Morgunblaðið - 01.05.2005, Page 27

Morgunblaðið - 01.05.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MAÍ 2005 27 Fyrir skemmstu var haldinárleg vika bókarinnar.Þarft framtak og gott.Einkum nú, þegar lesturer á undanhaldi og menn vega bækur í hendi og hugsa: Kemur þessi ekki bráðum á DVD? Ef ég hefði á uppvaxtarárunum getað setið eða legið fyrir framan skjá og látið endalausar sögur líða yfir sjáöldrin og framkallast samstundis og áreynslulaust sem tilbúnar myndir í heilabúinu, hefði ég án efa gert það. Ég gerði það líka eftir fremsta megni. Þáði bíóferðir í hvert sinn sem slíkt bauðst, sem var í nokkur skipti á ári og glápti af áfergju á sögur í svarthvítu sjónvarpi eftir að það kom á heim- ilið þegar ég var níu ára. Þegar ég fermdist má ætla að ég hafi séð tugi bíómynda og eitthvað meira af sjón- varpsþáttum, kannski hundrað. Ekki er það nú mikið miðað við þau býsn af kvikmyndaefni sem ungmenni sam- tímans hafa úr að moða. Það er auðvitað augljóst að vegna þess hve framboðið á þessari auð- neyttustu afþreyingu var lítið á sínum tíma, leituðu ég og jafnaldrar mínir að frekari afþreyingu og upplýsingu annars staðar, svo sem í útvarpi og í bókum, þar sem myndir af því sem frá er sagt eru alfarið innri sköpun neytandans og því meiri „vinna“ að njóta þess heldur en þegar mynd- irnar renna fullbúnar inn um augun. Það er enginn vafi á því að þessi skynjunar- og skilningsvinna þjálfaði hugann í þeim vinnubrögðum og gerði þau smám saman ósjálfráð og áreynslulaus. Því er það ekkert skrýtið að þau ár sem síðan eru liðin hef ég notað ómældan tíma í að lesa sögur eða annan texta af ýmsu tagi, auk þess að fást svo sjálfur við skrift- ir sem lifibrauð. Aldrei datt mér sjálf- um í hug að það væri erfitt eða kost- aði sérstaka áreynslu að fást við þennan tjáningarmiðil sem neytandi (þótt stöku gagnrýnandi hafi gert mann örlítið hugsi). En þannig er málið sannarlega vaxið út frá sjónarhóli ungmenna samtímans. Kannanir sýna að lestur minnkar sífellt og lestrarvandamál virðast sí- fellt algengari. Vitaskuld liggur skýr- ingin á auknum fjölda nemenda sem greinist með ýmis afbrigði lestrar- vanda að hluta til í betri og skjótari greiningu. Það er fagnaðarefni að nú skuli vera unnt að greina slíkt snemma og bregðast við. Á sínum tíma var fjöldi ungs fólks rændur sjálfstrausti og eðlilegum væntingum til lífsins, vegna þess eins að hann átti við lestr- arvanda að stríða. En ekki er unnt að skýra þann fjölda tilfella lestrarvandamála sem nú greinast einungis með því að nú sé betur fylgst með en áður. Sú stað- reynd virðist blasa við, að margir þeirra sem hafa vanist því frá frum- bernsku að geta skoðað sögur í stað þess að lesa þær, hafi sig varla í það „erfiði“ að umbreyta táknum á blaði í hugmyndir. Þetta eru vissulega að mörgu leyti eðlileg viðbrögð, eða aðlögun af hálfu mannskepnunnar. Eða er ekki eðli- legt að skynjunin renni, líkt og vatnið ávallt þá leið þar sem fyrirstaðan er minnst? Þegar upp er staðið er auð- vitað heldur engin heilög regla sem segir að lestur sé eitthvað æðri eða betri aðferð til að njóta sagna, hug- leiðinga, eða upplýsinga, heldur en sú að horfa á myndir á skjá. En tvennt veldur þó áhyggjum í þessu samhengi. Meðan allt mennta- kerfið byggir jafn mikið og raun ber vitni á bóklestri, er ljóst að lestr- arvandamál eða „lestraróþol“ geta reynst ungu fólki þung í skauti við að fóta sig í tilverunni nú sem fyrr. Og það sem er enn uggvænlegra. Getur verið að þessi þróun leiði með tímanum til vöðvarýrnunar ímynd- unaraflsins? Þess máttuga hugarafls sérhverrar manneskju sem um- breytir skynjun á einu formi í eitt- hvað annað sem er hennar eigin sköp- un. Ímyndunaraflið breytir rittáknum í myndir, orðum í sýnir, móum í höf, moldarbörðum í fjöll og garðslöngu í híbýli guðdómsins. Getur verið að í framtíðinni verði ástarstjarna yfir hraundranga til á mynd og enginn þurfi að ímynda sér hana lengur, bara að skoða myndina til að „vita“ hvern- ig hún lítur út? Smelltu hér til að skoða mynd af ástarstjörnu HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson: Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins SEAFOODplus, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (Rf), Háskóli Íslands (H.Í.), og sendiráð Frakklands á Íslandi boða til opins fundar föstudaginn 6. maí kl. 13.15-17.00 á Grand Hótel í Reykjavík um prótein og peptíð í aukafurðum og uppsjávarfiskum, lífvirkni og vinnslumöguleika Dagskrá: 13.15. Stutt ávörp: Oliver Tourneau, sendiráði Frakklands og Dr. Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Rf. 13.30. Yfirlit um SEAFOODplus verkefnið. Dr. Joop Luten frá Fiskeriforskning í Tromsö í Noregi og Rivo í Hollandi. 13.50. Rf og aukið verðmæti aukahráefnis og uppsjávarfiska. Dr. Sjöfn Sigurgísladóttir. 14.10 Næringargildi fisks. YOUNG- verkefnið. Dr. Inga Þórsdóttir, H.Í. 14.30 Kaffihlé. 15.00 Lífvirkni í vatnsrofnum fiskpróteinum. Dr. Fabienne Guerard University of West Brittanny og dr. Laurent Picot. University of LaRochelle, Frakklandi. 15.20 Aðferðir til vinnslu á próteinum og peptíðum til notkunar í matvæli. Dr. Patrick Bourseau, University of South Brittanny, Frakklandi og Ragnar Jóhannsson, Rf. 15.40 Markfæði úr fiski - Tækifæri, lög og reglur. Guðjón Þorkelsson, Rf. 16.00 Umræður. 17.00 Fundarlok. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Rf fyrir 5. maí í síma 530 8600, eða í netfangið gulla@rf.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.