Morgunblaðið - 05.11.2004, Blaðsíða 20
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Gúmmísandur til vandræða | Nem-
endur Grunnskóla Borgarness eru byrjaðir
að nota gervigrasvöllinn sem gerður hefur
verið við skólann. Á vef
skólans kemur fram að al-
menn ánægja virðist með
völlinn. Hins vegar fylgi
notkuninni einn ann-
marki.
Töluvert gúmmíkurl
festist í skóm og fötum
þeirra er æfa og leika á vellinum og berst
síðan inn í hús. Þetta gúmmí er ekki talið
gott fyrir þvottavélar og er því beint til
barnanna að hrista vel úr fötunum áður en
þau eru sett í þvott. Jafnframt er sú von lát-
in í ljósi að vandamálið minnki eftir því sem
fram líða stundir.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Bjartsýnir íbúar | Í nýlegri könnun
Rannsóknastofnunar Háskólans á Ak-
ureyri kom fram að 35% íbúa Þingeyj-
arsveitar hafa mjög mikla trú og önnur
49% frekar mikla trú á jákvæðri þróun
síns byggðarlags á næstu árum. Samtals
segjast því 84% íbúa sveitarfélagsins trúa
á að þeirra byggðarlag muni þróast með
jákvæðum hætti á komandi árum. Þetta
kemur fram í frétt á vef sveitarfélagsins
og þess jafnframt getið að sambærileg
tala fyrir Akureyri sé 81%.
Nánar verður greint frá könnun þessari
þegar frekari niðurstöður liggja fyrir en
ljóst er að íbúar Þingeyjarsveitar bera
höfuðið hátt og eru bjartsýnir sem er afar
gott veganesti inn í framtíðina. „Við viss-
um svo sem að við værum bjartsýn en nú
er það vísindalega sannað!“ segir í frétt-
inni.
Kynning á Siglufirði | Samtökin Lands-
byggðin lifi heldur kynningarfund á Kaffi
Torgi á Siglufirði í kvöld, föstudag, kl. 19.
Þetta er hreyfing fólks sem vill efla byggð
um land allt og er áhersla lögð á að tengja
fólk saman, mynda samstarfsvettvang fyrir
einstaklinga og áhugamannafélög sem hafa
á stefnu sinni að styrkja heimabyggðina. Á
fundinn koma Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur á Laugasteini í Svarf-
aðardal og Sveinn Jónsson bóndi á Ytra-
Kálfsskinni á Árskógsströnd. Vikublaðið
Tunnan býður upp á siglfirska súpu, að því
er fram kemur í tilkynningu.
Öll tilboð sem bárustí loftskiljutank oglagnir fyrir Hita-
veitu Eskifjarðar voru yfir
kostnaðaráætlun verk-
kaupans. Alls bárust fimm
tilboð.
Kostnaðaráætlun var
upp á rúmar 13,5 milljónir
króna, að því er fram kem-
ur í frétt á vef Fjarða-
byggðar. Það tilboð sem
næst kom áætluninni var
frá Hamri ehf. og var upp
á tæpar 19,9 milljónir
króna eða 47% yfir áætl-
un. Þá kom tilboð frá Véla-
verkstæði Sigurðar upp á
24,4 milljónir, Dalhús
bauð 24,8 milljónir, Slipp-
stöðin 26,7 milljónir og
SR-Vélaverkstæði bauð
hæst, 28,4 milljónir sem er
meira en tvöföld kostn-
aðaráætlun.
Nú er verið að yfirfara
tilboðin og mun bæjarráð
Fjarðabyggðar taka
ákvörðun um framhaldið á
næsta fundi sínum.
Yfir áætlun
Félagsþjónustan íHraunbæ 105 íReykjavík verður
með sinn árlega basar á
morgun, laugardag. Þar
er til sýnis og sölu margt
fallegra muna sem þátt-
takendur í félagsstarfi
eldri borgara hafa gert
að undanförnu. Þar verða
prjónavörur, bútasaum-
ur, dúkkur, púðar, svunt-
ur, kort, rekaviður og
margt fleira. Einn þátt-
takandinn í félagsstarfi
eldri borgara í Hraunbæ
105, Steingerður Þor-
steinsdóttir, stendur við
sýnishorn af handavinn-
unni.
