Morgunblaðið - 16.06.1992, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1992
KÚPLINGS —LEGUR
■DISKAR, —PRESSUR,
SVINGHJÓLSLEGUR
BORGARTÚNI 26
SlMI 62 22 62
Fraktflug
Verð frá: 969.000,-
Greiðslukjör við allra hæfi
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24
virka daga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00- 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
E)
SNARA
FÁNASTENGUR
• Ur glasfiber
• Með öllum búnaði
• Lengdir 6-7-8-10 metrar
SNARI
SÍMI 72502
Methagnaður hjá Cargolux í fyrra
Fær afhentar tvær nýjar Boeing 747-400F vélar á næsta ári
FLUGFÉLAGIÐ Cargolux í Lúxemborg skilaði sinni bestu afkomu
á sl. ári frá upphafi þegar hagnaður varð alls um 21 milljón dollara
(1.200 m.kr.). Þetta er tvöfalt hærri hagnaður en árið áður. Heildar-
tekjur námu alls um 292 milljónum dollara (16,9 milljörðum kr.) og
jukust um 9,6% milli ára. Flutti félagið alls 123.230 tonn á árinu
1991 samanborið við 116.559 tonn árið áður. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi 21. maí sl. þar sem Sten Grotenfelt, forstjóri Cargolux,
tilkynnti um afkomu fyrirtækisins. Félagið er nú 15. stærsta fyrir-
tæki í fraktflutningum í heiminum miðað við flutningsmagn á hvern
floginn kílómetra.
Eins og undanfarin ár einbeitti
félagið sér að alhliða fraktflutn-
ingaþjónustu en einnig varð góður
árangur af rekstri viðhaldsdeilda
sem annast viðhald fyrir önnur flug-
félög.
Cargolux var stofnað árið 1970
af Luxair, skipafélaginu Salen,
Loftleiðum og nokkrum einstakl-
ingum í Lúxemborg. Hlutur Flug-
leiða var seldur fyrir nokkrum árum
og eiga nú bankar í Lúxemborg um
45% hlutafjárins, Luxair á 24,5%
og Lufthansa 24,5%. íslendingar
hafa auk eignaraðildar haft ýmis
önnur tengsl við félagið gegnum
árin og hefur það annast viðhald
fyrir Flugleiðir um árabil. Þar hefur
starfað fjöldi íslendinga ojg eru þeir
nú 58 talsins auk 15 Islendinga
með ríkisborgararétt í Lúxemborg.
Endurnýjun flugflotans
Meðal íslenskra starfsmanna er
Jóhannes Einarsson, framkvæmda-
stjóri þróunarsviðs, en undir hann
heyrir m.a. endumýjun flugflota
félagsins sem nú stendur ýfir.
Cargolux undirritaði samning við
Boeing-verksmiðjurnar í desember
árið 1990 um kaup á þremur Bo-
eing 747-400 flugvélum og kaup-
rétt á þremur til viðbótar. Er gert
ráð fyrir að tvær fyrstu vélamar
verði afhentar í nóvember og des-
ember árið 1993. Nýju vélarnar em
viðbót við fimm Boeing 747-200F
véla sem samtals hafa 525 tonna
burðargetu.
„Boeing 747-400 vélarnar hafa
mun meiri burðargetu en aðrar fá-
anlegar vélar,“ segir Jóhannes Ein-
arsson. „Hámarksburðargeta þeirra
er 125 tonn en þær hafa einnig
mikla burðargetu á lengri leiðum
en 3.500 mílum. Þetta þýðir fyrir
Cargolux að unnt er að fljúga án
þess að millilenda frá vesturströnd
Bandaríkjanna til Evrópu með yfir
100 tonna frakt og þannig spara
háan millilendingarkostnað. Einnig
er unnt að fljúga frá Evrópu til
Austurlanda fjær með 85 tonn án
millilendingar. Boeing 747-400 eyð-
ir einnig um 15% minna eldsneyti
og býður upp á meira rými fýrir
fraktina en eldri vélar."
Cargolux fór aðra leið við end-
umýjun flugflotans en mörg önnur
flugfélög sem flytja eingöngu frakt.
