Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1936, Qupperneq 41

Náttúrufræðingurinn - 1936, Qupperneq 41
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 35 miiiiiiimimiiimiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimmmiiiimmmiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiii er að gegna um Norðurland. Eg man eftir því, að í ágúst 1926, fengum við nokkra bala fulla af kampalampa á Dönu, í einum einasta drætti í Eyjafjarðarál. Síðastliðinn vetur gerðum við enga tilraun til þess að veiða kampalampa, en þrátt fyrir það, fengum við oft talsvert af honum í síldarbotnvörpu, bæði í Faxaflóa og fyrir sunnan land, all-langt austur. Þann 5. maí drógum við til dæmis vörpuna frá 145 til 64 metra dýpi nokkuð vestur af Hroll- augseyjum. Þarna fengum við í þessum eina drætti 60 lítra af kampalampa. Svo toguðum við aftur, þar sem við vorum, þegar drættinum var lokið uppi á grunninu, en fengum ekkert. Við mæld- um hitann á ýmsu dýpi, þar sem við enduðum dráttinn, og hann reyndist að vera 7.8 stig á Celsíus á yfirborðinu, 7.1 stig á 20 m. dýpi, 6.7 stig á 40 m. dýpi, og 6.4 stig á 60 m. dýpi. Það er auðsætt, að kampalampinn hefir verið öllu dýpra, heldur en þar, sem við köstuðum í síðara skiptið; við höfum líklega fengið hann á 100 metra dýpi eða meira, og þar hefir hitinn við botninn líklega verið um 6 stig, en það kemur mjög vel heim við rannsóknir, sem gerð- ar hafa verið í öðrum löndum, að á því hitastigi heldur kampa- lampinn sig helzt. Vildi eg að þetta væri leiðbeining fyrir þá, sem gera tilraunir til þess að veiða kampalampa. Það skal ennfremur tekið fram, að þetta var í góðu veðri, síðari hluta dags, og eins drátturinn, sem gerður var á Dönu 1926, og reyndist svo fengsæll á kampalampa. Eg hafði tækifæri til þess að gera ýmsar athuganir á þessari veiði, og mér virtist ekki þessi kampalampi, sem við fengum, standa að baki þeim, sem veiðist annars staðar, eftir þeim upp- lýsingum, sem eg hefi getað fengið. Merkilegt fannst mér þó það, að hvert einasta dýr, sem eg náði að athuga, var hrygna, og með hrognum, sem voru að klekjast. Kampalamparnir hrygna ekki eggjum sínum í sjóinn, heldur frjóvgast þau og klekjast á milli halafóta móðurinnar. Flestar voru hrygnurnar með hrognum, og hrognin svo mikið klakin, að hægt var að sjá augu í fóstrinu. Eg skal bæta því við, að hrygningartími kampalampans við önnur lönd er á öðrum tímum en þetta, en vera má, að hrygningartíminn hér við land sé mismunandi eftir því, um hvaða staði er að ræða. 6. Kampalampi til beitu. Áður en eg lýk máli mínu að þessu sinni, vil eg koma hér fram með það atriði, sem hefir feng- ið mig til þess að gera rækjurnar hér að umtalsefni, þrátt fyrir það, þótt nú virðist kominn skriður á það, að hagnýta þær hér á landi. — Undanfarið hefir nefnilega nokkuð verið minnst á það í 3*
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.