Morgunblaðið - 13.06.1992, Qupperneq 52
MICROSOFT, einar j.
WINDOWS. SKÚLASONHF
MORGUNBLAÐW, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK \
SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÚSTHÓLF 1665 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Miðbakkinn stækkaður
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Framkvæmdir við stækkun Miðbakkans í Reykjavíkurhöfn hófust
í síðustu viku og á myndinni er sanddæluskipið Sóley. Áætlað er
að verkefnið taki um tvö ár. Að sögn Hannesar Valdimarssonar,
hafnarstjóra, skapast aukið svæði til hafnarstarfa með stækkun
Miðbakkans og fyrir Geirsgötu, sem tengir Sæbraut og Mýrargötu.
Sjá ennfremur á bls. 18.
Ferðaskrifstofan Flugferðir-Sólarflug hættir starfsemi:
Um 2.200 viðskiptavinir áttu
bókað flug með skrifstofunni
^ FERÐASKRIFSTOFAN Flugferðir-Sólarflug hætti starfsemi í gær.
Fyrirtækið gat þá ekki lengur staðið við skuldbindingar sínar um
fyrirframgreiðslu til Flugleiða, sem Sólarflug samdi við á miðviku-
dag um flutning viðskiptavina sinna. Alls áttu 2.225 manns bókað
flug til útlanda á vegum Sólarflugs í sumar. Stór hluti þessa hóps
hafði þegar greitt ferð sína og fengið farseðil í hendur.
Síðasti hópurinn á vegum Sólar-
flugs fór utan í gærmorgun, en á
sjötta tug farþega, sem áttu bókað
far með ferðaskrifstofunni síðdegis
í gær, urðu að greiða farseðla sína
með Flugleiðum í annað sinn, þar
sem ferðaskrifstofan hafði ekki
greitt fyrir för þeirra.
27 skemmti-
ferðaskip
væntanleg
í SUMAR eru 27 skemmti-
ferðaskip væntanleg til
Reykjavíkur og er gert ráð
fyrir að þau verði í Sunda-
höfn. Stærst þeirra er Crystal
Harmony sem væntalegt er í
september. Skipið er er 241
metri að lengd og með stærstu
skipum sem hingað hafa kom-
ið.
Að sögn Sigurðar Þorgríms-
sonar yfírhafnsögumanns eru
þau öll væntanleg að morgni
dags og halda héðan síðdegis.
Flest skipanna koma einnig við
á Akureyri og halda síðan með
strönd Noregs og til Spitzbergen
á Svalbarða.
Flugleiðir höfnuðu í gær ósk
Guðna Þórðarsonar, forstjóra
Sólarflugs, um að yfirtaka rekstur
ferðaskrifstofunnar og þar með
skuldbindingar um að flytja þá við-
skiptavini hennar, sem áttu bókað
far, um 2.200 talsins. Einar
Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða,
segir að greiðslustaða Sólarflugs
sé svo slæm, að flugfélagið hefði
ekki haft neinn hag af slíkri yfír-
töku.
Samgönguráðuneytið afturkall-
aði í gær ferðaskrifstofuleyfi Sólar-
flugs. Ráðuneytið hefur jafnframt
samið við Flugleiðir um að_ flytja
aftur til landsins 300-400 íslend-
inga, sem staddir eru erlendis á
vegum ferðaskrifstofunnar.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, sagði að
hægt væri að ráðleggja fólki
tvennt. Annars vegar að fylgjast
vel með fréttum og leggja fram
kröfu í bú Flugferða-Sólarflugs,
sem hann sagðist eiga von á að
yrði tekið til gjaldþrotaskipta.
Spurningin væri hins vegar hvort
búið ætti einhveijar eignir og þótt
svo væri, væru kröfur viðskiptavin-
anna ekki forgangskröfur, þannig
að ekki væri líklegt að menn fengju
fé sitt endurgreitt. Hins vegar
væri hægt að reyna að fá greiðslu-
Viðskiptavinir Flugferða-Sólar-
flugs komu að luktum dyrum hjá
ferðaskrifstofunni i gær.
kortaviðskiptum rift.
í fréttatilkynningu, sem Flug-
ferðir-Sólarflug sendi frá sér í
gær, segir að helztu orsakir
rekstarstöðvunarinnar séu „minnk-
andi eftirspurn vegna fjaðrafoks í
fjölmiðlum, harðari samkeppni
vegna lækkunar fargjalda í
áætlunarflugi og almennur sam-
dráttur vegna versnandi efnahags-
ástands í þjóðfélaginu". Ekki náð-
ist í Guðna Þórðarson, forstjóra
fyrirtækisins, í gær. Ekki liggur
því fyrir hversu margir viðskipta-
vinir höfðu greitt ferðir sínar og
hveijir eiga möguleika á að fá
fjármuni sína endurgreidda.
