Vísir - 24.12.1941, Blaðsíða 31
JÓLABLAÐ VÍSÍS
31
andi áhorfenda, gaf eg mér fyrst
tóm til að líta um öxl. Kýjrin
hafði nú rutt sér nokkuu stærra
svæði og gerði atlögur að mann-
grúanum. Þegar fólkið lagði á
flótta, sá' eg brúðuna skoppa á
eftir kúnni, því að hún var
bundin við annað hornið á henni
með snæri.
Eg hafði sloppið alvég ó-
meiddur, ef ekki eru taldar
nokkrar smáskrámur og fór nú
á eftir hópnum, þvi að eg vildi
sjá allt, er fram færi. Slóst eg i
för með náunga einum, sem var
hinn vingjarnlegasti og kunni
dálítið í ensku.
Enginn veit livenær þessi há-
tíðahöld fóru fyrst fram, né af
hvaða ástæðum. Því er þó haldið
fram, að þau hafi átt upptök
sín í heiðni, áður en Baskar
snérust til kristinnar trúar. Eitl
er þó alveg vist í þessu sam-
bandi, og það er, að margir
hinna baskisku dansa — til
dæmis hinn svonefnda „vin-
glasa“-dans -— eru næstum al-
veg eins og þeir, sem Forn-
Egiplar dönsuðu til heiðurs
gyðjunni Osiris.
Allan tímann, sem fiesta
stendur yfir — átta ógleyman-
lega daga og nætur — liggja öll
viðskipti í Bayonne niðri. Aðeins
fótgangandi fólk má vera á ferli
á götunum og ef einhverjum ó-
kunnugum ökumanni yrði það
á, að reyna að aka um götur
borgarinnar, mundi fólkið setj-
ast eða Ieggjast umhverfis bíl-
inn, þangað til lögreglan tæki
hann í sína vörzlu og setti öku-
manninn í fangelsi!
Allar verzlanir voru lokaðar,
að undantöldum niatvöru- og
vínverzlunum og hundruðum
kaffihúsa. Einn dagiftn voru þó
leyfð sérstök viðskipti — það
var leyft að selja gamla muni i
skrautlegum sölubúðum, sem
reistar höfðu verið á gangstétt-
unum. Sveitakonurnar eru góð-
ir viðskiptamenn þessara húða
og þær eru furðulega slyngar i
að þefa uppi þá muni, sem verð-
mætastir eru.
Það er aðeins leyfilegt að
selja eina vöru aðra — „con-
fetti“. Mannfjöldinn kaupir
þessi pappírssnifsi hlátt áfram í
smálestatali, og stráir þeim yfir
hár þeirra, sem næstir eru og
reynir að troða upp í þá. Maður
veður brátt upp í ökla í „con-
fetti“.
Þegar kveldaði var hringt til
kveldbænar og er síðustu óm-
arnir voru að deyja, var eg allt
í einu umkringdur af hópi
ungra manna og kvenna, sem
föðmuðu mig og kysstu! Hóp-
ar unglinga höfðu tekið höndum
saman og myndað „kossa-
keðjur“, sem hlupu um göturnar
með ópum og óhljóðum.
Eg var eitt af mörgum „fórn-
lömbum“ og varð nauðugur
viljugur að leyfa hverjum ein-
asta i keðjunni að reka mér
rembingskoss á báðar kinnarn-
ar! Hver bæjarhluti í Bayonne
liefir sínar „lcossakeðjur“ — eg
held að Baslcar hafi mesta yndi
af að kyssa — og fyrirliði
hverrar þeirra er jafnan valinn
stærsti og sterkasti pilturinn.
Ef mannþröngin vill ekki vikja
fyrir keðjunni, er það verk hans,
að setja höfuðið undir sig og
ryðja brautina!
Kossakeðjurnar sækjast mjög
eftir tengdamæðrum, sem eru
þekktar fyrir að vera tengda-
börnum sínum erfiðar — en það
er ekki sótzt eftir þeim til að
kyssa þær. Eg sá hvernig ein,
sem var sérstaklega óvinsæl,
var tekin, kreist og krainin.
Þegar hún ætlaði að andmæla
þessu með blóti og ragni, var
munnurinri á henni troðinn
fullur af „confettf1, svo að hún
gat ekki komið upp nokkuru
hljóði!
Þegar þessir flokkar eru á
ferli er blátt áfi’am hættulegt að
vera úti öðru vísi en brosandi,
Piltarnir og stúlkurnar virðast
vera óþreytándi. Enda þótt þau
fari að jafnaði ekki í háttinn
fyrri en kl. 4 á morgnana, byrja
þau af sama kappi næsla kveld,.
eins og ekkert hafi i skorizt.
Bæði piltar og stúlkur eru klædd
í litfagrar skyrtur og liálsklúta,
sem eru bundnir á sama hátt og
hjá kúrekum i Bandaríkjunum
og bæði kyn eru í bláum eða
rauðum buxum, sem falla fast
að líkamanum. Á fótunum hafa
þau espadrilles (skó) með flétt-
uðum sólum.
En það eru fleiri fagurlega
klæddir en þeir, sem eru í kossa-
keðjunum, því að Txistularis og
Casarots (karlmenn, sem dansa
baskiska þjóðdansa) eru ekki
síður skrautklæddir. Þeir hring-
snúast á torgunum og Iivar sem
nægt rúm er, slá um leið á
bjöllubumbur og stökkva hátt í
loft. Þeir dansa eftir undirleik
„hljómsveitar“, sem í er har-
mon ikuleikari, trumbuslagari
og flautuleikari. Þessir dansar-
ar eiga það sameiginlegt með
„kossakeðjunum“ að þeir virð-
ast gjörsamlega óþreytandi, en
hljómsveitin þgirra verður að
hvíla sig við og við og tekur þá
önnur við á meðan.
Margir hinna glæsilegu búri-
inga, sem Txistularis klæðast
(Casarot-dansararnir eru í
drifhvítum fötum, með marglit-
ar húfur, skó og mittislinda)
ganga í erfðir mann fram af
GLEÐILEG JÓL!
Trolle & Rothe h.f.
GLEÐILE G JÓL!
Elding Trading Compang.
GLEÐILEG JÓL!
Litla blómabnðin.
GLEÐILEG JÓL!
O G FARSÆLT NÝÁR!
Vigfús Guðbrandsson & Co.
GLEÐILEG JÓL! '
Jón Loftsson.
- Vikurfélagið.
Sælgætis- og efnagerðin Freyja h.f