Morgunblaðið - 01.05.2005, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MAÍ 2005 63
MENNING
GREEN TEA
FRÁ
Orka og vellíðan
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Nr. 1 í Ameríku
Góð heilsa - Gulli betri
-fyrir útlitið
HEILSUBÚÐIN
NJÁLSGÖTU
Karlakór Keflavíkur
heldur tónleika á eftirtöldum stöðum:
Í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 1. maí kl. 20
Í Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 2. maí kl. 20.30
Söngstjóri: Guðlaugur Viktorsson
Undirleikur: Sigurður Marteinsson á píanó
Juri og Vadin Fedorov harmonika
Þórólfur Þórsson bassi
Einsöngur
Steinn Erlingsson bariton og Davíð Ólafsson bassi
UMSÓKNIR NÝNEMA
Í HÁSKÓLA ÍSLANDS 2005-2006
Í Háskóla Íslands eru 11 deildir með um 80 mismunandi náms-
leiðum í grunnnámi. Allar deildirnar bjóða framahaldsnám
til meistara- og doktorsprófs. Upplýsingar um nám við Háskóla
Íslands er að finna í Kennsluskrá á www.hi.is.
Tekið verður við umsóknum nýnema í grunnnám til 5. júní.
Sótt er um með rafrænni umsókn á vefsetri Háskólans,
www.hi.is. Einnig er hægt að prenta út umsóknareyðublöð
af vefnum eða fá þau hjá Nemendaskrá í Aðalbyggingu
Háskólans.
Umsóknum skal fylgja staðfest afrit af stúdentsprófsskírteini.
Umsækjendur sem sækja um á vefnum senda fylgigögn í pósti
til Nemendaskrár Háskólans. Þeir sem ljúka stúdentsprófi í
vor skila fylgigögnum jafnskjótt og þau liggja fyrir.
Umsóknarfrestur rennur út 5. júní 2005.
Afgreiðsla umsókna og staðfesting
Stefnt er að því að ljúka afgreiðslu umsókna fyrir 30. júní.
Öllum umsóknum verður svarað. Þeim sem býðst skólavist
verður sendur greiðsluseðill skrásetningargjalds kr. 45.000.
Inntökuskilyrði
Stúdentar sem hefja nám í Háskóla Íslands skulu hafa lokið
stúdentsprófi, eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum
skóla. Almennt er áskilið að stúdentspróf sé af bóknámsbraut,
en deildir geta með samþykki háskólaráðs ákveðið að falla
frá því skilyrði eða bundið aðgang að námsgreinum frekari
skilyrðum um undirbúning. Sjá nánar á www.hi.is.
Fjöldatakmörkun
Inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun verður 21.-22. júní
2005, sjá nánar sérstaka auglýsingu í dagblöðum og upp-
lýsingar á heimasíðu læknadeildar www.hi.is/nam/laek.
Í hjúkrunarfræðideild, tannlæknadeild og lífeindafræði og
geislafræði við læknadeild eru samkeppnispróf við lok haust-
misseris í desember 2005. Fyrirvari er gerður um mögulega
fjöldatakmörkun í fleiri greinum.
Háskóli Íslands – Nemendaskrá
Aðalbyggingu við Suðurgötu - 101 Reykjavík
Sími 525 4309 – nemskra@hi.is – www.hi.is
Opið virka daga kl. 9-15.
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út Leynd-
ardómur smaragðsaugans eftir Ger-
onimo Stilton.
Aðalpersónan Geronimo Stilton er
fæddur í Músahöfn
í Músítalíu. Hann
lauk embættisprófi
í músafræðum og
meistaraprófi í
nagdýrabók-
menntum. Það ger-
ist oft að Geronimo
lendir í háskaleg-
um ævintýrum,
þótt hann sé í eðli sínu afskaplega
varkár. Öll þessi ævintýri skráir
Geronimo í bækur sínar, sem nú eru
orðnar vel þekktar.
Í þessari bók segir hann frá leitinni
að græna smaragðinum. Sú saga
hófst með því að Tea systir hans
sagði honum frá gömlu fjársjóðskorti
sem hún hafði fundið.
Bækurnar um Geronimo Stilton
hafa notið mikilla vinsælda og víða
verið þaulsetnar á metsölulistum.
Þýðandi: Sigríður Halldórsdóttir
Útgefandi: Vaka-Helgafell
Verð: 1.590 kr.
Börn
ÞAÐ væri mitt síðasta að fara að gera
mér upp heimspekiþekkingu, en þeg-
ar ég fletti upp hugtakinu tvíhyggja í
orðabók kemur fram að þar sé átt við
þá heimspekikenningu að tilveran
skiptist í tvo óskylda og ósamrým-
anlega frumþætti, t.d. efni og anda. Í
guðfræði á kenningin við um þá hug-
mynd að í heiminum togist á tvö
gagnstæð öfl, hið góða og hið illa. Síð-
an er sú kenning að maðurinn hafi tvö
eðli, hið líkamlega og hið andlega.
Lítils háttar uppflett á netinu stað-
festir þessar kenningar og tengir þær
við ýmsa heimspekinga allt aftur til
Plató. Þar til hugsanlegu „einhvern-
tíma-þegar-ég-hef-tíma“-heim-
spekinámi mínu lýkur tjái ég mig
ekki frekar um slíkar kenningar en
það er þó augljóst að hinn vestræni
heimur er undirlagður af tvíhyggju
og þessar kenningar um togstreitu
milli góðs og ills og efni og anda eru
innrættar okkur frá blautu barns-
beini. Togstreitan milli menningar og
náttúru, hins manngerða og þess
náttúrulega, er af sama meiði.
