Morgunblaðið - 05.11.2004, Blaðsíða 4
EFTIR fimm ára aðdraganda verð-
ur á næstu vikum byrjað að bora
fyrstu djúpborholuna hérlendis sem
vonir standa til að geti gefið allt að tí-
falt meiri orku en venjuleg borhola á
háhitasvæði. Stefnt er að því að bora
þrjár djúpar borholur eða IDDP-
holur (Iceland Deep Drilling Proj-
ect) á næstu 15 árum og verður byrj-
að á þeirri fyrstu í þessum mánuði á
vinnslusvæði Hitaveitu Suðurnesja á
Reykjanesi.
Borað verður í þremur áföngum á
næstu þremur árum, fyrst niður á
2,7 km dýpi, en síðan verður holan
dýpkuð í tveimur áföngum, fyrst í 4
km og loks niður á 5 km dýpi. Það
sem verið er að slægjast eftir er 4–
600 gráða heit háhitagufa, en til sam-
anburðar er venjuleg háhitagufa um
240–280 gráða heit. Þess er vænst að
IDDP-holurnar geti gefið allt að 50
megawött hver, en til samanburðar
er meðalafl venjulegrar borholu 4–5
mw.
„Tilgangurinn er að sjá hvort við
getum fundið jarðhita í svokölluðu
yfirmarksástandi,“ segir Guðmund-
ur Ómar Friðleifsson, jarðfræðingur
hjá Íslenskum orkurannsóknum,
ISOR. „Við sjáum fyrir okkur hugs-
anlega margfalda aukningu afls upp
úr háhitasvæðunum. Málið er því
stórt og varðar orkubúskap þjóðar-
innar sem gæti leitt til endurmats á
orkuforða þjóðarinnar. Málið snýst
um hvort unnt sé að ná í slíka orku
og vinna hana með hagkvæmum
hætti.“
Allt að 1,5 milljarðar
á hverja holu
Ein IDDP-hola kostar 1–1,5 millj-
arða króna og veltur framkvæmd
verkefnisins á næstu árum á því
hvort tekst að afla verkefninu nægi-
legs fjár. Hitaveita Suðurnesja,
Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkj-
un og Orkustofnun standa að verk-
efninu með ráðgjöf ISOR, VGK
verkfræðistofu og öðrum ráðgjöfum
innlendum og erlendum
Guðmundur Ómar segir verkefnið
ekki síður áhugavert á alþjóðlegum
vettvangi þar sem yfirfæra megi
reynsluna héðan á háhitasvæði víðs-
vegar um heiminn. Ísland sé ákjós-
anlegur tilraunastaður sökum þess
hve grunnt er niður á mikinn hita.
„Stóru spurningarnar snúast um
Borun á 5 km dýpi eftir 4–600 gráða heitri gufu
gæti leitt til endurmats á orkuforða þjóðarinnar
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
Kröfluvirkjun. Háhitasvæði gætu verið dýrmætur orkugjafi framtíðarinnar.
vatnslekt og hitann,“ segir hann.
„Við erum vissir um hitann en ekki
eins vissir um vatnsmagnið.“
Nýtum okkur lifandi kerfi
Hann segir jarðskjálfta leika mik-
ilvægt hlutverk í þessu sambandi en
flestir skjálftanna eiga sér upptök á
4–6 km dýpi. Við hvern skjálfta opn-
ast sprunga sem vatn og gufa kemst
um og tekur í sig varma úr heitu
berginu. „Við erum að tala um virk
kerfi þar sem sprungurnar eru að
myndast og erum því að nýta okkur
lifandi kerfi þar sem jarðskjálftar og
jarðskorpuhreyfingar sjá okkur fyr-
ir sprungum og regn og haf sjá okk-
ur fyrir vatni. Eldfjöllin sjá okkur
fyrir hitanum og því er ekki fjarri
lagi að kalla þetta einskonar eilífð-
arvél meðan hjarta jarðar slær. Nú
erum við að skyggnast dýpra í rætur
kerfanna og ná gufunni upp í há-
orkuformi með margföldu afli.
