Vísir - 24.12.1941, Side 58

Vísir - 24.12.1941, Side 58
58 JÓLABLAÐ VlSIS Verzlunin Björn Kristjánsson Jón Björnsson & Co, Silkisokkar Nærfatasett Náttkjólar Kvenpeysur Kjóla- og kápuefni o. fl. JÓLAGJAFIR í heimsstyrjöldinni 1914-1918 mundu íslendingar hafa orðið að þola margs- konar skort, ef hið nýstofnaða Eimskipafélag Islands hefði ekki með siglingum sínum til Ameríku, forðað þjóð vorri frá yfirvofandi vöruþurrð og neyð. Enn hefir EIMSKIP gerzt brautryðjandi og hafiö siglingar til Vesturheims. Munið þessar staðreyndir og látið F O S S- A N A annast alla flutninga yðar. ekki vænt um liann lengur?“ spurði Sigga og lijúfraði sig þéttar að systur sinni. Við hverl orð sem hún talaði óx henni kjarkur. Helga þagði um stund, svo sagði liún lágt. „Þú skilur það ekki, væna mín, þú ert svo mik- ið barn.“ „Er eg það 1 En það gerir ekkert til, þú getur samt sagt mér það, mig langar svo að hjálpa þér, og það er svo illa gert-af þér að vera svona vond við liann Hörð sem er svo góð- ur.“ Sigga litla reis upp við oln- boga til þess að geta liorft á systur sína. Nei, þetta var þó skrítið! Helga lá þarna í rúm- inu og hreyfðist ekki nema hvað andardrátturinn var þyngri en vanalega, en Sigga sá ekki betur en að hún væri að gráta. Tunglsljósið féll beint i andlit hennar og Sigga sá greinilegá hvernig munnvikin svignuðu og titruðu, og þegar tárin runnu hljóðlaust niður fölar kinnarn- ar, glitruðu þau eins og daggar- droparnir á holtasóleyjunum, að morgni dags. Sigga starði á hana og undr- aðist þetta. Hversvegna var hún að gráta? Og svona undarlega, en fullorðið fólk er nú alltaf svo skrítið og allt öðru visi en börn. Það versta var að þetta truflaði hana svo gersamlega, að hún gat engu orði komið upp. „Vertu ekki að tala um þetta, Sigga mín, þegar þú ert orðin stærri getur vel verið að eg segi þér eitthvað Um þetta, en núna ert þu of ung lil þess að' geta skilið duttlunga örlag- anna.“ Helga talaði hægt og dálítið þreytulega, eins og liún vildi sem fyrsl hinda enda á þetta samtal og Sigga litla fann það og lika til sneipukenndrar greinju, því svona er fullorðið fólk oftast, finnst aldrei vert að tala um alvarlega hluti við börn, þó að það viti ekki nema að þau skilji hlutina alveg eins vel og fullorðnir. Kannske þó ekki duttlunga örlaganna. Hvað þýddi það ann- ars? Voru það þá þessir „duttlung- ar öríaganna" sem Helga talaði um, sem liöfðu gert þau ósátt? — Hvað gat það verið? Einhver dularfull ófreskja eins og draugarnir sem sögurn- ar sögðu frá? Raunar sagði mamma að draugar væru ekki til, en þó að Sigga tryði því í bili meðan mamma var að segja það, að draúgar væru ekki til, var liún samt alveg jafnþrædd þegar hún fór uin bæjargöngin, Seins og þó að mamma hefði aldrei sagt það. Duttlungar örlaganna? Sigga litla bylti sér og velti þessum tveimur orðum fyrir sér með djúpri igrundan. En það var of erfitt, og það eina sem máli skipti var, ef henni tækist að gera þau aftur kát, Hörð og Helgu. Hún snéri sér aftur að Helgu og ýtti ofurlítið við henni: „Helga min, — e — þykir — e — eg meina — þykir þér ekki vænt um liann núna eins og þá?“ —- Helga hrökk við. — „Elsku Sigga mín, farðu að sofa og minnstu aldrei framar á þetta við mig,“ livíslaði hún, næstum þvi skelfd á svip, og þá vissi Sigga að hún hafði rétt fyrir sér. Hún brosti út í tungls- skinið í trúnaði.------- Sigga litla * var undanþegin allri vinnu, nema smá-súning- Um á heimilisínu.Húnmáttioft- ast vera þar sem henni sýndist, og þó að henni þætti gaman að fá að fylgja pabba sínum og Dóra bróður sínum á beitarhús- in, þá var það þó oftar að hún fór með Herði þegar hann fór til húsa. Hann hafði líka lofað henni að koma út í móa með henni á Þorláksmessudag, til þess að rífa lyng á jólatréð. Og hann efndi það loforð. Þegar þali löbbuðu í hægðum sínum suður túnið, gat hún ekki varist sárri gremju við þessa vondu ó- freskju sem Helga hafði talað um, duttlunga örlaganna. Það var ekkert skrítið, þó að þau væru döpur yfir að geta ekki verið saman fyrst þáu vildu það bæði, því Helga liafði næst- um þvi játað það fyrir lienni og um Hörð liafði hún alllaf verið viss. Hún var stöðugt að hrjóta heilann um hvernig hún ætti að fara að því, að fá þau til að tala saman. Eldci gat hún beðið Helgu að koma út i Auslurbæ og tala við Hörð, því hún myndí elcki gera ]iað. Og þó að hún gæli fengið Hörð til þess að koma út til þeirra þá myndi liann bara tala við pahba henn- ar eða Dóra og kannske við mömmu, en Helga setjast þegj- andi út í liorn með prjónana sína, eða kannske fara fram í éldhús og gráta út við eldhúss- gluggann eins og seinast þegar Hörður kom. „Ætlar þú ekki að koma til okkar á jólunum og spila við okkur, eins og þú ert vanur?“ spurði hún lágt og með eftir- ypentingu. ,,Eg veit það ekki, Sigga úiinB

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.