Handavinna á basar
Valdimar Böðv-arsson (1883–1963), bóndi á
Butru í Fljótshlíð, safnaði
lausavísum og orti nokk-
uð sjálfur.
Í Goðasteini, héraðsriti
Rangæinga, eru birtar
fimm vísur sem hann orti
1950 þegar hann sótti um
ellilaun:
Ellin beygir anda minn,
er það meginsiður.
Að mér teygir arminn sinn,
öllum fleygir niður.
Það eru lúin þessi bein,
það er flúinn hugur.
Að mér snúa margföld mein,
minn er búinn dugur.
Hef ég skalla og hárin grá
hægt er varla að dylja.
Bakið gallað, brjóstið frá,
brestur allan vilja.
Ævi hallar óðfluga,
ýmsir gallar baga.
Taugar allar aflaga,
ekki er falleg saga.
Margt ótalið er víst enn
andar svala húmið.
Heilsukvalinn hátta senn
í hinsta dvalarrúmið.
Sótt um ellilaun
frett@mbl.is
Mýrdalur | Bændur eru að ljúka
uppskerustörfum á þessu
hausti. Rófnauppskeran er með
besta móti, að því er framleið-
endur segja fréttaritara. Tví-
burabræðurnir Þorgeir og Ein-
ar Guðnasynir voru að aðstoða
við rófnaupptöku í Þórisholti í
Mýrdal þegar þeir fundu risa-
stóra gulrófu. Þeir voru stoltir
þótt rófan hefði skaddast eitt-
hvað í upptökuvélinni.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Aðstoða við rófnaupptöku
Uppskera
Hafnarfjörður | Alcan á Íslandi hefur
keypt landspildu við álverslóðina af Hafn-
arfjarðarbæ fyrir um 34 milljónir króna.
Um er að ræða 10.350 fermetra land sem
liggur að hafnarsvæðinu. Innan þess er ný
skrifstofubygging Alcan sem vígð verður í
dag, föstudag.
Í tilkynningu frá Alcan segir að ekki sé
ráðgert að byggja frekar á landinu heldur
verður þetta útivistar- og afhafnasvæði
fyrirtækisins. Stefna Alcan sé að eiga og
hafa yfirráðarétt yfir öllu því landi þar sem
starfsemi þess fari fram. Með kaupunum af
Hafnarfjarðarbæ sé tryggt að í kringum
nýjar höfuðstöðvar í Straumsvík verði ekki
starfsemi óskyld rekstri Alcan.
Alcan kaupir
land í
Straumsvík
Fljótsdalshérað | Á fyrsta fundi bæj-
arstjórnar sameinaðs sveitarfélags Aust-
ur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Hér-
aðs, sem haldinn var í fyrradag, var
samþykkt að sveitarfélagið heiti Fljóts-
dalshérað.
Soffía Lárusdóttir, D-lista, var kjörin
forseti bæjarstjórnar og Skúli Björnsson,
L-lista, formaður bæjarráðs. Samþykkt
var að ganga til samninga við Eirík Björn
Björgvinsson, fráfarandi bæjarstjóra
Austur-Héraðs, í stöðu bæjarstjóra.
Samþykkt var með 7 atkvæðum meiri-
hlutans, tillaga að nýju skipuriti fyrir
Fljótsdalshérað, en Björn Ármann Ólafs-
son, B-lista, lagði fram bókun, í fram-
haldi af atkvæðagreiðslunni. Þar kemur
fram að B-listinn greiði atkvæði á móti
skipuritinu þar sem það sé ekki í sam-
ræmi við málefnaskrá vegna sameining-
ar. Einnig liggi ekki fyrir útreikningar á
kostnaði vegna framkvæmda skipuritsins
og þá verði ekki séð hver skilvirkni milli
nefnda og bæjarstjórnar verði.
Í kjölfar bókunar B-lista lagði meiri-
hlutinn fram bókun þar sem segir að öll-
um nefndum verði sent ýtarlegt erind-
isbréf. „Fyrir liggur að fjölgun á
stöðugildum, miðað við Austur-Hérað,
eru fyrst og fremst tímabundin vegna
sameiningar og mikillar uppbyggingar á
svæðinu,“ segir í bókun meirihlutans.
Eiríkur Bj.
Björgvinsson
bæjarstjóri
♦♦♦