Morgunblaðið - 01.05.2005, Síða 64
64 SUNNUDAGUR 1. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
MIKIL gerjun hefur verið ígallerírekstri í borginniá síðustu árum. Gall-
eríum, sem þó hafa vakið athygli
fyrir fínar sýningar, hefur verið
lokað, en ný sprottið upp jafn-
harðan. Eitt athyglisverðasta
gallerí sem starfrækt hefur verið
hér síðustu árin er Gallerí Skuggi
á Hverfisgötu, rekið af Önnu Jóa
myndlistarkonu og móður henn-
ar, Hönnu Gunnarsdóttur mynd-
listarkonu og innanhússhönnuði.
„Við mæðgur hófum rekstur á
sýningarsal í október 2001 og
töldum þá vera eftirspurn eftir
góðu sýningarrými í miðborginni
þar sem listamenn gætu komið
sér á framfæri við almenning og
listasöfnin,“ segir Anna Jóa um
stofnun Gallerís Skugga. „Rekst-
urinn byggðist á því að í stað
þess að taka prósentu af seldum
verkum var tekin föst þóknun
fyrir afnot af salnum en hún
gekk upp í rekstrarkostnaðinn.
Galleríið var opnað meira af
áhuga á myndlist og myndlist-
armiðlun en með gróðamarkmiði
og því var þóknunin höfð eins lág
og mögulegt var, auk þess sem
öll þjónusta af okkar hálfu var
unnin kauplaust, s.s. yfirseta á
virkum dögum og gerð vefsíðu
þar sem sýningar voru kynntar.
Hugmyndin var að reka þetta
svona til að byrja með og standa
með styrkjum fyrir 2–3 boðssýn-
ingum á ári. Yrðu undirtektir
góðar höfðum við áhuga á að
færa okkur yfir í sérhæfðari gall-
erírekstur sem byggðist á sam-
vinnu við valinn hóp listamanna
þar sem tekjur fælust í umboðs-
sölu á verkum og kynningu á
listamönnum, jafnvel erlendis
þegar fram liðu stundir.“
Anna Jóa segir að í GalleríiSkugga hafi ætíð verð lögð
áhersla á vandaðar sýningar, og
það að byggja upp gott orðspor.
Það voru margir samverkandi
þættir sem urðu til þess að rekst-
ur Skugga gekk ekki sem skyldi.
„Það setti strik í reikninginn
að um svipað leyti og galleríið
var opnað felldu mörg þekkt sýn-
ingarrými á höfuðborginni, þ.e.
söfn á borð við Gerðarsafn, Ný-
listasafnið og Listasafn ASÍ, nið-
ur þá þóknun sem þau höfðu tek-
ið fyrir afnot af sýningarsölum til
að mæta alþjóðlegum kröfum um
faglegri rekstur sem fól m.a. í
sér boðssýningar og markvissari
sýningarstefnu. Í framhaldinu
var Safn opnað á Laugavegi sem
hóf að bjóða starfandi listamönn-
um að sýna hjá sér sem og Lista-
safn Íslands með tilraunarýmið
Sjónarhorn í kjallaranum. Við
lentum þá í samkeppni við burðu-
gar stofnanir og þar sem Gallerí
Skuggi er einkarekið fjölskyldu-
fyrirtæki fórum við einfaldlega
halloka í þeirri samkeppni.“
Spurð hvort komið hefði til
greina að reka Skugga undir ein-
hverjum öðrum formerkjum segir
Anna Jóa þær mæðgur fljótlega
hafa farið að huga að öðru
rekstrarformi, þ.e.a.s. umboðs-
sölu á verkum og kynningu á
listamönnum enda hafi þær fund-
ið fyrir miklum áhuga á slíku
strax við opnun gallerísins. „Hér
sárvantar sérhæfða umboðsaðila
sem annast sölu á samtíma-
myndlist og geta haft milligöngu
um kynningu á listamönnum til
stærri stofnana og sýningarstjóra
bæði hér heima og erlendis. Við
sáum fljótt að staða myndlist-
armarkaðarins hér heima var
ekki góð, og að ekki er grund-
völlur fyrir sérhæfðan rekstur
með fáum listamönnum nema
með alþjóðlegri markaðssetningu.
Slíkur rekstur felur hins vegar í
sér gríðarlegar fjárfestingar og
við höfum því miður engin tök á
slíku.
