Morgunblaðið - 05.11.2004, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Sneiddur ostur
í n‡jum umbú›um
Endurlokanlegar
umbúðir
ÍBÚAR í Grundarfirði eru bjartsýnastir
allra á norðanverðu Vesturlandi og Norður-
landi vestra, ef marka má nýja rannsókn
Byggðarannsóknastofnunar Íslands á Akur-
eyri um tengsl samfélagsanda og nýsköpun-
arstarfs í þessum landshlutum.
Samkvæmt könnun sem stofnunin gerði
sögðust 87% Grundfirðinga vera bjartsýn á
framtíð síns byggðarlags hvað varðar at-
vinnuþróun. Þar af voru 53% mjög bjartsýn
og 34% íbúanna frekar bjartsýn. Sker
Grundarfjörður sig nokkuð úr öðrum þétt-
býlisstöðum í könnuninni. Næstir voru
Hvammstangabúar, þar sem 11% voru mjög
bjartsýn á framtíðaratvinnuhorfur og 63%
voru frekar bjartsýn. Grundfirðingar reynd-
ust einnig bjartsýnastir er þeir voru spurðir
um upplifun af afstöðu fólksins í byggðarlag-
inu. Rannsóknina má nálgast á vef Byggða-
rannsóknastofnunar, www.brsi.is.
Grundfirð-
ingar allra
bjartsýnastir
ÍSAK Ríkharðsson, ellefu ára gamall drengja-
sópran, verður meðal einsöngvara á tón-
leikum Mótettukórs Hallgrímskirkju í kirkj-
unni á allra heilagra messu, nk. sunnudag, kl.
20. Á efnisskrá eru sálumessur eftir tvo Frans-
menn, Gabriel Fauré og Maurice Duruflé. Er
þetta í fyrsta sinn sem kórinn leggur til atlögu
við sálumessu Faurés en áratugur er síðan
hann söng sálumessu Duruflés á tónleikum.
Það var Ísak sem hafði orðið þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að garði á æf-
ingu í gær en það er mál manna að hann gefi
atvinnusöngvurunum, sem einnig syngja ein-
söng á sunnudag, Sesselju Kristjánsdóttur og
Magnúsi Baldvinssyni, lítið eftir.
Morgunblaðið/Kristinn
Ellefu ára einsöngvari
RANNSÓKNARNEFND flug-
slysa, RNF, skráði í fyrra 454 frá-
vik í flugi íslenskra loftfara hér-
lendis og erlendis og í flugi
erlendra loftfara um íslenska lög-
sögu. Nefndin skoðaði 76 frávik-
anna nánar og tók af þeim 41 mál
til formlegrar meðferðar og rann-
sóknar. Slysin voru fjögur og flug-
atvikin 37.
Árið 2002 skráði RNF á sama
hátt 93 atvik og tók nefndin 38 at-
vik eða alvarleg flugslys til með-
ferðar. Þormóður Þormóðsson
rannsóknarstjóri segir að fjölgun
mála milli ára megi að nokkru
leyti skýra með mikilli fjölgun á
stórum þotum í flugflotanum og
meiri umsvifum flugfélaganna og
mun fleiri tilkynntum atvikum frá
flugrekendum sem leggi sífellt
meiri áherslu á að skrá frávik.
Segir Þormóður það ekki síst eiga
við um atvik sem tengjast
árekstravörum flugvéla.
Reglur mæla fyrir um að skrá
og tilkynna skuli flugatvik og flug-
umferðaratvik þar sem legið hefur
við slysi en Þormóður segir flug-
rekendur setja sér hærri staðla en
reglur kveði á um. Kemur það m.a.
fram í grein Hafþórs Hafsteins-
sonar, forstjóra Atlanta, sem birt
er í ársskýrslu RNF.
Atvik getur verið
undanfari slyss
Í grein sinni segir Hafþór m.a.
að ekki sé nóg að tilkynna atvik
þar sem legið hafi við slysi því at-
vik sem virðist lítil þegar þau ger-
ast geti verið undanfari slyss sé
ekki á þeim tekið. „Þessi atvik
koma ekki til skoðunar, hvorki hjá
flugrekendum né flugmálayfir-
völdum. Þessu viljum við breyta
og til að ná þessu marki hefur Air
Atlanta sett sér hærri staðla varð-
andi það sem tilkynna ber innan
félagsins. Til að úr gæti orðið varð
að skapa umhverfi þar sem starfs-
menn eru hvattir til að tilkynna öll
atvik, hversu smávægileg sem þau
eru, og þeim ekki refsað eða
dregnir til ábyrgðar þótt mistök
séu gerð.“ Segir Hafþór ennfrem-
ur að með því að fá slík atvik til-
kynnt sé unnt að draga af þeim
lærdóm og eru þau sett í gagna-
banka hjá félaginu og unnið úr
þeim. Kemur og fram að fleiri ís-
lensk flugfélög séu að íhuga að
taka upp notkun á sams konar
gagnagrunni.
