Vísir - 24.12.1941, Blaðsíða 37

Vísir - 24.12.1941, Blaðsíða 37
 um að klefadyrunum. Enginn var í göngunum. Rúm var þar, en enginn sængurfatnaður var í þvi, og i horninu var ofn. Inn- siglin á klefadyrunum voru ó- lireyfð. Þegar eldspýtan var útbrunn- in, gægðist bankastjórinn skjálf- andi inn um klefagluggann. Þar var alldimmt, en það log- aði á kerti á borðinu, sem 'fang- inn sat við, og hann sneri baki að dyrunum. Bankastjórinn gat aðeins séð hnakka hans, lierðar og hendur. Á borðinu lágu bæk- ur margar, og eins á tveimur stólum, sem þarna voru, og á ábreiðunni á gólfinu. Nokkrar minútur liðu og fanginn lireyfði sig ekki. I fimmtán ára einveru liafði hann vanist á að sitja hreyfingarlaus með öllu. Bankastjórinn barði hægt á rúðuna, en fanginn hreyfðist ekki að heldur. Þá braut bankastjórinn innsiglin varlega og stakk lyklinum i lás- inn. Það marraði í hjörunum, er bankastjórinn opnaði dyrn- ar. Hann bjóst við, að fanginn mundi reka upp undrunaróp, er Iiann lieyrði marrið og fótalak- ið, en hann sal alveg kyrr. Þrjár mínútur liðu og það var eins kyrrt í klefanum og það hafði áður verið. Og bankastjórinn ó- kvað nú að ganga lengra inn i klefann. Við borðið sat maður, ólikur öðrum mannlegum verum. Hann var ekki annað en skinin beinin, liár hans var ln okkið og langl sem kvenmannsliár og skegg hans var sítt og strýlegl. Hann var gulleitur í framan. Húð lians var eins og leirbland- in mold. Ilann var kinnfiska- soginn, herðarnar signar, bakið þreytulegt, og Iiandleggurinn, sem höfuð lians hvildi á, var svo grannur og skininn, að sárt var á að" horfa. llárið var silfur- grált orðið og andlilssvipurinn svo elli- og mæðulegur, að eng- an gat rent grun í, að maðurinn væri aðeins fertugur. Fyrir framan hann á borðinu lá út- skrifuð örk. Skriftin var fín- gerð og smá. „Vesalingurinn," sagði banka- stjórinn, „hann hefir sofnað og dreymt um milljónirnar. Eg þarf ekki mikið fyrir lionum að hafa. Eg get fleygt honum í flel- ið, lagt koddann yfir höl'uð hans og kæft hann. Þótl læknisskoð- un fari fram munu ekki finnast nein merki þess, að hann hafi dáið óeðlilegum dauða. En nú er bezt að athuga hvað hann hefir skrífað.‘f Bankastjórinn tók örkina og Igs: „Aðra nótt — klukkan lólf JÓLABLAÐ VÍSIS 37 á miðnætti — fæ eg frelsi mitt á ný og eg hefi rétt til þess að vera með öðrum mönnum, taka þátt í gleði þeirra og sorgum. En áður en eg fer úr klefa mín- um og sé sólina rísa upp, vil eg láta það í Ijós, sem i huga mín- um býr. Af góðri samvizku og fyrir augliti guðs, sem vakir yf- ir mér, lýsi eg yfir því, að eg fyrirlít frelsið, lífið, heilbrigði, allt það, sem menn kalla bless- un í þessum heimi. í fimmtán ár hefi eg ástund- að af kostgæfni, að kynna mér jarðneskt lif. Eg sá að vísu hvorki jörðina né mennina, en eg sökkti mér niður í bælcur, drakk angandi vín, söng fögur ljóð, fór á dýraveiðar i skógun- um, varð ástfanginn af konum. Og fagrar konur, sem liðu á- fram sem ský í vindi, fagrar konur, sem afburða slcáld skópu, komu til mín að nætur- lagi og hvísluðu að mér — sögðu mér frá mörgum dásemdum, og eg varð drukkinn unaði. Er eg sat jrfir bókum, kleif eg hæstu tinda, Elbruz og Mont Blanc, og af efstu gnípum þeirra sá eg sólina rísa í austri, og á kvöldin sá eg roðann í vestri, hliðarnar og hafið, vafið gullinni purpuraskikkju. Eg leit í hæðir upp — eg sá elding- arnar kljúfa skýin. Eg sá fagur- græna skóga, akra, fljót, vötn, borgir. Eg heyrði töfradisir syngja, eg hlustaði á Pan, er hann blés í flautur sínar, eg snerti vængi englanna, sem svifu framhjá mér, og sögðu mér frá guði — eg sökkti mér niður i bækur, og henti mér niður i hyldýpisgjár örvænting- arinnar við lestur þeirra, eg gerði kraftaverk, eg eyddi borg- um í eldi, eg boðaði nýja trú, eg sigraði ný lönd .... Eg sökkti mér niður i bækur og öðlaðist mikinn vísdóm. í Iiuga mér safnaðist öll þekking og reynsla mannanna, sem þeir höfðu öðlast með alda iðni og striti. Og eg sannfærðist um, að eg væri vitrastur allra. Og eg fyrirlit bækur yðar, alla blessun heimsins og vizku. Allt er fánýlt, veikburða, sjón- hverfing, blekking, eins og töfrasýn. Hversu stoltir, sem þér eruð, vitrir, fagrir, kippir hönd dauðans yður af yfirborði jarðar, eins og moldvörpunum, sem húka niðri í jörðunni. Og allt, sem þér hafið afrekað, allt, sem eftir yður liggur, saga ýðar og ódauðleiki afreksmannanna — verður sem storknað hraun á yfirborði bins útbrunna jarð- hnattar. Þér eruð viti firtir og farið villur vegar. Fals og fláræði 1 GLEtílLEG JÓL! 1 GLEtílLEG JÓL! jj Nordals-ísliús. || Reiðhjólaverksmiðjan Ö r n i n n. XXX X5COOÍ 5ÍXXXXXXXX 5Í 5Í5Í5 ÍX 5íxÍ GLEÐILEG JÖL! Vevzlunin Vurmá. Óskum viðskiptavinum okkar GLEÐILEGRA JÖLA OG NÝÁRS! ÁRNES. rw,00!x^!00000^ GLEÐILEG JÖL! | II úsyagnaverzlun Fríðriks Þorsteinssonar. V.YZA XiíXXX ÍOOttOOöötK XiOOÍX 5Í5ÖÍ GLEÐILEG JÓL! Hannes Erlendsson, klæðskeri. GLEÐILEG JÓL! Húsgagna verzlun Kristjáns Siggeirssonar. GLEtílLEG JÓL! Verzlun Guðjóns Guðmundssonar GLEtílLEG JÖL! GLEÐILEG JÓL! Kjöt Jc Fiskur. - Efnalaugin Glæsir, Hafnarstr. 5. 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.