Þetta verkefni er í eðli sínu mjög
umhverfisvænt t.d. í þeim skilningi
að hægt er að sækja meiri orku á nú-
verandi vinnslusvæði.“
Guðmundur Ómar segir að svona
aflmiklar borholur séu þegar til og
nefnir holur í Salton Sea í Bandaríkj-
unum sem gefa 40–50 mw við góðar
aðstæður. „Með sama hætti ætti að
vera hægt að taka annað eins afl upp
úr íslenskum borholum ef vökva- og
hitamagn er nægilegt. Þetta þarf því
ekki að vera fjarlægur draumur ef
fjármagn fæst til að kanna rætur há-
hitasvæðanna.“
Byrjað á fyrstu djúpbor-
holunni á næstu vikum
4 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bubbi Morthens Robert Jackson
Spennandi saga um síðustu ferð
Stórlax upp í heimaána sína og
unglaxana Ugga og Unu sem eru að
fara í ferðina miklu í fyrsta sinn.
Laxveiðimennirnir
Bubbi Morthens og
Robert Jackson skapa
ógleymanlegar
persónur úr íbúum
Djúpríkisins sem lifna
við á síðunum í
bráðskemmtilegum
myndum Halldórs
Baldurssonar.
edda.is
KVIKMYNDAÁHUGI Íslendinga
var til umfjöllunar í bandaríska
dagblaðinu The New York Times í
gær. Þar kemur fram að Íslend-
ingar fari oftar í kvikmyndahús en
aðrar þjóðir, jafnvel oftar en
Bandaríkjamenn, sem eru í öðru
sæti og Ástralar sem eru í því
þriðja.
Kemur fram í greininni að Íslend-
ingar fari að meðaltali 5,4 sinnum á
ári í bíó. Í greininni segir höfundur
frá því þegar hann fór í kvikmynda-
hús á Íslandi á laugardagskvöldi.
Þar hitti hann þrjár 14 ára íslensk-
ar stúlkur sem voru að reyna að
komast inn á kvikmyndina
Anacondas: The Hunt for the Blood
Orchid. Var þeim bent á að þær
væru of ungar, enda myndin bönn-
uð yngri en 16 ára. Segir grein-
arhöfundur, Jason George, að þrátt
fyrir að tvær íslenskar myndir
væru sýndar í þessu kvikmyndahúsi
ákváðu stúlkurnar að halda heim á
leið og horfa frekar á sjónvarpið,
enda væri að þeirra sögn lítið varið
í íslenskar kvikmyndir. Segir hann
frá því að ein stúlknanna hafi tekið
hlé frá því að skrifa SMS-skilaboð
til þess að segja honum að ungling-
ar færu ekki á íslenskar kvikmynd-
ir. Enda væru þær fyrir eldra fólk.
Í greininni er einnig fjallað um þá
viðleitni íslenskra stjórnvalda að
laða að erlenda kvikmyndagerð-
armenn.
Í greininni er rætt við kvik-
myndagerðarmanninn Sigurjón
Sighvatsson sem segir að ákvörð-
unin um að taka kvikmyndina A
Little Trip to Heaven á Íslandi
byggist á breyttum skattareglum á
Íslandi. Áður en breytingarnar
komu til hafi átt að taka alla mynd-
ina upp í Bandaríkjunum.
Að sögn Sturlu Gunnarssonar
kvikmyndagerðarmanns, sem er að
taka kvikmyndina Bjólfssögu á Ís-
landi, elskar hann að kvikmynda á
Íslandi. Enda aðstæður hér ein-
stakar sem og landslagið, að sögn
þessa vestur-íslenska kvikmynda-
gerðarmanns.
Bíóþjóðin Ísland til umfjöllunar í The New York Times
Morgunblaðið/Þorkell
Baltasar Kormákur og Sigurjón Sighvatsson við tökur A little trip to heaven.
