Vísir - 24.12.1940, Blaðsíða 33

Vísir - 24.12.1940, Blaðsíða 33
VÍSIR 33 Fótgangandi að leita læknis 100 km. veg um jólaleytið. Frá ferðum Stefáns Filipussonar \ r \ Stefán Filipusson varð sjötugur fyrir fáeinum vikum. Hann er Skaft- fellingur að ætt og uppruna og ólst þar upp. — Stefán er meiri ferða- langur en flestir aðrir íslendingar, hann kann frá mörgum svaðilför- um að segja, og birtist hér ein þeirra. Stefán er f jölfróður og minn- ugur vel og segir prýðisvel frá. — --- - — - ----------------- ---------- - - - STEFÁN FILIPUSSON Á Ránargölu 9 hér í bæ liýr aldraður Skaftfellingur, Stefán Filipusson að nafni. Mestan aldur sinn hefir hanh alið á frjórri lendum en grárri steinlagðri götunni. Rætur han§ liggja djúpt í þeim jarðveg, þar sem íslensk sveitamenning í þessa orðs besta skilningi hefir náð að blómgast ómenguð, kynslóð fram af kynslóð. Framkomuna einkennir opinská einlægni í öllum sínum einfaldleik. Rak við hana hýr djúp reynsla og þungi. Það er svipur landsins, sem: „fóslrar við hættur, því það kennir þér að þrjóskast við dauðann i trausti á þinn mátt“, eins og Klcttafjallaskáldið kvað. Stefá Filippusson er einn af allra víðförlustu mönnum um ættland sitt. Eitt sinn, er eg kom til hans, dró hann fram uppdrátt af íslandi; uppdrátturinn er allur dreginn daufum rauðlitum strikum. Öll þessi strik fylgja sporum Stefáns um bygð og óbygð landsins hans. Alt frá æskuárunum liafa ýmisl sóllilýir vor- og sumarvind- ar fjallanna strokið mjúklega um vanga lians eða ógnir og ofurmagn ofviðra langra vetrarnátta þeirra rist djúpar rúnir reynslu í svipinn og e. I. v. litið nokkur liár grá. Sagan, sem liér fer á eflir, af einni af ferðum Stefáns, gerð- ist, er hann hjó á Brúnavík við Borgarfjörð eystra. Þá var á Breiðavík skamt þar frá einsetumaður nokkur, er Grímur hét. Ekki var Grimur við alþýðu skap. Fáir þektu hug hans til nokkurrar hlítar.%Faslur þótti hann á fé og ekki greiðasam- ur almenningi. Hitt var mál manna, að teldi hann sig í vin- fengi við einhvern, -væri hann honum góður vinur og trúr. Eitthvað þektust þeir Stefán og inun hafa verið gott með þeim. Nú ber svo lil vetur einn, nokkrum dögum fyrir jól, að Grímur í Breiðavík legst veikur og er þungt haldinn. Grunur gerir þá Stefáni orð með ferð, sem fellur um Breiðu- vík til Stefáns, og treystir honum að fara þegar í stað að Brekku i Fljótsdal, til læknisins, og fá meðul, ef ske kvnni að þau mættu sér til hata verða um hátíðina. Var það að kvöldi dags, er skilaboðin komu til Stefáns. Á- kveður liann þegar að takast á hendur förina, enda þótt yfir fjöll væri að fara og tíð ótrygg, þvi að ekki vildi hann hregð- ast trausti Grims. Um kl. 5 morguninn eftir stendur Stefán búinn í hlaði. Veð- ur er hið besta, glatt tunglskin, og hjarn hylur alla jörð. Hvgg- ur Stefán gotl til ferðarinnar. Vegalengdina frá- Brúnavík að Brekku i Fljotsdal telur Stef- án vera um það eins og frá Reykjavik og austur að Geysi i Biskupstungum, en það eru ca. 118 kílómetrar. Leið Stefáns liggur nú fyrst inn Borgarfjörð, fram hjá Itóla- landi, yfir Sanddalaskörð ofan i Mínudaþ norðan fjallanna. Spekist honum ferðin greitt og er hann þar um þu-Ieytið f. h. Þaðan lieldur liann áfram