Morgunn - 01.12.1974, Page 24
102
MORGUNN
Annað stig eru liin þrjú stig klerkdómsins: djákn, prestur og
biskup og loks hin þrjú stig leikmannanna i kirkjunni sem
eru hinir ófullkomnu, sem eru ekki einu sinni meðlimir kirkj-
unnar, þá leikmenn innan kirkjunnar og efst munkar.
Þessi 3x3 jarðnesku stig tákna leið sálarinnar til upphafs
síns. Hvert hinna jarðnesku stiga er eins konar stofnun til-
tölulega óháð einstaklingnum sem þar er.
Þetta form tilverunnar, þessi stigi að hinni mestu sælu
þessa lifs til heimkynna sálarinnar verður nú um margar
aldir undirstaða mýstikurinnar á Vesturlöndum.
Kirkjan verður leið, eina leiðin að uppsprettu lífsins, Guði,
vegna þess að hann hefur valið kirkjuna sem leið útgeislunar
guðdómsins. Þarna höfum við grundvöllinn að yfirbyggingu
kaþólsku kirkjunnar.
Þannig var guðfræði og heimspeki fram eftir miðöldum
mótað af Dyonisiosi, en iðkun hennar fór aðallega fram í
klaustrunum í trúariðkunum stanzlaust, þar sem leitað var
sameiningar sálarinnar við guðdóminn. Kristur er brúðgumi
sálarinnar sem kemur og tekur hana og flytur í faðm guð-
dcmsins. Guð er i sálinni. „Ég mitt er Guð“, var oft sagt og
segir sitthvað um mýstik.
Ýmis mestu stónnenni kirkjusögunnar hafa verið innan
mýstikurinnar eins og Heilagur Bernhard frá Clairvaux á 12.
öld, sem sagði: „Guð er aðeins hægt að þekkja með því að
elska hann“. Kristur er fyrir honum brúðgumi sálarinnar.
Hann hefur ort hina fegurstu sálma kristninnar eins og sálm-
inn „Þín minning .Tesú mjög sæt er“, sem sunginn er við
altarisgöngur. Fyrir honum snerist mýstikin öll um Krist,
Kristsmýstik, og því orti hann svo stórkostlega sálma um
Krist og líka þess vegna fær altarisgangan venilega djúpa
merkingu fyrir honum, sem þorri venjulegs fólks fær ekki
skilið á vesturlöndum, vegna þess að hann hefur lokuð augu
gagnvart trúarlegri innlifun. Á því verður vonandi breyting
með aukinni velmegun og þeim vonbrigðum og afturkipp sem
henni fylgja.
Meister Fxkhart er yfirleitt talinn hinn mikli mýstiker