Rannsóknarnefnd flugslysa á Íslandi
Margfalt fleiri
frávik í flugi skráð
Setja/11
HÁSKÓLARÁÐ samþykkti á fundi sínum í
gær að Þjóðarbókhlaðan yrði opin á kvöldin
frá og með næsta mánudegi. Afgreiðslutími
safnsins var styttur fyrr
á árinu og tók sú ákvörð-
un gildi þegar skóli byrj-
aði í haust.
„Þetta er sigur fyrir
stúdenta,“ segir Jar-
þrúður Ásmundsdóttir,
formaður Stúdentaráðs
Háskóla Íslands, og
kveðst hún vera afar
ánægð með samþykkt
ráðsins. Hún segir stúd-
enta sýna því fullan
skilning að háskólinn sé aðþrengdur fjár-
hagslega en í þessu tilviki sé um að ræða
grunnþjónustu við nemendur sem megi
ekki skera niður.
Í fréttatilkynningu frá Stúdentaráði Há-
skóla Íslands segir m.a. að: „Stúdentaráð
Háskóla Íslands undir forystu Vöku, and-
mælti þessari tilhögun og stóð meðal annars
fyrir mótmælastöðu við safnið í september.
Stúdentaráð fór að auki fram á að ákvörðun
Háskólaráðs um skertan opnunartíma yrði
endurskoðuð og var það gert á fundinum.
Dagana fyrir fundinn fór fram undirskrift-
arsöfnun meðal nemenda þar sem skorað
var á ráðið að fallast á tillögur stúdenta og
skrifuðu hátt á þriðja þúsund nemendur
undir áskorunina.
Í ákvörðun Háskólaráðs felst að Þjóðar-
bókhlaðan verður opnuð aftur frá og með
mánudeginum 8. nóvember og út árið en
málið verður endurskoðað í janúar og frek-
ari ákvarðanir teknar um framhaldið. Mikill
hugur er innan ráðsins um að halda safninu
opnu á kvöldin og leita lausna til að svo geti
orðið.“
„Sigur fyrir
stúdenta“
Þjóðarbókhlaðan
verður opin á kvöldin
Jarþrúður
Ásmundsdóttir
HVAÐ einkennir syfjaða framhalds-
skólanema? er heiti faralds-
fræðilegrar rannsóknar sem kynnt
var á þingi heimilislækna á Akureyri.
Kemur fram í niðurstöðum hennar að
dagsyfja sé algeng kvörtun meðal
unglinga og „tengist lífsstílsbreyt-
ingum sem telja verður óæskilegar
og muni í framtíðinni leggja grunn að
heilsufarsvandamálum og jafnvel
slysahættu,“ segir í útdrætti um
rannsóknina. Í niðurstöðum kemur
fram að unglinga hafi að meðaltali
vantað um eina klukkustund uppá að
svefnþörf væri fullnægt, einkum
virka daga.
Guðrún Gunnarsdóttir, einn
læknanna sem unnu að rannsókninni,
segir að lagður hafi verið ákveðinn
mælikvarði á syfju unglinganna og
hafi greinilega komið fram að dag-
syfja sé marktækt hærri með aukinni
vinnu með skóla. Þá hafi tæp 20%
unglinganna lent í árekstri sem öku-
menn og sé dagsyfja þeirra mark-
tækt meiri, einnig hjá þeim sem
reyki. Einnig eru talin sterk tengsl
milli dagsyfju og algengi áfeng-
isneyslu og merkja um áfengissýki og
að unglingar kvarti um kvíða og hafi
lélega sjálfsmynd. Guðrún segir að
stúlkur vanti að meðaltali um einn
klukkutíma á sólarhring uppá svefn
og pilta um 40 mínútur.
Sofa að með-
altali klukku-
stund of lítið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
♦♦♦
MIKIL framleiðniaukning á þessu
ári verður að teljast ánægjuleg tíð-
indi, að því er fram kemur í Frétta-
bréfi Samtaka atvinnulífsins.
Segir í Fréttabréfinu að starfandi
fólki á vinnumarkaði hafi fækkað á
undanförnum misserum samfara
miklum hagvexti. Nú stefni í að
framleiðniaukning á árinu verði 6%.
Þótt fækkun starfa sé áhyggjuefni sé
þessi mikla framleiðniaukning mjög
ánægjuleg tíðindi.
„Aukin framleiðni á alls ekki að
þurfa að leiða til aukins atvinnuleys-
is til lengri tíma,“ segir í Fréttabréf-
inu. „Aukin skilvirkni eykur arðsemi
fyrirtækja sem aftur leiðir til auk-
inna fjárfestinga. Fjárfestingarnar
auka tekjur annarra fyrirtækja og
skapa ný störf hjá þeim.“
SA segja að aukist framleiðni geti
kaupmáttur launa aukist, hagnaður
fyrirtækja og arður hluthafa og hvati
til fjárfestinga þar með einnig.
Framleiðnin eykst
Stefnir/14