, og síðustu árin hefur
markaðurinn verið að byija að
opnast aftur.
Árni sagði að selabændur hefðu
verið í samvinnu við Eggert feld-
skera um framleiðslu á fatnaði
úr selskinnum. Þá hefðu nokkur
hundruð skinn verið seld til Græn-
lands og í fýrrahaust hefðu 100
verið flutt út til Danmerkur. Allt
hefði þetta gengið vel. I fram-
haldi af þessu hefðu borist pant-
anir frá dönskum skinnakaup-
manni og Grænlendingum um
kaup á hátt í 1.000 skinnum en
fjöldinn væri enn ekki ljós. Græn-
lendingar þurfa skinn af lands-
elsskópum í ákveðna hluta þjóð-
búngins síns en þar sem lítið veið-
ist af landsel við Grænland kaupa
þeir skinnin héðan.
Eggert Jóhannsson feldskeri á
Skólavörðustíg sagði í samtali við
Morgunblaðið að í samstarfí við
Samtök selbænda hefði hann ver-
ið að þróa nýjar vinnsluaðferðir
við selskinn. Frá því selskinnsflík-
ur vora síðast í tísku hefðu orðið
miklar breytingar á aðferðum við
skinnaframleiðslu og væri hann
að fínna leiðir til að nota nýjustu
aðferðir við selskinnin. Hann
sagðist fara sér hægt, einbeita sér
að innanlandsmarkaðnum og þeg-
ar aðferðirnar væru fullþróaðar
væri hægt að snúa sér að útflutn-
ingi. Eggert sagði reyndar að
umboðsmaður sem hann hefði í
Þýskalandi hefði beðið um sýnis-
hom til að setja á haustsýningarn-
ar og færi lítið úrval til hans fyr-
ir þann tíma. Sagðist Eggert ekki
gera sér miklar vonir um árangur
í haust en að hægt yrði að auka
áhersluna á útflutning að ári.
Eggert sagðist leggja mesta
áherslu á herraflíkur og fallegan
hversdagslegan fatnað á bæði
kynin. Selskinnsjakkar og stuttar
kápur væru vinsælustu flíkurnar.
Á þriðja tug íslenskra karlmanna
ganga nú um í selskinnsjökkum
frá Eggerti. Hver jakki kostar á
bilinu 165 til 200 þúsund krónur.
Sagðist Eggert eingöngu fram-
leiða flíkur af hæsta gæðaflokki.
Engin gerviefni væra notuð, töl-
urnar væra til dæmis úr hvalskíð-
um eða tönnum og nautshomum.
Þó Eggert sé lítið farinn að
huga að útflutningi er talsvert um
að útlendingar sem hér eru á ferð
komi í verslunina og kaupi sel-
skinnsflíkur. Hann néfndi sem
dæmi að bandaríski djasssöngvar-
inn Jon Hendricks hefði pantað
sér jakka úr dökkgrænum sel og
þverslaufu í stíl þegar hann var
hér á ferð á dögunum.
Eggert notar 200-300 selskinn
í framleiðsluna á ári.
Áður en markaður fyrir sel-
skinn hrandi vora veiddir árlega
4-6 þúsund landselskópar hér við
land. Bændur fengu sem svaraði
einu lambsverði fyrir skinnið en
verðið er mun lægra við útflutning
nú, 2.500 krónur fyrir spýtt skinn,
sem er um þriðjungur af lambs-
verði að sögn Áma Snæbjömsson-
ar. Taldi Ámi að þetta verð dygði
varla fyrir kostnaði en sagði að
þetta væri aðeins byijunin og
verði myndi væntanlega hækka
smám saman.
t
Ástkær fafiir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN ÁSGEIRSSON
frá Bíldudal,
Háengi 4, Selfossi,
verðurjarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 15.júníki. 13.30.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Ríkharður Kristjánsson,
Björk Kristjánsdóttir,
Víðir Kristjánsson,
Sigurleifur Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Guðmundur Þ. Ásgeirsson,
Ida Sveinsdóttir,
Diðrik Óiafsson, ,
Aðalbjörg Helgadóttir,
Þórunn Jónsdóttir,
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUDRUN INGIMUNDARSON,
fædd MJATVEIT,
andaðist 8. júní sl. á Droplaugastöðum.
Útförin fer fram í kapellu Fossvogs-
kirkju mánudaginn 15. júní kl. 15.00.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Droplaugarstaða fyrir alúðlega umönn-
un og hlýju í herinar garð á liðnum árum.
T ryggvi Ólafsson, Aðalheiður Svavarsdóttir,
Edda Ólafsdóttir, Árni Sófusson,
Lilly Boröy, TrygveBoröy,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför
t
VALDIMARS JÓNSSONAR
frá Hallgilsstöðum
verður gerð fró Akureyrarkirkju mánudaginn 15. júní kl. 13.30.
Guðbjörg Valdimarsdóttir,
systkini, börn og barnabörn.
t
Útför föður okkar, tengdaföður og afa,
BALDVINS HERMANNS JÚLIUSSONAR,
Skorhaga ■ Kjós,
verður gerð frá Reynivöllum íKjós þriðjudaginn 16. júníkl. 14.00.
Júlíus Baldvinsson, Dagný Jónsdóttir,
Emma Baldvinsdóttir, Stefán Einarsson,
Hermann Baldvinsson, Berit Þórhallsdóttir,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Birtjng afmælis-
og minningargreina
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.