Morgunn - 01.12.1974, Side 10
88
MORGUNN
að varpa yfir allskonar siðferðislega rotnan, við því er voða-
lega hætt einmitt á þessum tíma, og líklega í engu landi
fremur en í Ameríku. í hinum svo kallaða kristna heimi nú
er, því miður, eigi ósvipuð lífsstefna ráðandi eins og meðal
hirma heiðnu Rómverja á öndverðri keisaraöldinni: að einu
leytinu hamslaus fíkn í auð, peninga, tarmilaus gróðagirnd,
brennheit ást á mammon, að hinu leytinu óstjórnleg munaðar-
fýsn, löngun til þess, eins og kallað er, að njóta lífsins, sem
þýðir sama sem að lifa í sukki og svivirðingum. Þessi stefna
er það, sem á vísindalegu máli er kallað „materialismus“.
Materialismus*) þýðir nú í rauninni sama sem guðleysi, en
hann getur samt býsna vel þrifizt undir hjúpi kristilegrar
trúarjátningar. Meðan kirkjan var í algjörum minna hluta í
mannfélaginu, á postulaöldinni og pislavættisöldinni, bar ekki
á þessu, og það stóð ekki heldur til. Aðrir en sanntrúaðir
menn höfðu þá enga hvöt til að gjörast limir kirkjunnar, því
grimmar ofsóknir og nöpur fyrirlitning vofði þá yfir játend-
um kristinnar trúar út af þeirri trú, er þeir játuðu, svo heið-
ur og upphefð frá heiminum var ekki væntanleg á þeim
vegi. En þegar kirkjan er orðin i meira hlutanum i mann-
félaginu, þegar hin kristna ti'úarjátning stendur ekki lengur
i augum heimsins eins og eitthvað illt og óheiðarlegt, þegar
það þvert á móti fer að opna mönnum veg til meiri metorða
og lífsþæginda að ganga undir kristilegri trúarjátning, þá fer
materialismusinn að geta átt heima í kirkjunni, og þegar
hann hefir fengið tækifærið til að smeygja sér þar inn, fer
lika greinilega að hera þar á honum. Yið fyi-sta álit kynni
mönnum nú að viiðast svo sem Ameríka, það er að segja
Bandarikin og Kanada, ætti að vera það land heimsins þar
sem materialismus ætti sízt að geta þrifizt midir hjúpi kristi-
legrar trúarjátningar, þar sem hér er þó fullkomnara trúar-
bragðafrelsi heldur en í flestum öðrum löndum hins svokall-
aða menntaða heims. Það væri því ekkert undarlegt, þótt
menni kynni af því að vilja draga þá ályktun, að þeir memr,
) Efnishyggja.