Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2000, Síða 52

Læknablaðið - 15.09.2000, Síða 52
r FRÆÐIGREINAR / LÍFFÆRAFLUTNINGAR Figure 1. The number of allogeneic ancl autologous bone marrow trasplantations performed worldwide from 1970 to 1995. From International Bone Marrow Transplant Registry 1995. Published with the kind permission of IBMTR/ABMTR-Statistical Center. »% 0% 76% 1683 ■ Leukaemia □ Lymphoma ■ Aplastic anaemia ■ Congenital disorders ■ Solid tumors 1891 1997 Figure 2. Changes in main indications for allogeneic transplantalion in Europe 1973- 1997. From the EBMT Handbook. Blood and Marrow Transplantation 2000. Reproduced with permission from the EBMT. stuðningi (high dose therapy with stem cell support), þar sem eigin stofnfrumur sjúklingsins eru notaðar við meðferðina. í seinna tilvikinu er því ekki um eiginleg mergskipti að ræða, en stofnfrumugjöfin gerir mögulegt að gefa mun hærri skammta af frumudrepandi lyfjum heldur en mögulegt væri án stuðnings frá stofnfrumum sjúklingsins. Eigin stofnfrumuígræðsla heppnaðist fyrst seint á áttunda áratugnum en notkunin fór hratt vaxandi upp úr 1980 og nú er svo komið, að mun fleiri eigin stofnfrumuígræðslur eru framkvæmdar heldur en mergskipti (mynd 1). Af 20.522 ígræðslum á skrá hjá evrópsku ígræðslusamtökunum (European Bone Marrow Transplant Organization, EBMT) fyrir árið 1998 voru 73% eigin stofnfrumuígræðslur og 27% mergskipti (4). í þessari grein verður fyrst og fremst fjallað um mergskipti. Ábendingar Hlutverki hefðbundinnar stofnfrumuígræðslu má skipta í þrjá meginþætti: 1. Að bæta upp skort á merg- og eitilfrumum, til dæmis við mergbilun og meðfæddar ónæmistruflanir. 2. Vernd gegn auka- verkunum af háskammta frumudrepandi lyfjum og geislameðferð, til dæmis í meðferð eitilfrumu- krabbameins, hvítblæðis og ýmissa krabbameinsæxla. 3. Uppræting sjúklegrar blóðmyndunar og endur- reisn með eðlilegum stofnfrumum, til dæmis í sigðfrumublóðleysi (5). Hlutverk mergskipta lýtur að öllum þremur þáttunum hér að ofan, en ígræðsla eigin stofnfrumna gegnir eingöngu hlutverki við að vernda gegn aukaverkunum af háskammtameðferð. Illkynja blóð- og eitilfrumusjúkdómar eru algengustu ábendingar þessarar meðferðar í dag. Helstu sjúkdómaflokkarnir eru hvítblæði, bæði brátt og langvinnt, eitilfrumukrabbamein (Non-Hodgkin s lymphoma og Hodgkin's disease), mergfrumuæxli (multiple myeloma) og meðfæddar ónæmistruflanir. Ábendingar fyrir mergskipti á skrá hjá EBMT fyrir árið 1998 voru eftirfarandi: bráða mergfrumu- hvítblæði (acute myelogenous leukemia, AML) 26%, langvinnt mergfrumuhvítblæði (chronic myelogenous leukemia, CML) 25%, bráða eitil- frumuhvítblæði (acute lymphoblastic leukemia, ALL) 20%, mergrangvaxtarheilkenni (myelodys- plastic syndrome, MDS) 6%, eitilfrumukrabbamein 9%, vanmyndunarblóðleysi (aplastic anemia) 5%, ónæmistruflanir 7% og krabbameinsæxli 0,5% tilfella. Á tímabilinu 1987 til febrúar 1998 voru 61% mergskipta fyrir bráða mergfrumuhvítblæði fram- kvæmd í fýrsta sjúkdómshléi en fyrir bráða eitil- frumuhvítblæði voru 37% mergskipta framkvæmd í fyrsta og 35% í öðru sjúkdómhléi (4). Mynd 2 sýnir breytingarnar sem orðið hafa í Evrópu frá 1973 til 1997 á ábendingum fyrir mergskipti. Tímasetning ígræðslu Enn eru skiptar skoðanir um bestu tímasetningu ígræðslumeðferðar. Ljóst er að sjúklingum vegnar betur hafi þeir ekki fengið mikla undanfarandi meðferð, en það er einkum vegna minni áhættu á líffæraskemmdum sem geta orsakast af ígræðslumeð- ferðinni. Erfitt er að mæla með mergskiptum hjá einstaklingum með lokastigssjúkdóm þar sem lífslíkur eru mjög litlar, nema um sé að ræða tilraunameðferð. Aldur sjúklings skiptir meginmáli fyrir árangur ígræðslu. Gjarna er miðað við 60 ára aldurstakmark fyrir mergskipti frá skyldum gjafa með fullu vefjaflokkasamræmi, 45 ára aldur fyrir 594 Læknablaðið 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.