Morgunblaðið - 16.06.1992, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1992
DNG út úr viðræðum
um kaup á Slippstöðimú
Morgunblaðið/Helgi
Fyrsta skóflustungan að nýju safnaðarheimili fyrir Raufarhafnar-
kirlgu var tekin fyrir nokkru.
Raufarhöfn:
Raufarhöfn.
A hvítasunnudag eftir messu
var tekin skóflustunga að bygg-
ingn safnaðarheimilis á Raufar-
höfn sem rísa á á kirkjulóðinni
í sumar.
Heimilið á að standa þar sem
gamla prestshúsið, Kirkjuból, stóð
áður. Húsið verður um fjörutíu fer-
metrar að grunnfleti.
Raufarhafnarkirkja var byggð
1929 eftir teikningum hins lands-
kunna meistara, Guðjóns Samúels-
sonar, en í henni er ekki gert ráð
fyrir aðstöðu fyrir dagleg störf
prests eða safnaðarstarfa utan
hefðbundinna messustarfa. Nýja
safnaðarheimilið kemur til með að
leysa þann vanda.
Skóflustunguna tók Hallur Þor-
steinsson, hringjari Raufarhafnar-
kirkju, en því starfi hefur hann
gegnt í yfir 20 ár. Eftir að skóflu-
stungan hafði verið tekin, blessaði
séra Jan Hagbarður, sóknarprestur
á Raufarhöfn, lóð væntanlegs safn-
aðarheimilis og bað því og starfsemi
Rafeindafyrirtækið DNG hefur dregið sig út úr viðræðum um
kaup á stórum hluta í Slippstöðinni og segir stjórnarformaður stöðv-
arinnar að nú sé málið nánast komið á byrjunarreit að nýju. Fram-
haldsaðalfundur Slippstöðvarinnar verður haldin á föstudag, en fyr-
ir þann tíma átti að reyna til þrautar að fá nýja aðila inn í rekstur-
inn. Fleiri aðilar voru í viðræðum um kaup á hlutafé í Slippstöðinni
og hefjast þær viðræður að nýju eftir næstu helgi.
Safnaðarheimili byggt
þess Guðs blessunar.
J.J.R. trésmiðir hf. á Raufarhöfn
mun sjá um byggingu safnaðar-
heimilisins. _ He, j
Kristján E. Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri DNG, sagði að fyrir-
tækið hefði dregið sig í hlé í þeim
viðræðum sem áttu sér stað. Við
nánari skoðun á rekstri fyrirtækis-
ins hefði verið ljóst að hann væri
afar viðkvæmur og mætti ekki við
mikilli röskun. Skuldir þess væru
um 500 milljónir króna og því ljóst
að ekki mætti mikið út af bregða.
Þá hefðu fréttir um tillögur að 40%
niðurskurði á þorskkvóta á næsta
kvótaár ekki hjálpað til. „Niðurstað-
an varð því sú af okkar hálfu að
málið var sett í biðstöðu," sagði
Kristján.
Hólmsteinn T. Hólmsteinsson
stjórnarformaður Slippstöðvarinnar
sagði að þessi tíðindi værU vissulega
mikil vonbrigði og nú yrðu menn
að byija nánast upp á nýtt. Aðrir
aðilar hefðu einnig verið inni í
myndinni og yrði eftir framhalds-
aðalfund á föstudag haldið áfram
að ræða við þá, en á allt öðrum
forsendum.
Á aðalfundi Slippstöðvarinnar
sem haldin var síðast í maí var
stjórn veitt heimild til að auka hlut-
afé um allt að 100 milljónir króna,
hlutafé var lækkað úr 108 milljón-
um í 21,7 milljónir og þá kom einn-
ig fram að eigið fé stöðvarinnar er
komið niður í 2 milljónir króna. Tap
á rekstrinum nam 237 milljónum
króna, en eignir voru skrifaðar nið-
ur um 185 milljónir. Halli á rekstr-
inum á liðnu ári er einkum til kom-
in vegna nýsmíðaskipa.
„Eftir að DNG-menn ákváðu að
setja það í biðstöðu að þeir kæmu
inn sem stórir eignaraðilar erum
við svo til komnir á byrjunarreit að
nýju. Hugmyndin var sú að reyna
til þrautar að fá inn nýja aðila fyr-
ir framhaldsaðalfundinn en það
tókst ekki, en við vorum í viðræðum
við fleiri en DNG og eftir að ný
stjóm verður kosin á föstudag verð-
ur væntanlega byrjað á viðræðum
með breyttum áherslum og öðrum
forsendum eftir næstu helgi,“ sagði
Hólmsteinn.
Húsabrekka:
Nýtt tjaldsvæði opnað
Brauðgerð Kristjáns Jónssonar:
Víkurbakarí tekið á leigu
BRAUÐGERÐ Kristjáns Jónsson-
ar á Akureyri hefur tekið á leigu
rekstur Víkurbakarís á Dalvík, en
það varð gjaldþrota nýlega.
