Skírnir - 01.01.1920, Blaðsíða 30
24 Hvenær er Jón Arason fæddur? [Skírnir
Eg hygg að röð barnanna sé eftir aldri og ætti Ari þá
að vera elztur og fæddur 1508. Hann hefði þá verið að-
eins 21 árs, er hann var kosinn til lögmanns 1529. Von
var, að mönnum þætti hann heldur ungur til að takast á
hendur svo vandasamt og veglegt embætti.1) En þó Jón
Arason héldi börnum sínum mikið fram, ofmikið að mínu
áliti, þá mundi hann varla hafa treyst sér til að þrýsta
mönnum til að kjósa liðlega tvítugan ungling í lögmanns
sætið. Þótt Ari hefði verið svo sem 4 árum eldri eða 25
ára, sem eg hygg víst, að hann hafi verið, þá gat ög-
mundi biskupi og mörgum öðrum góðum mönnum þótt
þessi »dándisveinn« samt of ungur til að ganga undir
slíkan vanda.2 3)
A alþingi 1531 og 1533 gengu tveir merkilegir dóm-
ar, sá fyrri um lausamenn8), og hinn síðari um ýmisleg
málefni landsins, þar á meðal, að svarinn sáttmáli haldist
kongs vegna og kirkju4), og segir Jón Sigurðsson, að Ara
lögmanni sé eignað að hafa átt mestan þátt í þessum
dómum5 6). Ef Ari hefir verið fæddur um 1508 og hafi
hann átt mestan þátt í þessum merku dómum, hefir hann
verið óvenjulega bráðþroska. En eg hygg, að þetta sýni
meðal annars, að Ari hafi hlotið að vera nokkru eldri,
varla fæddur síðar en 1504.
Næstelztur hefir Magnús verið, og ætti eftir fyrsögðu
að vera fæddur 1509. Hann var vigður til prests af ög-
mundi Skálholtsbiskupi 1529,°) og hefði þá átt að vera
tvítugur, en þetta er ómögulegt samkvæmt framansögðu.
Þótt iögmundur vígði hann í vinsemdarskyni við föður
hans, er engin ástæða til að halda, að hann hefði farið
að brjóta lög kirkjunnar hans vegna. Þess er lika beint
út getið í vígslubréfinu, að síra Magnús hafi fengið lög-
’) Safn tll Sögn ísl. II bls. 203.
3) 1. c.
3) í'ornbréfasafn IX nr. 480 bls. 579—89.
4) 1. c nr. 550 bls. 668-70.
3) Safn 1. c bls. 116.
6) Fornbréfas. 1. c nr. 512 bls. 621.