Vísir - 24.12.1940, Qupperneq 18
18
VlSIR
§.
ÞEGAR ARNE BORG
Arne Borg.
boð viiiar síns, þá þótli honum
það skemtilegra og mat það
meira en að setja lieimsmet.
I þau skifti, sem Arne Borg
mætti, var liann ekki altaf vel
fyrirkallaður. Hann var góður
knattspyrnumaður, og það gat
auðveldlega komið fyrir, að
hann kepti fyrir félagið sitt í
knattspyrnu síðustu klukku-
stundina áður en liann ætlaði
að hæla heimsmetið sitt. Hann
gleymdi sér í liita og ákefð
kappleiksins og kom sem lurk-
um laminn á sundmótið. Ár-
angurinn, sem þessi heimsfrægi
sundgarpur náði þá, varð blátt
áfram til athlægis, bæði utan
FÓR
TIL
manns, og það þeim mun frem-
ur sem hann hafði sátt að
mæla. —- Það, sem hann sagði,
var óhrekjanlegt.
Svo var það dag nokkurn að
Arne Borg fékk bréf frá her-
stjórn lieimalandsins um að
gegna lierþjónustu og uppfylla
hernaðarlegar skyldur sínar
við föðurlandið.
ASTRALÍU
EFTIR ÞORSTEIN JÓSEPSSON
Þegar íslenskir sundknattleiksmenn keptu á móti Sví-
um á Ólympíuleikunum síðustu, sat snyrtilegur, Ijóshærður
maður á áhorfendapöllunum og brosti að yfirburðum Sví-
anna, en lét sig þennan leilc að öðru leyti eklci miklu skifta.
Þessi maður var þjálfari sænsku sundmannanna og hét
Arne Borg.
Hver einasti maður, sem fylgst hefir með afrekum er-
lendra sundgarpa, mun kannast við þetta nafn. Og maður
kannast við það fyrir þá sök, að Arne Borg var um eitt
slceið frægasti sundmaður jarðarinnar — jafn frægur sund-
maður sem Nurmi var frægur fyrir hlaup —, en hann var
jafnframt einhver kærulausasti íþróttamaður og dutlunga-
fylsti, sem sögur fara af.
Það má vel vera, að sögurnar af Arne Borg séu að
einhverju leyti ýktar og að nokkru leyti uppspunnar. Það
verða óumflýjanleg örlög frægra manna, að um þá mynd-
ast sanriar og lognar sögur — stundum tröllasögur. Oftast
nær liggur samt einhver sannleikur á' bak við þær.
Eg hefi hripað upp nokkurar af þeim sögum, sem ganga
um Arne Borg, bæði í Svíþjóð og annarstaðar í heiminum,
þar sem Arne er kunnur sem iþróttamaður eða persónuleiki.
Arne Borg var sérvitringur.
Hann þræddi sínar eigin göt-
ur og tók ekki annað til greina
en sína eigin dutlunga. Og
dutlungarnir voru margir og
óútreiknanlegir, en samt var
kæruleysið enn ríkari þáttur í
eðli hans og framkomu. Þetta
varð stundum til óþæginda,
jafnvel til alvarlegra árekslra
milli hans og stjórna íþrótta-
félaga og -sambanda, en gagn-
vart einstaklingum var Arne
prúðmenskan sjálf og hvers
manns hugljúfi.
Um það leyti, sem Arne Borg
var á hátindi frægðar sinnar,
sóttust sænsk sund- og íþrótta-
félög mjög um það, að stofna
til sundmóta, þar sem Arne
Borg væri þátttakandi. Helst
vildu mótanefndirnar fá leyfi
hjá honum til að auglýsa, að
hann ætlaði sér að bæta göm-
ul met, jafnvel að setja ný
heimsmet.
Jú, Arne Borg var prúð-
menskan sjálf. Hann hélt, að
félögin mættu auglýsa hvað
sem þau vildu, og vildi alt fyr-
ir þau gera.
í blöðunum birtust heilsíðu-
auglýsingar. Þar stóð, að sund-
garpurinn Arne Borg ætlaði að
gera tilraun til að setja nýtt
heimsmet á ákveðnum degi og
ákveðinni stundu, og blöðin
tiltóku þetta alt nánar.