áleiðis að Eiðum; var liann kunn- ugur .Tónasi skólastjóra þar. Þiggur liann þar kaffi og lieldur síðan inn Eiðaþinghá og norður yfir Lagarfljót, uns hann kernur að Ekkjufelli kl. 8 að kvöldi. Hyggst Stefán að gista þar, því að hann liefir langa leið að baki. Eftir skannna dvöl þar, kemst Stefán að því, að á bæn- um liggi maður fyrir dauðanum í liættulegri sótt. Telst hon- um ekki vænlegt að eiga þar næturstað; kynni þá að taka sóttina. Heldur Stefán því frá Ekkjufelli og áleiðis að Brekku. Kemur hann þángað stundu fyrir miðnætti þennan sama dag. Læknir var þá á Brekku Jónas Kristjánsson, sá, sem kendur er við Sauðárkrók og nú stundar náttúrulækningar hér i Reykj avik. Fær nú Stefán ekki meðulin um kvöldið, enda töldu menn, að ekki myndi honum veita af að hvíla sig eftir svo langa ferð á einum degi. Þiggur hann gistingu á Brekku. Nokkuð þykir Stefáni meðulunum seinka morguninn eftir. þiggur hann veitingar góðar, meðan Jónas bruggar. En er leggja skyldi af stað, spyr læknir, hvort hann vilji ekki „hoff- mannsdropa“ mcð sér. „Það er gott að hafa hoffmannsdropa, ef manni verður kalt“, segir Jónas. Þakkar Stefán lækni vel og leggur af stað þaðan klukkan 11 f. h. En nokkru fyr skellur á bylur með mikilli fannkomu, svo að ilt er að rata. Á Egilss.töðum slæst í förina maður nokk- ur Þorsteinn að nafni. Er það ætlun Stefáns, að ná Eiðum um lcvöldið. En nokkru eftir dimmu eykst enn bylurinn og veð- ur harðnar að sama skapi, svo að ógjörningur er að halda lengur áfram. Stefán er þarna vel kunnugur, og ákveður nú að reyna að ná Snjóholti í Eiðaþinghá. Er þeir félagar koma þar, sem Stefán á hæjarins von, er myrkur svo mikið, að ekki sér út úr augum. Vita þeir ekki fyr til en þeir defta um garð- brot, sem fyrir þeim verður, og eru þeir þá i lilaðvarpanum í Snjóholti. Er þeim 'boðið til bæjar og' ekki annað sýnt en þeir yrðu að dveljast þar um nóttina. En seint um kvöldið styttir upp um stund, og halda þeir félagar þá þegar af stað, Stefán fer að Eiðum, en þar átti hann margt vina, en Þor- steinn heldur að Brennistöðum. Um kvöldið biður Stefán Guðlaugu liúsfreyju að sjá til þess, að hann yrði eigi seint búinn til ferðar næsta dag, því að þá ætlaði hann sér alla leið heim. Ekki kemst Stefán þó frá Eiðum fyr en kl. 10 f. h. Hús- freyja innir hann eftir þvi, hvort ekki sé betra að búa hann úl með nesti, en Stefán kveður þess eigi þurfa; býst við að geta haft hraðan á, og hálfa flatköku á hann eftir af nestinu, sem hann fór með að heiman. Þegar hann fer frá Eiðum, er skollin á sama hríðin og dag- inn áður. Segir nú ekki af Stefáni f\’r en hann kemur að Brennistöð- um, þar sem Þorsteinn er fyrir, en liann ætlar að verða sam- ferða áfram. Þorsteinn er ekki fyllilega heill lieilsu, og list Slefáni óráð mikið fyrir hann að leggja á fjallið i slíku veðri, rn ráðleggur honum að fara aðra leið. En þvi verður ekki um þokað. Þorsteinn vill fara. Stefán er ekki sem hest kunnugur á þessum slóðum, og treystir ekki til fídls að Þorsteinn muni duga, er á reynir. Bið- ur hann því Þórarinn bónda á Brennistöðum að ljá sér menn til fylgdar upp að Beinageitarfjalli. Þaðap er hann viss um 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.