Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1994, Side 51

Bókasafnið - 01.04.1994, Side 51
ar um fyrirtæki berast í gegnum lögboðna skráningu fyrir- tækja, sameignarfélaga, hlutafélaga og samvinnufélaga. Skrár Hagstofu Islands og Hlutafélagaskrá eru opnar al- menningi. Hægt er að leita beint í gagnasöfnum Hagstof- unnar gegnum SKYRR, en Hlutafélagaskrá verður að skoða á staðnum. Önnur mikilvæg frumheimild um fyrirtæki eru ársskýrslur, mörg stærri fyrirtæki nota ársskýrslur sem hluta af markaðssetningu og kynningu á fyrirtækinu. Einnig birt- ast tilkynningar og fréttir í dagblöðum landsins um af- komu og starf- semi fyrir- tækja. Ymsar skrár eru til sem vinna úr þessum frum- gögnum, eins og Kompass skráin fyrr- nefnda. Upp- lýsingar um fjárhagsstöðu fyrirtækja eru mjög mikil- vægar áður en viðskipti geta farið fram. Er- lendis eru fyr- irtæki sem sér- hæfa sig í slíkri upplýsingamiðlun. Hér á landi birtast ár- lega listar yfir fjárhagsstöðu stærstu fyrirtækjanna í tímarit- inu Frjáls verslun og flestra hlutafélaga í ársritinu íslenskt atvinnulíf. Markaðsupplýsingar eru upplýsingar um ferli mark- aðssetningar, þ.e. framleiðslu, verð, kynningu, auglýsingar, og dreifingarkerfi. Upplýsingaþörfin beinist aðallega að mörkuðum, framleiðslunni og þjónustu. Helstu heimildir um markaðssetningu eru neytendakannanir og rannsóknir, einnig opinberar tölulegar upplýsingar. Hér á landi eru bæði opinberar stofnanir og einkafyrirtæki sem framkvæma markaðskannanir, eins og Félagsvísindastofnun og Hag- vangur. Markaðsathuganir, þar sem unnið er úr frumheim- ildum, eru mjög mikilvæg gögn. Utflutningsráð íslands hefur t.d. gert slíkar athuganir um markaðshorfur íslenskra afurða á erlendri grund. Ekkert nýlegt heildaryfirlit er til yfir útgefendur töl- fræðiupplýsinga hérlendis, en helstu opinberu útgefendur eru Hagstofa íslands, Þjóðhagsstofnun og Seðlabanki ís- lands. Vert er að benda á ritið Landshagi frá Hagstofu ís- lands sem er hafsjór tölulegra upplýsinga. Auglýsingamælingar er tiltölulega ný þjónusta hér á landi, sem fyrirtækið Miðlun sér um. Auglýsingar í fjöl- miðlum, tímaritum og sjónvarpi eru mældar eftir fyrirtækj- um, efnisflokkum, o.fl. Þetta eru mikilvægar samkeppnis- upplýsingar sem eru nú í fyrsta skipti aðgengilegar í skipu- legu formi. Flestar af stærri atvinnugreinum landsins gefa út tímarit eða fréttabréf. I þessum heimildum eru ýmsar upplýsingar um markaðsmál. Ekkert heildaryfirlit er til yfir efni ís- lenskra tímarita. Það stendur þó til bóta, m.a. er verið að vinna að greinasafni í Gegni, tölvukerfi Þjóðarbók- hlöðusafnanna þ.e. Háskóla- og Landsbókasafns, einnig er nýkominn út íslenskur tímaritalykill, yfir efni íslenskra tímarita, útgefin 1991 af Lindinni hf. Framleiðsluupplýsingar eru upplýsingar um hver fram- leiðir ákveðna vöru eða þjónustu, einkaleyfi eða vörumerki. Upplýsingar um íslenska framleiðslu og þjónustu eru nauðsynlegar til að geta staðsett ákveðna framleiðslu, vöru- merki eða einkaleyfi, eða til að finna vöru með ákveðnum einkennum. Mikið er gefið út af þjónustu- og vöruskrám (bæklingum), þetta er mjög fjölbreyttur og óstaðlaður flokkur og því erfitt að meðhöndla hann. Stærri iðnsam- tök hafa mörg hver tekið saman yfirlit yfir framleiðslu og þjónustu sinna félaga, útgef- endur hafa einnig gefið út heildarskrár eins og Islensk fyrirtœki og Kompass. Slíkar skrár eru góð uppflettirit. Vörumerki og einkaleyfi eru skráð hjá Einkaleyfa- stofu, sem gefur mánaðarlega út fréttabréf auk ársrits. Hagfræðilegar almennar upplýsingar, upplýsingar um framkvæmdir stjórnvalda, þjóðhagsspár o.fl. eru nauðsyn- legar í viðskiptaheiminum til að geta spáð fyrir um fram- tíðina og gert langtímaáætlanir. Opinberar stofnanir eins og Þjóðhagsstofnun gefur ár- lega út þjóðhagsáætlun. Alþingistíðindi, Lögbirtingablaðið og Stjórnartíðindi eru heimildir um framkvæmdir hins op- inbera. Einnig eru dagblöðin mikilvægur miðill um al- mennt ástand í þjóðfélaginu. Þess má geta að nýverið opn- aðist beinlínuaðgangur að gagnasafni Morgunblaðsins í gegnum gagnagrunninn Hafsjó, sem fyrirtækið Strengur hf. sér um. Staða íslenskra viðskiptaheimilda Eitthvað er til af íslenskum heimildum í öllum fimm efnisflokkum viðskiptaupplýsinga, þó mis ítarlegar. Það sem helst vantar er útgáfa annars stigs heimilda, þ.e. þar sem unnið er úr frumheimildum, sérstaklega í markaðs- og framleiðsluupplýsingum. Skortur á heimildum er e.t.v. ekki stærsta vandamálið í miðlun viðskiptaupplýsinga hér á landi, heldur skortur á bókfræði- og leiðbeiningaritum um hvað er til af viðskipta- heimildum og hvar hægt er að nálgast viðkomandi gögn. Það er mun auðveldara og aðgengilegra að finna erlendar viðskiptaupplýsingar en íslenskar. Ástæðurnar eru einkum eftirfarandi: viðskiptaheimildir eru í mjög mismunandi formi, bæklingar, fréttabréf, dagblöð, tímarit, ársskýrslur, bækur o.fl. Oft eru þetta gögn sem erfitt er að halda utan um og fara ekki inn í hina árlegu bókaskrá Landsbókasafns, skv. reglum hennar. Heildarskrá yfir íslensk tímarit hefur ekki enn verið gef- in út. Því verður öll Ieit að tímaritum í ákveðnum efnis- flokki mjög tilviljanakennd. Einnig skapar það astand sem er í tímaritaútgáfu hér, þ.e. margir smáir útgefendur, erfið- leika við að finna út hvar hægt er að nálgast ákveðin tíma- rit. Ekki er heldur til heildarskrá yfir efni íslenskra tímarita, Bókasafhið 18. árg. 1994 51

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.