Morgunblaðið - 16.06.1992, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1992
31
Mammon og jafn-
rétti til náms
1 eftir Val Frey
Einarsson
Mammon og Bakkus eiga það
. sameiginlegt að þeir leggjast á sinni
manna. Með hjálp nútíma læknavís-
inda hefur tekist að lækna margan
sinnisveikan manninn sem blótað
hefur Bakkus ótæpilega. Öðru máli
gegnir með Mammon, enn hefur
ekki fundist nein lækning við því
þegar hann nær heljartaki á hugum
manna og blindar þá, svo að siðferð-
is-, jafnréttis- og réttiætiskennd
hverfur með öllu úr fari þeirra og
ekkert kemst að annað en auður
og völd. Hvert okkar kannast ekki
við ævintýri sem segja frá fégráð-
ugum konungum sem fara flatt á
eigin græðgi og valdníðslu. Við
kennum börnum okkar ungum að
hófsemi, kærleikur og bræðralag
j séu einar af höfuðdyggðum manns-
ins, og alltaf skuli þau leitast við
að hafa þær að leiðarljósi.
j
Ekki veit ég hvemig uppeldi hef-
ur verið háttað hjá þeim Ólafí G.
| Einarssyni og Davíð Oddssyni. En
ýmislegt má þó sjá um uppeldi og
innrætingu manna er þeir segja frá
bemskuminningum sem standa
þeim hvað skýrast fyrir hugskots-
sjónum. Það gerði Davíð Oddsson
fyrir alþjóð á páskadag í sjónvarps-
leikritinu „Allt gott“. Sögusviðið
var lítið þorp úti á landi og í brenni-
depii sögunnar vora tveir ungir
sveinar sem öfunduðust heiftarlega
út í auð og aðstöðu kaupmannsson-
arins í þorpinu, sem hafði greiðan
aðgang að öllum lystisemdum lífs-
ins, að þeirra mati, og óréttlætið
gekk svo langt að meira að segjá
Guð gekk í lið með þeim ríku. Ekki
veit ég hvort þessi bemskuminning
Davíðs hefur lagst svo þungt á hug
hans að hann hyggi enn á hefndir,
það vona ég svo sannarlega ekki,
auk þess tel ég víst að Davíð viti
að það stoðar lítt að flengja öldurn-
ar.
Hvort það er bemskureiði eða
bara óréttlát hönd Mammons sem
afvegaleiðir stjómendur þessa lands
er ekki vitað, en eitt er víst að reið-
in bitnar á röngu fólki, sjúkir og
námsmenn eiga hana ekki skilið.
Við þekkjum öll vanhugsaðar
aðgerðir heilbrigðisráðherra í heil-
brigðiskerfinu fyrir skemmstu, þar
sem lagt var á báðar hendur og
tilviljun réði hver varð fýrir hverju
sinni. Nú hefur heröxin verið reidd
á loft að nýju og nú gegn náms-
mönnum. Ólafur G. Einarsson, sem
á að standa vörð um menningar-
og menntamál í landinu, ræðst nú
svo harkalega að námsmönnum að
það lítur út fyrir að fjöldi fólks
þurfí að hverfa frá námi, og stór
hópur sem hugði á nám á hausti
komanda muni ekki geta leyft sér
þann munað.
Þama er sérstaklega um að ræða
bamafólk og þá sem hugðu á nám
erlendis, í mörgum tilfellum eins-
hverskonar listnám. í nýjum drög-
um að úthlutunarreglum LÍN er
ákvæði sem segir að nemendum
verði ekki lánað fyrir skólagjöldum
í erlenda háskóla í grunnnám,
þ.e.a.s. ekki verður lánað í neitt
nám erlendis sem gefur BA- eða
BS-gráðu, þar á meðal er fjöldinn
allur af fögum sem ekki er kenndur
á íslandi. Ungu fólki er þar með
gert ómögulegt að fara í nám til
Englands, Bandaríkjanna og víðar,
en í þessum löndum era einmitt
margir virtustu og bestu háskólar
I ------------------------------------
Þrúgur reiðinnar:
Fjórar sýningar eftir
^ NÚ ERU aðeins fjórar sýningar eftir á sýningu Leikfélags Reykjavík-
ur á Þrúgum reiðinnar en verkið hefur þegar verið leikið 57 sinnum
fyrir troðfullu húsi og hlotið góðar undirtektir áhorfenda á öllum aldri.
Skáldsaga John Steinbeck um
þær miklu þjóðfélagslegu hræringar
sem gengu yfír miðvesturríki Banda-
ríkjanna í kjölfar þurrka og kreppu
hefur verið vinsæl. Hún hefur selst
upp í tveim stóram upplögum og
hefur komið út í þriðju útgáfu sam-
fara sýningu Leikfélags Reykjavíkur
á þessu meistaraverki.
Það var Kjartan Ragnarsson sem
setti sýningun á svið en leikmynd
og búninga vann Óskar Jónsson.
Þáttur tónlistar KK í sýningunni er
fyrirferðamikill.
Rúmlega þrjátíu þúsund áhorf-
endur hafa séð sýninguna og hefur
ekkert lát verið á eftirspurn þó kom-
ið sé fram á sumar. Nú era síðustu
forvöð að tryggja sér miða á ein-
hveija af þeim fjórum sýningum sem
eftir era: fímmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld í
þessari viku. Sýningum á Þrúgunum
verður hætt nú í sumar og verkið
ekki tekið aftur til sýninga að hausti.