Þegar vaxtalaus lán til mynd-
listarkaupa í samvinnu við KB
banka með stuðningi menningar-
málanefndar Reykjavíkurborgar
voru kynnt íhuguðum við gall-
erírekstur sem byggjast myndi
nær eingöngu á innlendum mark-
aði og þróuðum hugmyndir um
hliðarstarfsemi sem færa myndi
galleríinu tekjur, þ.e. fræðslu-
starfsemi um samtímamyndlist
fyrir almenning með fyrirlestrum
og heimsóknum á gallerí, söfn og
á vinnustofur, og við sóttum um
styrki til að hrinda þeim í fram-
kvæmd. Undirtektirnar voru hins
vegar dræmar – þrátt fyrir að
mikið hafi verið rætt um þörf á
slíkri starfsemi í opinberri um-
ræðu síðastliðin ár – og því sáum
við fram á að tími væri kominn
til að loka galleríinu á Hverf-
isgötunni. Við höfum unnið sjálf-
boðavinnu í meira en þrjú ár eða
„góðgerðarstarfsemi“ eins og
mikill athafnamaður í við-
skiptaheiminum kallaði það – en
nú er komið nóg.
Reynslan af því að reka GalleríSkugga hefur verið afar at-
hyglisverð og lærdómsrík. Þegar
upp er staðið veldur það hins
vegar vonbrigðum hvað stuðn-
ingur við starfsemi gallerísins
hefur verið lítill en farið hefur
meira fyrir gagnrýni sem rekja
má til krafna um faglega rekin
gallerí á alþjóðlega vísu í stað
þess að stutt sé við bakið á þeirri
starfsemi sem reynt er að halda
úti í þágu myndlistarumhverf-
isins. Rekstur sérhæfðra mynd-
listargallería á Íslandi virðist
ekki arðbær eða fjárhagslega
hagkvæmur og gallerí á borð við
i8 er afrek út af fyrir sig í þessu
litla landi. Það er vonandi að hin
nýstofnaða Kynningarmiðstöð ís-
lenskrar myndlistar, KÍM, sem
hefur það markmið að stuðla að
alþjóðlegum tengslum, geti tekið
að sér að bæta starfsgrundvöll ís-
lenskra myndlistarmanna með því
að miðla þeim til sérhæfðra gall-
ería erlendis, allt eftir því hvaða
markaði þau sinna og hvers kon-
ar myndlist þau kynna og bjóða
til sölu.“
Anna Jóa segir að það hafiætíð verið markmið þeirra
mæðgna með starfrækslu
Skugga að skapa áhugaverðan
sýningarvettvang fyrir íslenska
og alþjóðlega samtímamyndlist
og hefur Gallerí Skuggi staðið
fyrir sýningum á myndlist eftir
73 listamenn frá átta löndum
(Bandaríkjunum, Englandi, Skot-
landi, Japan, Finnlandi, Noregi,
Danmörku og Svíþjóð) auk Ís-
lands. Um er að ræða margar af-
ar áhugaverðar sýningar á mál-
verkum, ljósmyndum, hönnun,
grafík, saumaverkum, skúlptúr-
um, myndbandsverkum og inn-
setningum af ýmsu tagi. Einnig
hefur galleríið kostað eina sýn-
ingu á ári og rúmlega það. „Þar
má nefna opnunarsýningu gall-
erísins 2001 þar sem Birgir
Andrésson valdi með sér lista-
menn á mjög fjölbreytta sýningu
þar sem möguleikar rýmisins
voru nýttir á skemmtilegan hátt.
Þá má nefna sýninguna „My
name is Þorri – but they call me
Elvis“ 2002 – en það er sú sýn-
ing sem okkur þykir vænst um,
– og fallega einkasýningu Krist-
jáns Guðmundssonar 2004, en
þær voru settar upp á meðan
Listahátíð stóð yfir í borginni.
Galleríið hefur einnig haft frum-
kvæði að því að bjóða Orra Jóns-
syni ljósmyndara og myndlist-
armönnunum Rögnu
Hermannsdóttur og Huldu
Ágústsdóttur að sýna.“
Vefsíða Skugga verður starf-
rækt enn um sinn. Þar er að
finna upplýsingar um allar sýn-
ingar og listamenn gallerísins:
www.galleriskuggi.is
Skuggi hverfur
af Hverfisgötu
’Við sáum fljótt að staða myndlistarmarkaðarinshér heima var ekki góð og að ekki er grundvöllur
fyrir sérhæfðan rekstur með fáum listamönnum
nema með alþjóðlegri markaðssetningu. ‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hanna og Anna Jóa við Skugga á Hverfisgötunni þegar galleríið var opnað þar árið 2001.
begga@mbl.is