Ungling-
arnir velji
ekki
íslenskt
STYRKTARFÉLAG vangef-
inna mun standa fyrir ráðstefnu
12. nóvember nk. um framtíðar-
sýn í öldrunarþjónustu við fólk
með þroskahömlun, á Grand
Hóteli í Reykjavík, undir yfir-
skriftinni „Átaks er þörf“.
Félagið telur nauðsynlegt að
benda á að öldruðum fer fjölg-
andi í þessum hóp í þjóðfélaginu,
því með bættum aðbúnaði hefur
heilsufar batnað mikið hin síð-
ustu ár. „Við þessu þarf að
bregðast varðandi þjónustu í nú-
tíð og framtíð. Stjórn félagsins
ákvað því að efna til ráðstefnu
um málefnið og mun hún koma í
stað haustfundar félagsins, seg-
ir í tilkynningu.
Við upphaf ráðstefnunnar
mun Árni Magnússon félags-
málaráðherra flytja ávarp, en
fjöldi fyrirlestra verður haldinn
á ráðstefnunni.
Dagskrá ráðstefnunnar má
nálgast á heimasíðu félagsins:
www.styrktarfelag.is.
Félagið hvetur fagfólk og for-
eldra eindregið til að sækja
þessa ráðstefnu.
Öldruðum
með þroska-
hömlun fer
fjölgandi
DR. SHIRIN Ebadi, friðarverð-
launahafi Nóbels, og Davíð Oddsson
utanríkisráðherra áttu fund saman í
Ráðherrabústaðnum síðdegis í gær
en Ebadi er hingað komin til að taka
við heiðursdoktorsnafnbót fé-
lagsvísinda- og lagadeildar Háskól-
ans á Akureyri.
Ebadi sagði eftir fundinn að við-
ræður hennar og ráðherrans hefðu
verið góðar og gagnmerkar og þau
hefðu rætt vítt og breitt um lýðræði
og mannréttindi. „Við ræddum um
rætur hryðjuverka í heiminum í dag
og hvað hægt er að gera til að kom-
ast að grundvallarniðurstöðu til að
leysa vandann,“ sagði hún.
Ebadi heimsótti Þingvelli í gær
og fékk ágrip af sögu staðarins frá
Sigurði Líndal, fyrrum lagaprófess-
or.
Edadi sagði Nóbelsverðlaunin
hafa opnað ýmsar alþjóðlegar dyr
fyrir sig en þetta er í fyrsta sinn sem
hún kemur hingað til lands. Hún
kvaðst hlakka til að hitta íslenska
stúdenta við Háskólann á Akureyri
sem hún mun ræða við í dag.
Dr. Shirin Ebadi friðarverðlaunahafi og
Davíð Oddsson utanríkisráðherra funduðu
Morgunblaðið/Sverrir
Ræddu vítt og
breitt um lýðræðið
HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær ís-
lenska ríkið af kröfu Spalar hf. sem
krafðist ógildingar á úrskurði yfir-
skattanefndar þar sem félaginu var
gert að standa ríkissjóði skil á virð-
isaukaskatti af skilagjaldi, sem það
krafði viðskiptavini sína um við af-
hendingu svokallaðra veglykla.
Spölur sér um rekstur Hvalfjarð-
arganganna en lykillinn nýttist Speli
til að fylgjast með ferðafjölda við-
skiptavinar, segir í dómi Hæstarétt-
ar.
Afhending veglykils var háð því að
skilagjald væri greitt. Að mati
Hæstaréttar var skilagjaldið talið
standa í slíkum tengslum við sölu á
skattskyldri þjónustu félagsins að
telja yrði það til skattverðs þjónust-
unnar.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar
Gíslason og Hrafn Bragason. Hall-
dór Jónsson hrl. flutti málið fyrir
Spöl og Skarphéðinn Þórisson rík-
islögmaður fyrir ríkið.
Skilagjald veglykla talið til
skattverðs þjónustu Spalar