Þetta varð að vísu til þess,
að hvert einasta sæti varð full-
skipað og félögin rökuðu sam-
an peningum. En flest þessara
móta höfðu þánn leiða ágalla,
að það vantaði á þau einn ó-
missandi mann, og þessi ómiss-
andi maður var höfuðpaurinn
sjálfur — Arne Borg. Arne var
samkvæmismaður, og væri
honum boðið á dansleik eða í
brúðkaupsveislu eða afmælis-
og innan endimarka heima-
landsins.
Þetta framferði Arne Borgs
vakti regin hneyksli i Svíþjóð.
Þjálfarar, dómarar, forstöðu-
menn sundmótanna og blaða-
menn gátu ekki orða bundist
og lieltu skömmum og sví-
virðingum yfir þetta dæma-
lausa framferði sundgarpsins.
Þeir sögðu, að með þessu móti
yrði Arne sér til ævarandi
skammar, en það væri ekki
það versta: þetta væri óíþrótta-
mannslegt og það væri álits-
hnekkir fyrir sænska íþrótta-
menn og sænsku þjóðina í
heild.
Arne las og las. Hann safn-
aði úrklippum af öllum þess-
um skömmum um sig og límdi
þær inn í bók. Bókin þyknaði
með hverjmn dégi og þegar
ekki komst meira í hana, svar-
aði Arne Borg fyrir sig i einni
stuttri blaðagrein. Svar hans
var aðallega fólgið 1 fyrir-
spurn, sem hann gerði til þess-
ara manna, þar sem hann spyr
þá, hvort hann liafi nokkuru
sinni ráðið sig sem metavél í
þágu sænsku þjóðarinnar.
Sjálfur segist Arne Borg ekki
vita til að svo sé, og hann seg-
ir að sér sé heldur ekki kunn-
ugt um það, að sænskir íþrótta-
frömuðir eða blaðamenn hafi
minstu vitund yfir sér að segja.
Hann segist vera þeirrar skoð-
unar, að liann sé sjálfráður
gerða sinna, hann sé sjálfráð-
ur Ipvenær hann setji met og
hvenær ekki, og loks, að það
sé sitt’ að dæma um það, í
hvaða skyni hann iðki iþróttir.
Arne Borg var óbetranleg
sál. Svíarnir stóðu orðlausir af
undrun yfir ósvífni þessa
Arne hafði ímugust á öllum
skyldum, en alveg sérstaklega
á herskyldu. Það starf var ó-
mannúðlegt í lians augum, og
óskemtilegt hlaut það lika að
vera.
Daginn, sem Arne Borg
skyldi mæta í herþjónustu,
livarf hann skyndilega, og eng-
inn vissi hvert. Viku seinna
bárust símskeyti heim til Svi-
þjóðar um glæsilega sigra, sem
sundgarpurinn Arne Borg
hafði hlolið suður á Spáni. Af
tvennu illu, sagði hann, væri
betra að setja ný heimsmet
suður á Spáni en læra mann-
dráp heima i Sviþjóð.
Þegar Arne kom heim til
ættjarðarinnar aftur biðu hans
handjárn og fangelsi. Hann
hafði brotið sænsk herlög og
við því var fangelsishegning.
Hann hafði ratað i ný æfintýri
á suðurgöngu sinni, hann hafði
svalað útþrá sinni og hann
hafði drukkið í sig eld og á-
striðumagn hins spanska þjóð-
lífs. Hann lifði i endurminn-
ingum um þessa fögru daga á
meðan hann var í steininum;
og sjálf dvölin þar var ekki
annað en æfintýri, sérstætt
og frábrugðið öllum öðr-
um.
Um þessar mundir bárust
þau tíðindi sunnan frá Ástr-
alíu, að þar væri kominn fram
drenghnokki, 15 eða 16 ára að
aldri, sem setti sundmet sér til
dægrastyttingar. Og þessi met
voru svo ískyggilega nálægt
heimsmetum Arne Borgs, að
sundsambandið sænska sá sér
ekki annan lcost vænni, til að
bjarga heiðri þjóðar sinnar, en
senda Arne suður til Ástralíu,
svo heimurinn gæti séð það
svart á hvítu, að Svíar ættu