í stórum leikarahóp sem að Þrúg-
um reiðinnar stendur má nefna:
Þröst Leó Gunnarsson, Hönnu Maríu
Karlsdóttur, Sigurð Karlsson, Pétur
Einarsson, Valdimar Öm Flygen-
ring, Þóreyju Sigurþórsdóttur og
Steindór Hjörleifsson. Sú breyting
hefur orðið á uppranalegri hlutverk-
askipan að Soffía Jakobsdóttir leikur
nú ömmuna og þær Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir og Helga Þ. Stephen-
Valur Freyr Einarsson
„Að stjórnvöld skuli
stuðla að því að ein-
angra listnám við ís-
land, hvort sem það er
í leiklist, myndlist eða
tónlist, eru vægast sagt
voveifleg tíðindi og í
meira lagi kaldhæðnis-
leg.“
í heiminum og ekki síst í listgrein-
um.
Sál þjóðarinnar lifír í tungu henn-
ar, listsköpun og menningararfí, við
verðum að gera okkur grein fyrir
því á þessum örlagaríku umbrota-
og hættutímum að tilveruréttur
þjóðarinnar byggist á andlegum
verðmætum sem hún skapar og
vinnur úr og engu öðra. Að stjórn-
völd skuli stuðla að því að einangra
listnám við ísiand, hvort sem það
er í leiklist, myndlist eða tónlist,
eru vægast sagt voveifleg tíðindi
Þröstur Leó Gunnarsson í hlut-
verki sínu.
sen hafa tekið við smærri hlutverk-
um í sýningunni.
(Frcttatilkynning)
og í meira lagi kaldhæðnisleg. Mér
er gjörsamlega ofviða að skilja að
slíkt geti gerst í lýðræðislegu sam-
félagi árið 1992.
Ólafur G. Einarsson segir í ávarpi
sínu til Listahátíðar: „Hverri þjóð
er hollt að gefa gaum að umhverfi
sínu hveiju sinni. Það á ekki síst
við í menningarmálum, þar sem
hljómar, form, litir, hreyfing og frá-
sögn era hið sameiginlega tungu-
mál í samfélagi þjóðanna. Listsköp-
un á íslandi er þannig ekki einangr-
uð við ísland fremur en listsköpun
annarra þjóða við þeirra heimaland.
Það er mikilvægt að treysta sam-
skipti íslenskra og erlendra lista-
manna og opna íslendingum sýn á
það besta sem samtíminn býður upp
á í hverri listgrein, ekki síst nú á
tímum þegar sambúðarform þjóða
taka jafn öram breytingum."
Þetta er hveiju orði sannara hjá
Ólafí G. Einarssyni, og ég vona svo
sannarlega að hann hafi kjark til
að breyta eftir þessum orðum sínum
og samvisku, þá er stór von til þess
að hann beiti sér fyrir breytingum
á nýbirtum úthlutunarreglum LÍN,
og felli niður ákvæðið um að ekk-
ert verði lánað til skólagjalda í
grunnnám erlendis. „Það er mikil-
vægt að treysta samskipti íslenskra
og erlenda listamanna og opna ís-
lendingum sýn á það besta sem
samtíminn býður upp á í hverri list-
grein." Það gefur augaleið að þetta
markmið Ólafs og þjóðarinnar allrar
næst ekki með því að koma í veg
fyrir að ungt og efnilegt listafólk
geti stundað nám á erlendri grandu.
Aðgerðir núverandi ríkisstjómar
í málefnum námsmanna hafa allar
miðast að því að höggva á rætum-
ar og stuðla að óþolandi óréttlæti.
Ég bið ykkur lengstra orða að horfa
til framtíðar, því skammtímaúr-
lausnir með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum fyrir námsmenn verða
ykkur skammgóður vermir. Forð-
umst aðgerðir eins og þær sem seg-
ir í ljóði Erichs Frieds:
Áðgerðirnar
Kálum Ietingjunum
og heimurinn verður iðinn
Kálum þeim ljótu
og heimurinn verður fagur
Kálum fíflunum
og heimurinn verður vitur
Kálum þeim sjúku
og heimurinn verður hraustur
Kálum syrgjendum
og heimurinn verður glaður
Kálum þeim gömiu
Og heimurinn verður ungur
Kálum óvininum
og heimurinn verður Ijúfur
Kálum þeim vondu
og heimurinn verður góður
Höfundur er aðstoðar-
dagskrárgerðarmaður /yá
sjónvarpinu og hefur stefnt að
listnámi erlendis.
Raflagnaeíhi
s
1
sumarbústaðínn
Í^RAFSÓL
Skipholti 33
S.35600
HELGARNÁMSKEIÐ MEÐ
26.-28 júní
íþróttahúsi Digranesskóla
v/ Digranesveg
Hefst föstudag kl. 19.
••••••••••••••••••••»
Vertu meö -
og njóttu þess alla cevi!
•••••••••••••••••••••
Verb kr. 8.000,- (hjón kr. 14.000,-)
Upplýsingar í síma 679181.
HEIMSLJÓS
Kripalujóga ó íslandi.
BOSCH
V E R S L U N
Lágmúla 9 sími 3 88 20
RAFSTÖÐVAR
>
>
K
I
>
SACHS
HÖGGDEYFAR - KÚPLINGAR - DISKAR
Eigum fyrirliggjandi Sachs
höggdeyfa, kúplingar og
kúplingsdiska í allar helstu
tegundir evrópskra og
japanskra fólks- og vörubíla.
Útvegum alla fáanlegar
kúplingar og höggdeyfa
með hraði.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
(FftLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 S(MI 814670
ALLT AÐ 30%
LÆ K K U N
0,67 kw 49.114 stgr.
1,90 kw 62.627 Stgr.
2,15 kw 55.456 stgr.
3,00 kw 80.741 stgr.
3,40 kw 1 fasa 3,80 kw 3 fasa 115.446 stgr.