Skírnir - 01.01.1869, Blaðsíða 177
Noregui.
FEJETTIB.
177
J>eim þykja kenningar Jaabæks bæSi einleitar og sjálfum sjer ósam-
kvæmar. Bændavinir þykjast allra manna frjálslyndastir, vilja
hnekkja embættismanna stjórn, og svo frv., en þó eru þaÖ þeir
sem standa í móti trúarfrelsi, í móti kvibdómum, og hafa veriS
mótfallnir árlegu þinghaldi. — 6. okt. gengu NorSmenn á þing,
og má af því ráSa, undir hverjnm menn vilja enn mest eiga, aö
næstum helmingur „lögþingsins* — eSa 13 af 28 — valdist úr
tölu embættismanna. þingiS hefir þegar orSiS sögulegra en flest
en fyrri, aS því leyti, aS nú hefir loks eitt af enum tíSræddu
frumvarpsmálum komizt fram — eSur sú breyting þingskapanna,
aS þing skal haldiS hvert ár í staS þess, sem áSur hefir veriS,
hvert þriSja. Nærri má geta, aS skörungar þingsins mundu leiSa
saman hesta sína í þessu máli, enda báru umræSurnar sýnasta
vott um málsnilld þeiira og atfylgi, og hitt eigi síSur, aS öll at-
riSi málsins voru nú gagnrannsökuS. Schweigaard prófessor hefir
veriS áSur málinu fylgjandi, en snerist nú á móti, og færSi þaS
einkanlega til, aS „ríkismálin mundu eptir þessar breytingar koma
á vald annara (bændanna), en þau væru nú“. Aschehoug (próf.)
kvaS breytingunni verSa aS fylgja meira, eSa tvídeiid þingsins
meS öSrum hætti en þeim, er nú væri á. J. Sverdrup átti mestan
þátt aS framgöngu málsins, sem aS öSrum þingmálum, en fæst
mál bera þar sigur úr býtum, ef hann leggur á móti. þeim manni
er hvorttveggja jafngefiS, skarpt skyn og afburSa mælska. Hann
leiddi mönnum fyrir sjónir, hverja nauSsyn nú bæri til nýmælanna,
eptir þaS aS Svíar hefSu lögleiSt árlegt þinghald, og hversuNorS-
menn mundu standa ójafnt aS afskiptum utanrikismálanna, og verSa
utan viS ailar tillögur um þau mál, ef þeir hjeldu þingsköpura
sinum óbreyttum. þeir mundu, meS öSrum orSum, skjótt finna,
aS jafnrjetti eSa jafnir burSir Noregs viS SvíþjóS mundi ekki verSa
annaS en þaS, „ er á pappírinn væri komiS11, en markmiS NorS-
manna yrbi þó engu síSur aS vera ráSasamneyti á NorSurlöndum,
en stjórnarforræSi innlendra mála. Nýmælin gengu fram meS 80
atkv. gegn 30. þegar Sverdrup kom út úr þingsalnum, var þar
mikill mannmúgur fyrir og tók á móti honum meS fagnaSarópi:
„í dag verS eg“, sagSi hann, „aS telja mjer þaS til fremdar, aS
eg hafi staSiS frammi fyrir því máli ættjarSar minnar, er hana
12