Mikil eftirspum eftir fraktvélum
hefur leitt til þess að eldri farþega-
vélum hefur í stómm stíl verið
breytt fyrir fraktflutninga. T.d.
hefur 39 Boeing 747-100 vélum
verið breytt á þennan hátt, 143
Boeing 727 vélum og 95 DC-8 vél-
um. Jóhannes bendir á að kostnað-
urinn við breytingu á Boeing
747-200 geti verið yfir 20 milljónir
dollara (tæplega 1.200 m.kr.) og
breyting á DC-8 kosti a.m.k. 4
milljónir dollara. Þetta geti verið
óskynsamleg leið þegar eingöngu
sé litið á kostnaðinn og ekki tekið
tillit til annarra þátta. Að frátoldum
kostnaðinum geti breytingamar
tekið allt að 6 mánuði, vélarnar séu
eyðslufrekari á eldsneyti, krefjist
meira viðhalds og hafi minni burð-
argetu. Þetta segir Jóhannes að
hafí m.a. ráðið úrslitum um að
Cargolux ákvað að ráðast í fjárfest-
ingu á nýjum vélum.
Vegna starfsemi Cargolux hafa
fraktflutningar orðið mikilvægir
fyrir flugvöllinn í Lúxemborg en
um hann fóru árið 1990 158 þúsund
tonn af frakt. „Við teljum okkur
hafa gegnt lykilhlutverki í því að
byggja upp fraktflutningamiðstöð í
Lúxemborg sem nú er ein sú mikil-
vægasta í Evrópu.“
Herflugvellir gætu nýst fyrir
fraktflugvélar
Jóhannes telur að þróun frakt-
flugs í heiminum muni á þessum
áratug ráðast af því hvernig tekst
að mæta vaxandi umferð um flug-
CARGOLUX —Jóhann-
es Einarsson, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Cargolux telur að
fraktflug eigi eftir að fara vax-
andi og að fraktflutningavélar
muni vera með um helming af
þeirri aukningu.
velli og þannig uppfylla aukaeftir-
spurn. „A sumum flugvöllum verða
byggðar upp sérstakar fraktmið-
stöðvar eins og í Lúxemborg. Því
munu mörg flugfélög þurfa að
skipta yfír í stærri flugvélar. Önnur
lausn kann að vera sú að nýta her-
flugvelli eingöngu fýrir fraktflug-
vélar. Cargolux notast við Ricken-
backer Air Force í Bandaríkjunum.
Það eru a.m.k. sautján herflugvellir
í Bandaríkjunum sem mætti opna
fyrir fragflugvélar og einnig eru
margir herflugvellir í Evrópu, t.d.
í Þýskalandi."
Jóhannes bendir á að flutningar
með fraktflugvélum séu aðeins 0,1%
af heildarflutningum í heiminum.
Skipaflutningar séu algjörlega yfir-
gnæfandi. „Skipafélög og frakt-
flugfélög hafa hins vegar nýlega
hafið samvinnu um að bjóða t.d.
flutninga frá Japan til Los Angeles
eða Seattle í Bandaríkjunum þaðan
sem varan er flutt til Evrópu með
flugvélum. Ég tel einnig að frakt-
flug eigi eftir að fara vaxandi og
að fraktflutningavélar muni vera
með um helming af þessari aukn-
ingu. Markaðurinn fyrir fraktflug
mun hins vegar halda áfram að
stjórnast af fraktrými í farþega-
flugvélum. Farþegaflugvélar flytja
megnið af flugfraktinni innan Évr-
ópu og eru með yfir 60% af heild-
arfraktflutningum í heiminum eða
„Combi“-vélum. Þannig skilar
fraktflug um 16% af heildartekjum
flugfélaganna en búist er við að
þessi tala eigi eftir að hækka í 20%
á næstu fímm árum,“ sagði Jóhann-
es Einarsson.
Flug
Áströlsk ríkisflugfélög
sameinuð og einkavædd
Verkamannaflokksstjórnin í
Ástralíu hefur tilkynnt um áætl-
un um að sameina tvö flugfélög
í ríkiseigu og selja síðan allt
hlutafé í nýja fyrirtækinu til ein-
staklinga, fyrirtækja og erlendra
flugfélaga. Er um að ræða Qant-
as, sem flýgur á alþjóðlegum
flugleiðum, og Australian Airlin-
es en það hefur eingöngu verið
i innanlandsfluginu.
