Vísir - 24.12.1940, Blaðsíða 53

Vísir - 24.12.1940, Blaðsíða 53
VlSIR 53 i Útgáfustjórn Vísis JAKOB MÖLLER BJÖRN ÓLAFSSON < formaður. 1940 KRISTJÁN GUÐLAUGSSON 1911 í blaðinu á þessa leið, en þá hafði það verið gefið út í eitt ár, og er þar rætt um út- gáfuna á árinu: „Þótt hann fari ei stórt af stað strax mun aukast géngið“ var spáð fyrir honum, og þó að sú spá virtist þá nokkuð glæfra- leg, þá hefir hún rætst. Or 1000 eintökum komst hann brátt upp í 1500 og nokkrum sinnum hefir orðið a'ð endurprenta hann og hafa upplagið 2000. Mest öll salan er liér i bænum, 11—13 hundruð. Dálitið er hann farinn að komast i versl- unarstaðina umhverfis landið og lítið eiit út um sveitirnar. Svo fer hann ögn út i álfuna og til Vesturheims, og jafnvel til Höfðanýlendu i Suðurálfu.“ Þessi reyndist árangurinn eftir árið, og mun hlaðið liafa talist mjög úthreitt, ef dæma má eftir ýmsum aðsendum greinum, þar sem Vísi eru tjáð- ar þakkir fyrir þá lijálp, sem hann veitti þegar frá uppliafi ýmsum mannúðarmálum. Vinnuskilyrði. Af þessu virðist mega álykta, að salan hafi þegar í upphafi gengið greiðlega, — eða a. m. k. eins greiðlega og unt var að anna í prentsmiðjunni, en þá voru vinnuskilyrði öll erfið og þættu lítt til fyrirmyndar nú. Alt blaðið var handsett, þ. e. a. s. hver einstakur stafur tek- inn upp úr setjai'ahorðinu og þeim raðað upp í orð og setningar, uns allar siður voru að fullu gerðar, en setj- ararnir voru bandfljótir og kunnu það starf, sem þeir tóku að sér að vinna. Þektust ekki setjaravélar hér á landi fyr en árið 1914, að prentsmiðjan Rún keypti eina slíka vél. Seinlegt verk var einnig að leggja letrið af og raða því í liólf eftir stöf- um. En ei var sopið kálið, þótt í ausuna væri komið, og mátti segja, að hið erfiðasta væri eft- ir, er húið var að koma saman síðunum. Þá fór blaðið í prent- vélina, sem var allmikið bákn, með heljarmiklu hjóli með handfangi á, enda var vélinni snúið af mannlegum mætti ein- um saman. Voru til þessa verks valdir hinir sterkustu menn og stóðu þeir þarna tímunum saman fáklæddir, en rennandi i svita og blásandi af mæði, og sneru og sneru þangað til blað- ið var að fullu prentað. Myndu kaupendur Vísis nú, væntan- lega verða óánægðir yfir dreif- ingu hlaðsins, ef ekld væri völ á öðrum „hraðpressum“ en slíkum, en að þvi mun verða vikið síðar, enda eru það „sjmdir" fortiðarinnar, sem nú skulu ræddar, en ekki nútiðar- innar, sem síst er á bætandi. Einar Gunnarsson vann að útgáfu Vísis í litlu herbergi uppi á lofti í gamla húsinu hans Árna rakara, Kirkjutorgi 6, og þar hafði hann einnig af- greiðsluna ]iar til hún fluttist i Báruhúð. Vann hann að ])essu öllu einn i fyrstu, en fékk síð- an aðstoð konu sinnar, Mar- grétar Líndal, við afgreiðsluna, og annaðist hún hana lengi framan af, bæði þarna og síð- ar i húsi Thomsens við Lækj- artorg, þar sem nú er Hótel Hekla, gamla Vöruhusinu, sem hrann, og að Hótel ísland. og mun að þvi vikið á öðrum slað. Stjórnmálin. Það var aðeins á einu sviði, sem Einar Gvmnarsson reyndist ekki trúr hinni upphaflegu stefnu sinni. Ætlunin var að Vísir yrði ópólitískur, en hann varð það ekki nema til jóla ár- ið 1910 eða í 6 fyrstu blöðun- um. Blaðið, sem út kom 14. febrúar, mætti þó telja með, en þá kom Alþingi saman, og þá var úti friðurinn þegar þeir „fóru að hltssa“. Sjaldan hafa meiri átök orðið á Alþingi. Björn Jónsson var þá ráðherra, en strax í þingbyrjun reis nokk ur hluti flokks hans upp gegn honum og var borið fram van- traust honum á hendur. Bene- dikt Sveinsson alþm. hafði framsögu fyrir hönd hins óá- nægða flokksbrots, og ræða hans í því máli er fyrsta póli- tíska ádeilan, sem í Visi birtist. Bætti það ekki úr skák, að út- dráttur úr svarræðu Björns .Tónssonar var birtur síðar, en ákveðin afstaða tekiri gegn honum. Hygg eg, að upp frá þessu hafi aldrei mátt telja Vísi ópólitískan, og liann á sennilega — og raunar vonandi — aldrei eftir að verða það. Fréttastarfsemi. Einar Gunnarsson lagði strax i upphafi megináherslu á það, að afla blaði. sínu góðra frétta erlendra og innlendra. Nokkuð framan af voru fréttir þessari þó samtíningur úr erlendum blöðum, og koma sumar þeirra mönnum nú á dögum einkenni- lega fyrir sjónir. Til gamans skal birt hér ein smáglefsa, er nefndist „Holur í Ioftinu“, og var svoliljóðandi: „Ekki þyk- ir neitt merkilegt, að sjá lofl- bólur i rennandi vatni, svo sem þar sem hringiða er eða vatn rennur á ósléttu, en það er fyrst i ár, að menn eru farnir að lxalda því fram, að samskon- ar eigi sér stað í loftinu. Það séu holur i loftinu. Er það eink- um enskur flugmaður, sem vill staðhæfa þetta, og álítur að livirfilvindar stafi af þessu, svo og mörg flugvélaslys, því þegar flugvél kemur i loftlaust rúm, vantar liana efni til að halda sér uppi og hlýtur að steypast niður.--------Telur liann það ekki geta komið af öðru en holum í loftinu.“ Þessar „loft- holur“, sem hér munu vera nefndar J fyrsta • sinni í ís- lensku blaði, lægðir o. fl. slík hugtök voru lengi vel illa séð hjá rosknu kynslóðinni, enda sagði ein kerlingin nú fyrir 4 árum: „Gáfaður maður var hann faðir minn, en aldrei tal- aði hann um lægðir.“ Þetta ,er eitt dæmi þess,'að nýjungarnar eru ekki ávalt vel séðar, þótt sannar séu og af því fá blöð- in stundum að finna smjör- þefinn. Er stundir liðu fram, aflaði Einar Gunnarsson fréttasam- banda erlendis, og voru skeyta- sendingar mjög auknar eftir að heimsstyrjöldin hófst og sam- kepni frá öðrum dagblöðum, sem þá koniu einnig til skjal- anna. Má fullyrða, að Vísir hafi fyllilega haldið velli fyrir þeim i þessu efni, án þess að á nokk- urn sé hallað. Innlendu fréttasamböndin voru frá upphafi i ágætu lagi og sýnir það út af fyrir sig mikinn dugnað, að skipuleggja þá starfsemi svo vel sem raun varð á, og halda henni við lýði. Myndir birtust altaf annað veifið í Vísi, og oft var hann litprentaður, en þó í fyrsta skifti, er liáskóli íslands var stofnaður, 17. júní 1911, á 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar. 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.