Vísir - 24.12.1940, Blaðsíða 7

Vísir - 24.12.1940, Blaðsíða 7
VlSIR 7 Það var eins ogjiann gæti „formað“ livað sem liann vildi með hamrinum einum. Þegar eg sá liann slá járn, fanst mér allaf, að þótt eg yrði alla mína æfi að þessu sama, myndi eg aldrei geta náð leikni hans. Og hann var ekki síður hagur á tré og kopar og skar úl mót sin sjálfur. Á seytjánda aldurári komst eg fyrir tilstilli Páls Gíslasonar kaupmanns frá Kaupangi, til P»eykja*Víkur og jafnframt undir handarjaðarinn á Stefáni Ei- líkssyni tréskurðarmeistara. Eg flutti með mér til Reykjavíkur þá smiðisgripi úr grjóti, sem' eg átti óselda þegar eg fluttist hingað. Þessa steingripi keypti frú Jónassen, kona landlæknis, af mér fyrir heilar hundr- að krónur, og sendi þetta drasl mitt ásamt ýmsu öðru islensku dóti á sýningu, sem halda átti í Kaupmannahöfn þetta vor. Seinna frétli eg, að þýskur maður, sem kvæntur var systur dr. Helga Péturss, hefði séð smíðisgripi mína hjá frú Jónassen, keypt af henni eina fálkamynd og gefið liana á eitthvert sal'n suður í Dresden. Sömuleiðis kyntist eg málaranema á Akademí- inu í Khöfn, er Rosenberg hét, og hann tjáði mér, að foreldrai sinir ættu mynd, smiðaða úr grjóti, eftir íslenskan dreng, af krakka ríðandi á hesti. Þegar eg kom þangað heim, til að skoða þetta listaverk eftir landa minn, sá eg að gripinn liafði eg sjálf- ur smíðað. — Þetta er það eina, sem og heí'i frétt um afdrif æskuverka minna ytra. Hjá Stefáni Eiríkssyni var eg í þrjú ár. Stefán var einn af ágætustu mönnum, sem eg liefi kynst, og eg hygg að þá sömu sögu liafi allir þeir að segja, sem Stefáni kyntust. Stefán var, svo sem kunnugt er, snillingur liinn mesti í sinni grein og einn- ig vandvirkur og áhugasamur kennari. Sveinsprófinu lauk eg með spegli, sem nú er geymdur á Þjóðminjasafninu. Það er fyrsta prófsmíði í myndskurði hér á landi. Að loknu námi lijá Stefáni Eirikssyni, langaði mig út i lieim- inn, langaði til að skoða mig um og læra meira. Eg ákvað að sigla til Hafnar, og Stefán benti mér að fara til C. R. Hansen’s, forstjóra fyrir stærstu útskurðarstofunni í Khöfn, og það gerði eg. Eg tók mér fariGneð „Ceres“, fullur eftirvæntingar að sjá hina nýju veröld. I aðra röndina kveið eg þó liinu nýja ög óþekta, sem biði mín í framandi landi og meðal framandi þjóðar. Á námsárum mínum í Reykjavík vann eg í hjáverkum min- um mjög mikið úr tálgusteini, sem bræður mínir sendu mér jafnharðan. Á þann hátt var eg búinn að spara saman 300 krón- ur, sem var minn einasti farareyrir til frekara náms erlendis. Fyrsta veturinn minn í Khöfn var eg við útskurðar- og teikni- nám hjá C. R. Hansen, en sumarið næsta eftir byrjaði eg að Spænir, Bónorð (pennateikning). móta hjá Einari Jónssyni myndhöggvara, er þá var orðinn þektur listamaður, og var um þær niundir búsettur i Ivliöfn. Minnist eg margra yndislegra og ógleymanlegra stunda í sam- vistum mínum við liann. Annars vann eg næstu sumur fyrir mér við útskurð, og reyndi eg þá að safna til vetrarins, því það var eina handbæra féð, sem eg hafði til umráða, fyrir utan 300 króna styrk, sem Bjarni frá Vogi gat útvegað mér síðasta árið mitt ytra. Eftir nokkurt undirhúningsnám hjá Einari Jónssyni og á Tek- nisk Selskabsskole, komst eg á listaháskólann. Auk þessa vann eg, er frá leið, á myndskurðarstofu hjá sænskum manni. En þegar eg var búinn að vera þar í eitt ár, dó liann og þá réði ekkjan hans mig fvrir verkstjóra á vinnustofunni. Þetta var mér fjárliagsleg hjálp, því að á þann hátt fékk eg hærra kaup en sveinarnir. En svo var einnig annað í þessu sambandi, sem jók á tekjur mínar. Þessi sænski útskurðarmaður liafði haft það fyrir aukastarf, að teikna skraut á leikbúninga við kon- unglega leikhúsið i Kaupmannahöfn, og þegar hann lést, tókst eg þetta starf á hendur. Og þelta gaf ekki einvörðungu all- drjúgan skilding í aðra hönd, heldur og veilti mér ókeypis að- gang að öllum aðalæfingum leikhússins, en það var mér mjög mikils virði, því eg hefi alla mína æfi verið mjög lineigður fyr- ir leiklist og söng. Á Hafnarárum mínum var eg af ýmsum mjög hvattur lil að leggja fyrir mig söng; hugðu margir það skjólari leið til fjár og frægðar. Má vel vera, að svo liefði verið í bili. Svo var mál með vexti, 'að eg söng þá i Akademí-kórnum, en þar var Albcrt Höeherg, konunglegur óperusöngvari og einn af frægustu söngmönnum Dana, sólóisti. Þegar liann var vant við látinn og mætti ekki á æfingum, féll það í minn hlut að syngja baryton-sólórnar. En hæði Höeherg og eins Cornelius, sem einnig var fraegur danskur söngvari og tenórsólóisti i sama kór, lögðu ákveðið að mér áð læra söng. Sem hetur fór lagði eg þó ekki út á þá braut, hæði vegna þess, að eg var þá ývo langt kominn á mýndlistarbrautinni, o§ Iiins vegar hæði dýrt og erfitt að venda kvæði sínu í kross og'snúa öllu æfistarfi sínu við. Og núna — þegar eg sé við hvaða skilvrði og hvers kon- • ar viðtökur sögvararnir okkar fá hér heima þá sé eg ekki eftir því, þó eg hafi ekki lagt ú't á þá hálu braut. Þegar eg kom til Hafnar árið 1908 logaði alt í úlfúð og kriti á milli íslendinga og Dana út af sjálfstæðismálunum. Knud Berlin var þá okkar svarnasti andstæðingur og æsti Dani upp i úlfúð og andúð gegn okkur. Undir eins og eg kom á mynd- skurðarstofuna til C. B. IJansen’s, fann eg kuldann, sem and- aði til mín sem. íslendings. En eg var ungur, viðkvæmur, stolt- ur fyrir hönd landa minna og tók upp þykkjuna fyrir þá. Eg *yar þess vegna stundum helst til fljótur að skifta skapi, ef
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.