Paul Keating, forsætisráðherra
Ástralíu, segir, að 35% hlutafjár :
nýja félaginu verði seld erlendum
flugfélögum en 65% eintaklingum
og fyrirtækjum í Ástralíu. Eru Brit-
(auglýsing)
Mikill verðmunur milli
ish Airways, Singapore Airlines og
Japan Airlines talin líkleg til að
berjast um bitann. Keating býst
við, að salan muni færa ríkissjóði
einn milljarð Ástralíudollara en nýja
fyrirtækið er metið á allt að þrjá
milljarða. Hér er því um að ræða
mestu einkavæðingaráform, sem
um getur í Ástralíu, og miklu meiri
en þegar ríkið seldi í fyrra 30% hlut
í Commonwealth Bank.
Keating skýrði einnig frá því, að
sett yrði á fót óháð nefnd til að
skipta alþjóðlegum flugleiðum á
milli nýja félagsins og Ansett Austr-
alia en það er flugfélag í einkaeigu.
Hefur það aðeins verið í innanlands-
flugi en vill nú þreifa fyrir sér á
alþjóðamarkaðnum.
Salan á öllu hlutafé nýja flugfé-
lagsins brýtur raunar í bága við
stefnuskrá Verkamannaflokksins
og því þarf að staðfesta hana á
sérstöku flokksþingi. Hún hefur
þegar verið samþykkt í þingflokkn-
um.
Hugbúnaður
Ný útgáfa Vaskhuga
komin út
ljósmyndastofa
Samkvæmt könnun verölagsstofnunará veröi hjá 16
ljósmyndastofum á höfuöborgarsvæðinu og tveim á
Akureyri, sem birtist í Morgunblaöinu 28. marz s.l.
er 72 % verömunur á stækkun í stæröinni 24 x 30
cm.
í könnuninni sem birt var í Ódýrust var viðkomandi stækkun á
Morgunblaðinu 28. marz s.l. Ljósmyndastofunum 3. ódýrastir,
kom í ljós að stækkun í en það eru ljósmyndastofumar:
ofangreindri stærð kostaði kr. ljósmyndastofa Kópavogs, Ljós-
6.700,00 þar sem hún var myndastofan Bama og fjölskyldul
dýmst, en kr. 3.900,00 þar sem jósmyndir og Ljósmyndastofan
hún var ódýmst þama skakkar Mynd Hafnarfirði.
72 % á verði
Þessi mikli verðmunur ætti að
verða fólki hvatning til að gera
nákvæma könnun, áður en það
pantar myndatöku eða stækkanir,
besta og ömggusta könnunin er sú
sem fólk gerir sjálft, þar sem það
getur borið saman verð á
myndatökum, og hvað er innifalið
í þeim, sama máli gegnir með
eftiipantanir, fólk ætti að kynna sér
nákvæmlega hvað sú stærð mynda
sem það óskar sér, kostar á
hveijum stað, áður en pantað er.
Besta verðlagseftirlitið er það sem
byggist á könnun sem kaupandinn
gerir sjálfur.
NÝ og endurbætt útgáfa af forritinu Vaskhugi er komin á markað.
Vaskhugi er fjárhags-, viðskiptamanna- og birgðabókhald ásamt
verkefnabókhaldi og sölukerfi. Nú hafa töluverðar breytingar verið
gerðar á forritinu sem hentar því einnig hvers kyns félaga- og eftir-
litsstarfsemi þar sem við bættist félaga-, vitjana-, pantana- og ávísana-
kerfi auk margvíslegra annarra breytinga.
í fréttatilkynningu frá Vaskhuga
hf. sem sér um dreifingu forritsins
á íslandi, segir að forritið henti
þeim sem stundi atvinnurekstur eða
sjái um bókhald fyrir félagastarf-
semi. Það sé einfalt í notkun og
geri flóknar aðgerðir sjálfvirkt.
Forritið færi t.d. tvíhliða bókhald
frá gögnum sem innihaldi tekjur
og gjöld sem notandinn hafí skráð.
A meðal nýjunga í Vaskhuga
má nefna vitjanabókhald en þeir
sem sjá um reglulegt eftirlit, t.d.
með lyftum og öryggisbúnaði eða
stunda sölumennsku, geta nú prent-
að út nákvæma skýrslu um hvað
skuli gera á ákveðnu tímabili. Með-
al nýrra skýrslna í forritinu eru
yfírlit yfír sölu vörutegunda og
þjónustu, sem auðveldar eftirlit með
birgðum og sölu vöru.
Meðal þess sem Vaskhugi gerir
er að reikna út stöðu á ávísana-
hefti. Færslurnar flytjast sjálfvirkt
inn og út af heftinu þegar tekjur
og gjöld eru skráð.