Hugur - 01.01.2000, Blaðsíða 40
38
Geir Sigurðsson
HUGUR
skeytingarlaus um afdrif mannsins og annarra lífvera. En ranghug-
myndirnar og tálsýnirnar gáfu aðra mynd og það var fyrir þeirra tilst-
illi sem maðurinn gat fundið til hamingju og firrt sig leiðindum. Hér
verður að athuga að Leopardi hefur eingöngu áhuga á hamingjunni.
Hún er hans eina verðmæti og aðrir hlutir búa yfir verðmæti aðeins
svo framarlega sem þeir stuðla að henni. Þar sem sannleikurinn, þ.e.
heimspekilegur eða vísindalegur sannleikurinn um heiminn, stuðlar
fremur að óhamingjunni, er Leopardi eðlilega í nöp við hann og þó
einkum við sögulega skynsemina, sjálfa heimspekina, sem hefur fært
okkur þennan sannleika.
En hvað skal þá til bragðs taka? Þróun skynseminnar var jú ein-
hvers konar slys sem náttúran gerði aldrei ráð fyrir. Þótt hún þrífist á
stöðugri hringrás tilurðar og eyðingar þeirra hluta sem hún hýsir, þá
er henni mikilvægt að tegundirnar leitist við að viðhalda sér sem teg-
undum, sem sannleiksfundur mannanna kyndir ekki beinlínis undir.
Leopardi leiðir jafnvel að því líkur að með aukinni þróun skynsem-
innar og vexti og viðgangi óhamingjunnar verði brátt ekkert mannkyn
eftir, því það verði hugsanlega allt búið að granda sér.32 Andúð hans á
nútímanum og þróuninni, og samsvarandi gengdarlaus lofræða hans
til fornaldar þegar allt var miklu betra hljómar auðvitað einsog and-
styggileg nostalgía og afturhaldssemi. En Leopardi gerir sér fulla grein
fyrir því að ekki verður snúið aftur í tímann með neinum hætti, eins-
og eftirfarandi orð hans eru til marks um:
Eg tek náttúruríkið fram yfir siðmenninguna. En eftir að þróun and-
ans hófst og náði ákveðnu stigi er ómögulegt að snúa henni til baka;
ómögulegt, jafnt fyrir einstaklinga sem þjóðir, að hindra framvind-
una. Andar einstaklinga og þjóða í Evrópu og í stórum hluta heims-
ins hafa nú þegar löngum verið þróaðir. Að draga þá niður á stig hins
frumstæða og hins villimannslega er með öllu óhugsandi.33
A öðrum stað orðar hann þessar ógöngur með öðrum hætti og tengir
þær sérstaklega heimspekinni:
Það fer ekki fram hjá mér að lokaniðurstaða sannrar og fullkominnar
heimspeki er sú að maður ætti ekki að leggja stund á heimspeki. Af
því leiðir, í fyrsta lagi, að heimspekin er gagnslaus, því til þess að
•j o
Leopardi: Zibaldone di pensieri, 216.
'33 Sama rit, 4186.