Náttúrufræðingurinn - 1936, Blaðsíða 61
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 55
iiiiiiiiiiiiiiimiiimiimiiiiiiiiimmiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiimimi
Úr bréfi frá William Pálsson, Laxárdal.
Veturinn 1934 (í nóvember) náðist stari lifandi á Grenj-
aðarstöðum. Veturinn 1935, 19. og 21. marz, sá.ust fjórir starr-
ar á Halldórsstöðum í Laxárdal. Tveim vikum síðar sáust 2
á sama stað.
Veturinn 1935, 20. apríl, sá eg einn stara hér á Halldórs-
stöðum, hann sat á húsburstinni og söng mjög; daginn eftir sá
eg hann aftur.
Árið 1932, 22. maí, fann eg unga í skógarþrastarhreiðri.
Hann hefir byrjað að verpa um mánaðamótin apríl og maí.
11. desember 1934 fann Pétur Jónsson í Kasthvammi
dauðan grænhöfða1) í Laxárdal (S.-Þing.). Þessi grænhöfði var
með hring um annan fótinn, sem á stóð: „Mus. Nat. 4 Reykja-
vík Iceland 135. Fuglinn virtist hafa verið drepir.n af ránfugli.
Sumarið 1917 var fár mikið í húsöndum við Mývatn; ung-
ar þeirra drápust jafnóðum og þeir komu úr eggjum.
í Reykjahverfi í Aðaldalahreppi fundust vorið 1915 saman
í hreiðri 3 lóuegg og 4 spóaegg.
Á Brettingsstöðum í Laxárdal (S.-Þing), sást fugl meiri-
hluta sumarsins 1920. Þessum fugli var lýst svo: Rauðleitur um
höfuð og með samlitum topp. Gulur neðan (úr keldum?), grænn
á baki, nef og fætur dökkt. Fuglinn var yfirleitt mjög litfagur
(vaðfugl?).
Fugl náðist lifandi 14. september á Húsavík. Móleitur of-
an, ljósari að neðan, nef stutt og aftur frá því að ofan gular,
rauðar og svartar fjaðrir (yzt). Vængir ofurlítið flekkóttir
(grátt, svart, hvítt). (Spörfugl?).
Vorið 1916 (snemma í maí) voru menn á ferð um Búrfells-
hraun á Mývatnsöræfum, og fundu þeir mikið af dauðum rjúp-
um, t. d. rúm 20 stykki á ca. 100 metra svæði.
Aths. Þegar merktir fuglar finnast, ætti að senda merkið
til Náttúrugripasafnsins í Reykjavík þegar í stað.
Á. F.
!) Á að vera gráönd (A. strepera). (M. B.)