Birgir Snorrason, einn eigenda
Brauðgerðar Kristjáns Jónssonar,
sagði að gerður hefði verið leigu-
samningur sem gilti til 1. september
næstkomandi. Óljóst væri hvað gert
yrði í framhaldi þess, hvort um
áframhaldandi leigu yrði að ræða eða
hvort til kaupa kæmi. Hann sagði
að allur bakstur í bakaríinu yrði lagð-
ur niður, en brauði og kökum ekið
frá bakaríi fyrirtækisins á Akureyri
til Dalvíkur og selt í verslun sem þar
er. Brauðgerð Kristjáns Jónssonar
mun því reka fimm brauðbúðir, en
fyrir eru §órar brauðbúðir á Akur-
eyri.
HJÓNIN Sigurbjörg
Þorsteinsdóttir og
Haraldur Guðmunds-
son hafa opnað nýtt
tjaldstæði, Húsa-
brekku, en það er á
móts við Akureyri,
eða um 6 kílómetra
leið frá miðbænum.
Á tjaldstæðinu er
pláss fyrir um 80 tjöld,
en einnig er lögð sér-
stök áhersla á að búa
vel að fólki sem er á
ferð á húsbílum, m.a.
er þar til staðar raf-
magn í bílana og
losunarbúnaður fyrir ferðasalerni.
Söluskáli hefur verið byggður á
svæðinu, þar sem m.a. verða seldar
nauðsynjavörur og einnig allt er
tilheyrir grillinu, matur, kol og
fleira. Ferðafólk getur brugði sér
í sturtu og einnig er þvottavél og
þurrkari á svæðinu. Góð aðstaða
er fyrir hreyfihamlað fólk á þessu
tjaldsvæði.
Bílastæði eru rúmgóð og tjald-
svæðið er í skjóli við skóg með
útsýni yfir til Akureyrar. Góðar
gönguleiðir eru í námunda við
tjaldsvæðið og á næstunni verða
sett þar upp leiktæki, en þau Sigur-
björg og Haraldur telja svæðið
henta fjölskyldufólki einkar vel.
„Við höfum verið að velta þessu
Hjónin Sigurbjörg Þorsteinsdóttir og Harald-
ur Guðmundsson með soninn Guðmund
Helga.
fyrir okkur síðustu sjö árin, en lét-
um verða af því nú í haust að taka
ákvörðun. Við byrjuðum að vinna
að þessu í janúar, en þá gerðum
við bílastæðin og síðan var hafist
handa við að reisa ferðamannaað-
stöðuna um páskana. Þetta hefur
verið geysilega mikil vinna, en það
hefur aðallega verið íjölskyldan
sem lagt hefur hana fram,“ sagði
Haraldur.
Húsabrekka var formlega opnuð
um síðustu helgi, en gestir voru
þegar byijaðir að streyma að áður
og sagði Haraldur að gestir hefðu
látið vel af dvölinni og flestir hefðu
dvalið í nokkrar nætur á svæðinu,
þó þeir hafi upphaflega ætlað að
vera aðeins eina.
Stóðhestar til sölu
Eftirtaldir ungfolar frá Litla-Dal í Eyjafirði
eru til sölu ef viðunandi tilboð fæst.
Bjartur 88165101, rauðbles., glóf.
F: Léttir, 84151002 - 1. v.
M: Bjóla 3655 - 1. v.
Dalur 88165104, bleikálóttur.
F: Ófeigur 882 - 1. v. afkv.
M: Salía 81265014 - 1. v.
Leiknir 90165107, jarpur.
F: Hósías 86162001 - 1. v.
M: Rós 67265001 - 1. v. afkv.
Nánari upplýsingar gefa Jónas og Kristín í
síma 96-61739 eða Aida hf., ferðaþjónusta,
í síma 96-31267
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Brautskráning var frá Háskólanum á Akureyri á laugardag, en athöfnin fór fram í Akureyrarkirkju.
25 brautskráðir frá Háskólanum
BRAUTSKRÁNING var frá Háskólanum á Akureyri siðastliðinn laug-
ardag, en þá voru brautskráðir 9 hjúkrunarfræðingar með BS-próf
úr heilbrigðisdeild og 16 iðnrekstrar- og rekstrarfræðingar úr rekstr-
ardeild. Athöfnin fór fram í Akureyrarkirkju að viðstöddu fjöl-
menni, en síðan var efnt til kaffisamsætis í Hótel KEA.
Nokkrar viðurkenningar voru dóttir. Þá fékk Páll Erland Landry
veittar í heilbrigðisdeild, en flestar viðurkenningu fyrir góðan náms-
þeirra fékk Hildigunnur Svavars- árangur í rekstrardeild.
Um 160 manns voru við nám í
Háskólanum á Akureyri á liðnum
vetri og sagði Ólafur Búi Gunn-
laugsson skrifstofustjóri að fjöldi
innritaðra nýnema fyrir næsta vetur
væri svipaður og verið hefur, en á
milli 70 og 75 nýnemar hafa skráð
sig til náms við skólann næsta vet-