Þjóðmál - 01.06.2010, Page 115

Þjóðmál - 01.06.2010, Page 115
 Þjóðmál SUmAR 2010 113 staðist, auk þess sem engar slíkar viðræður, sem vísað er til áttu sér stað . Lausleg ófullburða hug mynd kom fram seint í nóvember á einum fundi bankastjórnarinnar og forráðamanna Íslenska skipafélagsins um slíka hlutafjáröflun og rekstur . Augljóst var, að enginn fjárhagslegur grund völlur var fyrir slíku, eins og sýnt hefur verið fram á . Það er raunar margt fleira sem vert væri að gera athugasemdir við í andsvörum sagn­ fræð ing anna, Stefáns Gunnars Sveinssonar og Björns Jóns Bragasonar . Sá síðarnefndi lætur þess t .d . getið, að ég saki hann um að láta „líta svo út“, að hann hafi einkaskjalasafn mitt um Haf skipsmálið undir höndum . Ég vil benda á, að í heimildaskrá bókar hans, Hafskip í skotlínu, á bls . 255 stendur skýrum stöfum: „Einka skjala­ safn Lárusar Jónssonar . Minnis blað Lárusar, dags . 30 . nóvember 1985 .“ Ég leyfði mér að láta „líta svo út“, að það sé ofmælt, að hann hafi einkaskjalasafn mitt til umráða! Ég vil ekki láta hjá líða að endurtaka það, sem ég tók fram í fyrri grein minni um bók Stef­ áns Gunnars, Afdrif Hafskips í boði hins opin­ bera . Þar segir: „Hún gefur greinargott yfirlit yfir ýmsa þætti Hafskipsmálsins, m .a . lýsingu á áhrifum fjölmiðla og stjórnmálamanna á múgsefjun þjóðarinnar og jafnvel innrætingu ákæruvalds og rannsóknaraðila, svo ekki sé talað um afar ógeðfellda gæsluvarðhaldsvist Hafskipsmanna .“ Að þessu tel ég mikinn feng . Hins vegar eru öðrum þáttum gerð slök skil, eins og t .d . viðskiptum og samvinnu stjórn­ enda Út vegsbankans og Hafskips . Megin þungi gagn rýni minnar á báðar bækurnar, sem ekki er mótmælt í andsvörum höfundanna, beinist að því, að í þeim skorti grundvallarrannsóknir á staðreyndum um rekstur og fjárhag Hafskips hf . síðustu starfsár þess og ekki síst eftir að björgunaraðgerðum lauk í nóvember 1985 . Höfundarnir andmæla því kröftuglega í greinum sínum, að þeir hafi af ásetningi látið hjá líða að kryfja áðurnefndar upplýsingar . Það kann að vera . Opinber gögn leiða eftir sem áður skýrt í ljós, að félagið var einfaldlega gjaldþrota, þegar hér var komið sögu, vegna vonlausrar fjárhagsstöðu þess . Fram hjá þeirri staðreynd er litið í bókunum . Umfjöllun höfundanna og niðurstöður eru af þeim sökum og fleirum, sem nefndar hafa verið, í veigamiklum atriðum rangar . Höfundar bókanna spyrja, hvað vaki eiginlega fyrir mér með gagnrýni minni á bækur þeirra . Því er fljótsvarað . Ætlun mín er sú að gera það, sem í mínu valdi stendur, til þess að bækur þeirra verði ekki álitnar segja í meginatriðum sögulegan sannleika um Hafskipsmálið, sem kenndur verður komandi kynslóðum á Íslandi . Fyrir mér vakir að nálgast „æðsta takmark sagnfræðinnar“, en ekki að sverta einn né neinn, með málefna legri gagnrýni minni á fyrrnefndar bækur . Tvískinningur margra vinstri manna á sér lítil takmörk, ekki síst þegar kemur að peningum . Nýlega fréttist af yfirvofandi mála ferlum breska verka lýðs leiðtogans og sósíalistans Arthurs Scargill gegn sínu gamla félagi námumanna í Bretlandi (NUM) . Scargill var mjög herskár þegar hann stýrði félaginu og reyndi m .a . að steypa ríkis stjórn Margrétar Thatcher með blóðugum verk falls­ átökum . En hann áttaði sig ekki á straumi tímans . Thatcher var ekki síst kosin til að koma í veg fyrir að forhert verka lýðsfélög gætu haldið Bretlandi í gíslingu . Þegar barátta Scargills stóð sem hæst á árunum 1984–1985 voru u .þ .b . 187 .000 félagar í NUM en núna eru þeir um 1 .600 . Ekki síst vegna fækkunar félaga hefur núverandi stjórn félagsins reynt að lækka fríðindagreiðslur til Scargills sem þykja ótæpilegar . Er það þó aðeins lítill hluti fríðindanna sem styrinn stendur um, eða 100 .000 kr . á ári vegna bensíneyðslu Scargills og kostnaðar vegna öryggiskerfis á stóru og veglegu heimili hans í Barnsley . Scargill sætir þó líka gagnrýni fyrir að láta verkalýðsfélagið borga um 6,5 milljónir á ári í leigu og annan kostnað vegna þriggja herbergja íbúðar á besta stað í London sem Scargill hefur afnot af . Scargill krefst þess að halda öllum fríðindum óskertum! Af fégræðgi vinstri manna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.