Hugur - 01.01.2000, Side 138
HUGUR 10.-11. ÁR, 1998-1999
s. 136-154
Eyjólfur Kjalar Emilsson
Brynjólfur Bjarnason
um frelsi viljans*
Við minnumst í dag 100 ára ártíðar Brynjólfs Bjarnasonar, stjórnmála-
manns og heimspekings. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um
manninn Brynjólf Bjarnason, og um stjórnmálamanninn og stjórn-
málahugmyndafræðinginn Brynjólf Bjarnason ætla ég alls ekki að
ræða. Mig langar eigi að síður að segja þessari samkomu frá því að ég
varð þeirrar ánægju aðnjótandi að kynnast Brynjólfi nokkuð vel. Sem
forvitin unglingssál rakst ég á Forn og ný vandamál Brynjólfs og varð
hugfanginn. Ekki endilega af neinu sérstöku sem þar stóð heldur af
spurningunum sem varpað var fram og því hvernig höfundurinn tók á
þeim. Ég hafði aldrei fyrr séð neitt þessu líkt. Þó hafði ég um svipað
leyti, ef ég man rétt, verið að glugga í fleira, svo sem Sögu manns-
andans eftir Agúst H. Bjarnason, ágætt verk raunar sé ég nú, en þá
fannst mér það það einhvern veginn átakalaust í samanburði. Ég held
að það sem ég hafi fundið hjá Brynjólfi, án þess náttúrlega að gera
mér neina ljósa grein fyrir því, sé hvað honum fannst heimspeki erfið,
erfitt að hugsa um gáturnar sem tóku hug hans og erfitt að segja það
sem honum fannst hann hafa komist að. Þetta fer hann raunar ekki
dult með í bókum sínum. Að þessu leyti eru þær einhver bestu kynn-
ingarrit heimspekinnar sem ég get hugsað mér, því svona er öll sönn
heimspeki, þótt hún þurfi ekki þar með að vera torskilin. Ég er að
minnsta kosti afskaplega feginn að hendingin réði því að það voru
bækur Brynjólfs sem ég féll fyrir sem unglingur fremur en til dæmis
Nietzsche eða Sartre, sem eiga vanda til að heltaka leitandi unglings-
sálir. Ég varð mér úti um fleiri bækur Brynjólfs og las þær líka.
Mörg atriði stóðu í mér, og að lokum mannaði ég mig upp í að
hringja í karlinn, sem bauð mér heim til sín að bragði. Þar sátum við
og rökræddum drjúgan part úr degi. Og slíkar stundir urðu ansi margar
Flutt á málþingi Félags áhugamanna um heimspeki í tilefni af aldarafmæli
Brynjólfs Bjarnasonar í hátíðasal Háskóla íslands 24. október 1998.