Þjóðmál - 01.06.2010, Page 76
74 Þjóðmál SUmAR 2010
Flest ir seðlabankar heims töpuðu verulegum
hluta gjaldeyrisvarasjóðs síns í því umróti sem
varð frá 15 . september og mánuðina þar á eftir .
Gjaldeyrisvarasjóðir eru tryggðir með kaupum
á pappírum og með því að hafa ákveðið lausafé
mislengi bundið í erlend um fjármála stofnunum .
„Öruggar“ fjár mála stofnanir fóru á höfuðið,
langt yfir 100 í Bandaríkjunum einum, sumar
virtar mjög eftir að hafa starfað áfallalaust í
meira en heila öld . „Traust“ fyrirtæki fóru
einnig um koll og verðmæti sem pappírar stóðu
fyrir töpuðust . Því var ekki að undra þótt ýmsir
seðlabankar töpuðu á milli 15 og 25 prósent
af gjaldeyrisforða sínum . Íslenski seðlabankinn
tapaði ekki krónu í erlendri mynt . Ástæðan
var sú að hann hafði fest fé sitt af mikilli varúð
og auðvitað hafði hann verið heppinn með
ákvarðanir um geymslu lausafjár síns . Og þeir,
sem fremur vilja leita sannleika en framleiða
hann, munu viðurkenna að það var mikið
gæfuverk að bankastjórn Seðla bankans lét ekki
undan margvíslegum þrýstingi í aðdraganda
bankahruns um að henda gjaldeyrisforða
þjóðarinnar á bálið í þeirri von að við það myndi
allt lagast eins og margir virtust trúa á .
Þetta er nefnt, vegna þess að lögin um rann
sóknarnefndina segja ótvírætt að hún sé fyrst
og fremst sett á laggirnar til að leita sann leik
ans . Hitt að finna sökudólga og koma höggi
á stjórn endur, jafnvel með því að gefa sér að
þeir hafi haft allar þær upplýsingar við hendina
sem nefndin hefur nú, er í besta falli auka hlut
verk nefndarinnar, og leiðbeiningar um slíkt
augljóslega fremur sóttar í athugasemdir fremur
en lagatextann sjálfan . Nefnd, sem getur ekki
svarað því fyrr en að rúmur dagur lifir af níu
daga andmælarétti, hvort að slíkur frestur verði
framlengdur, ætti að skilja að lífið getur verið
flókið, þegar heilt bankakerfi er að hrynja á
skemmri tíma en nefndin tók sér til að svara
hinni einföldu spurningu, sem blasir þó við að
henni bar að eðlilegum stjórnsýsluháttum, að
ekki sé minnst á almennar kurteisisreglur, að
svara án tafar . Rannsóknarþolendur höfðu af
því mikla hagsmuni . Þótt ég léti ekki eftir mér
að biðja um slíkan frest er augljóst að allt annað
hefði verið að frétta af framlengingu and mæla
réttar strax í upphafi en daginn áður en hann
átti að renna út .
VII
Samantekt
Rannsóknarnefndinni er fyrst falið að leita sannleikans um aðdraganda og orsök falls
íslensku bankanna .
Þá á hún að leggja mat á hvort um mistök eða
vanrækslu hefði verið að ræða við framkvæmd
laga og reglna um fjármálastarfsemi hér á landi
og eftirlit með henni . Ef „athuganir“ nefnd
ar innar, sem hún gefur kost á andmælum við
eru byggðar á því að lög og reglur samkvæmt
framansögðu hafi verið brotin ber henni að
reifa, (það er að gera grein fyrir ) hvaða fyrirmæli
gildandi laga og reglna hafi verið brotin . Í bréfi
til mín, sem eins þriggja manna í fjölskipuðu
stjórnvaldi, eru nefndir til sögunnar 8 töluliðir,
þar sem getið er þátta, sem nefndin telur koma
til álita að meta hvort bankastjórnin hafi gerst
sek um mistök eða vanrækslu . Um ekkert
þessara „athugunarefna“ er gefið til kynna að
brotin hafi verið þágildandi lög eða reglur um
fjármálastarfsemi og eftirlit með henni . Þar sem
þess er ekki getið, verður að líta svo á, samkvæmt
þeim lögum sem nefndinni ber að starfa eftir,
að bankastjórnin hafi engin slík lög eða reglur
brotið . Það hlýtur að draga mjög úr þunga og
alvöru þeirra athugasemda sem nefndin segist
Óhætt er að segja að starfsfólk bankans hafi unnið stórvirki
ásamt því fólki sem kallað var
fyrirvaralaust inn í bankann til
aðstoðar . Nánast allt bankakerfið
hrundi á einni viku . Seðlabankanum
tókst samt að tryggja að innra
peningakerfið virkaði nánast að öllu
leyti, þrátt fyrir stórbrotið áfall sem
enginn gat haft reynslu af . Íslenskir
korthafar út um allan heim fundu
vart að neitt hefði gerst .