Sjá einnig fréttir á bls. 22
og 23.
Verðbréfafyrirtækin:
Gagiirýna
aðhafaekki
verið höfð
með í ráðum
FULLTRÚAR verðbréfafyrir-
tækja gagnrýna að hafa ekki ver-
ið hafðir með í ráðum við samn-
ingu lagafrumvarpsdraga um
verðbréfafyrirtæki vegna samn-
ingsins um Evrópska efnahags-
svæðið. Þeir telja þó að fyrirsjáan-
legar breytingar á fjármagns-
markaði vegna EES séu jákvæðar.
Helstu breytingar sem verða á
starfsskilyrðum verðbréfafyrirtækj-
anna samkvæmt frumvörpunum eru
að þeim verður óheimilt að reka verð-
bréfasjóði og gerð verður krafa um
að verðbréfasjóðir fjárfesti a.m.k.
90% eigna sinna í skráðum verðbréf-
um.
Gunnar Helgi Hálfdánarsson, for-
stjóri Landsbréfa hf. og formaður
Samtaka verðbréfafyrirtækja, sagði
að fylgst yrði með því hvort verið
væri að þrengja reglur óþarflega
mikið. Þá sagði hann óheppilegt hve
aðlögunarfrestur að hertum kröfum
um Qárfestingu verðbréfasjóða væri
skammur. Gert er ráð fyrir að fyrir-
tækin fái eins árs aðlögunarfrest.
Sjá einnig bls. 16.
Fangbrögð
í flugvélinni
MANNI var í gærmorgun
gert að greiða 20 þúsund
króna sekt eftir að hann olli
vandræðum vegna drykkju-
láta um borð í flugvél Flug-
leiða á leið frá Egilsstöðum
til Reykjavíkur síðdegis á
fimmtudag.
Þegar flugvélin var rétt
ókomin til Reykjavíkur veittist
drukkinn maðurinn að flug-
freyju og taldi félagi hans það
honum til lítils sóma. Sá
drukkni kunni athugasemdum
hans illa og urðu úr allnokkrar
stimpingar, sem flugstjórinn
taldi skapa hættu í aðfluginu.
Þegar flugvélin lenti á Reykja-
víkurflugvelli biðu laganna
verðir eftir mönnunum. Öðrum
var fljótlega sleppt úr haldi,
enda hafði hann gert sér far
um að halda hinum, svo hann
gerði ekki meiri óskunda. Hin-
um var boðin gisting í fanga-
geymslum um nóttina. Hartn
reiddi fram 20 þúsund króna
sekt fyrir óspektimar í gær-
morgun.
Ný umhverfisvænni olía hjá Skeljungi:
Sparar skipum milljónir
SKELJUNGUR hf. hefur hafið innflutning á hreinolíu fyrir skip sem
ber nafnið Shell Marine Special Destillat og kemur frá Shell í Nor-
egi. Að sögn Krístins Björnssonar, forstjóra Skejjungs, hefur þessi
olía reynst mjög vel í Noregi þar sem hún hefur verið notuð í nokkur
ár. Verð á hinni nýju olíu mun a.m.k. verða um 10% lægra en verð
á gasolíu.
Kristinn segist áætla að um 260
milljónir lítra af gasolíu seljist á ári
en lítrinn kostar 20,7 krónur. Því
seljist gasolía fyrir um 5,4 milljarða
árlega en sama magn af hrein-
olíunni myndi_ kosta um 540 milljón-
um minna. „Áætla má að lítill skut-
togari gæti sparað rúmlega tvær
milljónir á ári en stærri skuttogari
gæti sparað um 4-5 milljónir á ári
með því að skipta frá gasolíu yfír í
Shell Marine Special Distillat.
Þetta aukna vöruúrval er liður í
aukinni samkeppni á milli olíufélag-
anna hérlendis. Hreinolían er með
mikið vaxinnihald og þykir þvi fara
vel með vélar. Auk þess inniheldur
hún lítið af brennisteini og því er
hún mun umhverfisvænni en t.d.
svartolía.“
Nú er hin nýja olía til í Reykjavík
en verið er að kanna hvort áhugi
sé fyrir því hjá aðilum úti á landi
að boðið sé upp á hana þar.
„Önnur nýjung sem Skeljungur
er nú að taka upp er að kaupa bens-
ín frá Noregi í stað Hollands og það
mun vera með um helmingi lægra
brennisteinsinnihald en bensín al-
mennt. Það dregur geysilega út lykt-
armengum og auk þess mynuast
minni annarskonar mengun," segir
Kristinn Bjömsson.