Kristján Jónsson málari, sem sýnir
nú ámálaðar ljósmyndir í Galleríi
Sævars Karls, gæti hafa haft þessa
tvíhyggjuhugsun að leiðarljósi við
gerð verka sinna, hvort sem það er
meðvitað eða ekki, því að í nær öllum
myndum hans kallast á tveir veru-
leikar, hinn manngerði og náttúran,
eða manngert mynstur og óregluleg
blöndun lita á myndfletinum. Lita-
skyn Kristján virðist falla nokkuð
saman við minn sans fyrir fallegum
litasamsetningum og þrjú verka hans
höfðuðu sérstaklega til mín, þar sem
abstrakt málun kallast á við litagrunn
ljósmyndanna, svo úr verður víbrandi
heild sem minnir að nokkru leyti á
óhlutbundin verk Sigtryggs Bjarna
Baldvinssonar þar sem hann leikur
sér t.a.m. að vatnsyfirborði. Í öðrum
verkum leitast Kristján við að setja
saman manngerð mynstur, litaflæði
og ljósmyndagrunn, eða hann teiknar
krúsidúllur og skrautramma inn á
myndflötinn. Það er því erfitt að fá til-
finningu fyrir sterkri heild á þessari
sýningu en Kristján er fær málari
sem virðist liggja eitthvað á hjarta og
að mínu mati hefðu vinnubrögð sem
miðuðu að skýrara marki hug-
myndafræðilega séð skilað eft-
irminnilegri sýningu, en hér er hver
höndin upp á móti annarri. Ef til vill
má skilja það sem svo að við lifum á
þeim tímum þegar listamenn þurfa
ekki að velja því allt er hægt, líka ab-
strakt og fígúratíft á sömu sýningu og
að vissu leyti er það svo. Rannsókn-
arferli líkt og það sem Kristján glímir
augljóslega við í verkum sínum er
líka nauðsynlegt. Ég hefði samt
gjarnan viljað sjá fleiri verk á borð
við þau þrjú sem ég nefndi sem eru að
mestu abstrakt og laus við mynstur.
Á myndfletinum skapast spennandi
togstreita sem er þanin til hins ýtr-
asta þar sem handbragð og vélræn
ljósmynd, ósnortin náttúra og mann-
gerðir litir spila saman. Hér kemur
styrkur Kristjáns sem málara og
næmi hans fyrir litasamsetningum
vel fram. Í heildina má segja að sýn-
ingin einkennist af fjölhyggjuhugsun
sem einkennir samtímalistir, en hvert
og eitt byggjast verkin að miklu leyti
á samspili tveggja þátta, aldagamalli
tvíhyggjuhugsun.
Einn á móti einum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kristján Jónsson við tvö verka sinna.
MYNDLIST
Gallerí Sævars Karls
Ljósmyndir – málverk,
til 12. maí. Opið á verslunartíma.
KRISTJÁN JÓNSSON
Ragna Sigurðardóttir
SÝNING Þjóðleikhússins, Græna
landið eftir Ólaf Hauk Símonar-
son, verður sýnd tvisvar sinnum í
Samkomuhúsinu á Akureyri dag-
ana 13. og 14. maí. Græna landið
hlaut fjórar tilnefningar til Grím-
unnar – Íslensku leiklistarverð-
launanna síðastliðið vor. Gesta-
sýningar Þjóðleikhússins á
Akureyri eru í samstarfi við
Leikfélag Akureyrar.
Græna landið er samið fyrir
þau Gunnar Eyjólfsson og Krist-
björgu Kjeld en auk þeirra leikur
Björn Thors í sýningunni. Hann
hlaut Grímuna – Íslensku leiklist-
arverðlaunin sem leikari ársins í
aukahlutverki í vor.
Þessi áhrifamikla sýning, um
hlutskipti þeirra sem glata minn-
ingum löngu áður en lífið hverfur
þeim, hefur verið sýnd rúmlega
60 sinnum fyrir fullu húsi í Þjóð-
leikhúsinu. Kári Sólmundarson
byggingarmeistari reisti á sinni
tíð hús sem teygðu sig allt upp til
skýjanna. Nú situr hann einn eft-
ir, hans nánustu eru horfnir hon-
um, hver á sinn hátt, og jafnvel
minningarnar eru að hverfa.
Nema þær sárustu, þær sitja
lengst eftir. Heimilishjálpin Lilja,
hressileg kona á besta aldri,
reynist óvæntur bandamaður og
vinur.
Tónlist samdi Gunnar Þórðar-
son, lýsingu hannaði Ásmundur
Karlsson, höfundur leikmyndar
er Gretar Reynisson og leikstjóri
er Þórhallur Sigurðsson.
Ólafur Haukur Símonarson er
eitt mikilvirkasta og vinsælasta
leikskáld Íslendinga en hann hef-
ur einnig sent frá sér ljóðabækur,
smásögur og skáldsögur, skrifað
útvarps-, sjónvarps- og kvik-
myndahandrit, gefið út hljóm-
plötur með eigin lögum og söng-
textum og þýtt bækur, leikrit og
kvikmyndir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg Kjeld í Græna landinu.
Græna landið
á Akureyri
Gestasýning Þjóðleikhússins
ATVINNA mbl.is