Náttúrufræðingurinn - 1936, Qupperneq 70
64 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiii ii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiii iii iiiiiiiiiiiiiii 11111111)111111)1,111,1, iumiinumnniumnnnnmnnnnnuunm
Tilkynning.
Á fimm árum hafa komið út af Náttúrufræðingnum 12 arkir
á ári, eða 60 arkir samtals. Hann hefir auðgað íslenzkar bók-
menntir um 960 bls. af hreinni náttúrufræði, einmitt því fag-
inu, sem alls staðar kallar hæzt á athygli allra 20-aldar-manna.
Hann hefir birt um 280 myndir, eða að meðaltali mynd á 3.—4.
hverri blaðsíðu. Hann hefir birt ritgerðir eftir rúmlega 60 höf-
unda, þar á meðal flesta þá íslendinga, sem eitthvað fást við
náttúrufræði, og auk þess greinar eftir 4 erlenda vísindamenn.
í Náttúrufræðingnum hafa alls komið tæpar 300 greinar, sem
hafa fjallað um dýrafræði, mannfræði, læknisfræði, grasafræði,
námufræði, landfræði, eðlisfræði, efnafræði, verkfræði, veður-
fræði, stjörnufræði 0. fl.
Náttúrufræðingurinn hefir reynt að vera útvörður til þess að
kynna lesendum sínum allar þær nýjungar úr náttúrufræði, sem
til hans hafa komizt, eða hann hefir náð til, og þær bækur, sem
ritaðar hafa verið á íslenzku um náttúrufræði, eða um íslenzka
náttúrufræði á islenzku og öðrum málum. Þar að auki hefir
hann verið athvarf þeirra, sem einhverju markverðu höfðu að
miðla öðrum, náttúrufræðilegs efnis, öruggur lendingarstaður
fyrir ýmsan fróðleik og nýjungar, sem voru þess virði, að geym-
ast, en gleymzt hefðu, ef hans hefði ekki notið við.
Allt hvað líður, fer það að hafa nokkurn kostnað í för með
sér, að eignast Náttúrufræðinginn frá byrjun. Þess vegna vill
sjálft afmælisbarnið að þessu sinni gefa afmælisgjöfina þeim,
sem þiggja vilja, en hún er:
Náttúrufræðingurinn I.—V. árg. fyrir aðeins kr. 15.00
eða fyrir aðeins hálfvirði.
Vegna þess að ,,upplagið“ er takmarkað, nær þó þetta tilboð
aðeins til þeirra 100, sem gefa sig fyrst fram eftir að þetta hefti
er komið út, og síðan verða áskrifendur. Tilboð þetta stendur að-
eins þangað til 1. ágúst þetta ár, og staðgreiðsla á þessum fimm
árgöngum og 6. árg. verður að fara fram. 6. árgangurinn kostar
6 krónur, það er áskriftaryerð Náttúrufræðingsins.
Afgreiðslumaður og gjaldkeri Náttúrufræðingsins er Ólafur
Bergmann Erlingsson, Njálsgötu 76, sími 4875.