Morgunblaðið - 29.06.1974, Side 1
44 SIÐUR
110. tbl. 61. árg.
LAUGARDAGUR 29. JUNÍ 1974
Prentsmiðja Morgunhlaðsins.
Hafréttarráðstefnan:
Bretar hallast
að 200 mílum
Caracas 28. júntNTB.
SAMTÖK brezkra togaramanna
eru einhuga í þvf að ná samkomu-
lagi við Noreg um að löndin veiti
hvort öðru gagnkvæm veiðirétt-
indi, Norðmenn fái að veiða sfld f
Norðursjó, gegn sams konar rétt-
indum Breta varðandi þorskveið-
ar á norskum miðum. Myndi slfkt
verða til að leysa ýmis fiskveiði-
vandamál, sem upp koma þegar
mörkin meðfram ströndum skulu
dregin, að tilhlutan og tillögu haf-
réttarráðstefnunnar. Frá þessu
segir fréttaritari NTB f kvöld.
Hann segir, að brezka sendi-
nefndin hafi bersýnilega komið
til ráðstefnunnar með það fyrir
augum að fylgja sveigjanlegri
stefnu og það eigi einnig við þessi
vandamál og svo um hugsanlega
stækkaða efnahagslögsögu. Geti
þvf vel komið til mála að Bretar
fallist á 200 mílna efnahagslög-
sögu. Hafa Samtök togaramanna í
Bretlandi farið fram á það, og
meðal annars vegna þess, að búizt
er við, að íslendingar og Norð-
menn muni lýsa yfir 200 mílna
efnahagslögsögu. Þyki Bretum
það vænlegra að sýna lit á sam-
komulagsvilja og geti það komið
sér vel að þeir taki sér stóra lög-
sögu á brezkum miðum. Slfkt
myndi koma einna fyrst niður á
norskum sjómönnum, sem veiða
margar físktegundir á þeim svæð-
um, er myndu falla undir lögsögu
Breta. Vonast Bretar til, að Norð-
menn muni sýna nægilega mikinn
áhuga a að veiða innan brezkrar
lögsögu til að fallast á að veita
einnig brezkum togurum ákveðin
réttindi á Noregsmiðum.
Fréttaritari NTB segir, að
ástæðan til að Samtök togara-
manna krefjist 200 mílna. sé sú
Nixon vel fagnað:
Moskvu 28. júní AP.NTB.
★ VIÐRÆÐUR Nixons Banda-
ríkjaforseta og Brezhnevs, flokks-
leiðtoga Sovétríkjanna, sem fram
fóru i dag með nokkrum hvíldum,
voru mjög hreinskilnislegar og
vinsamlegar og þar var ekkert
baktjaldamakk á ferðinni, að
sögn talsmanna forystumannanna
í kvöld. Virtist ríkja með þeim hið
ágætasta samkomulag, og gerðu
þeir óspart að gamni sfnu milli
þess, sem þeir sátu á fundum og
ræddu þýðingarmikil alþjóðamál.
if Þeir leiðtogarnir undirrituðu
í dag þrjá nýja samninga milli
landanna þar sem kveðið er á um
samvinnu um nýjar aðferðir í
húsbyggingum, samvinnu á sviði
orkumála og gerð gervihjarta.
if Meðal annarra efna, sem
rædd voru í dag, má nefna tak-
mörkun framleiðslu gagneld-
flauga og sömuleiðis takmarkanir
tilrauna með kjarnorkuvopn.
1 býtið í morgun þegar Nixon
hafði lagt blómsveig á minnis-
merki óþekkta hermannsins og
var á leið til Kremlar til fundar
við Brezhnev, lét hann stöðva bfl
sinn, stökk út og heilsaði með
handabandi ýmsum, sem höfðu
safnazt saman til að hylla hann.
Kallaði fólk til Bandarfkjaforseta
og sagði m.a., að hann ætti að
koma sem fyrst aftur til Sovét-
rfkjanna og sem oftast og að
borgarar Sovétrfkjanna vildu
ekki fleiri styrjaldir, heldur frið
milli allra þjóða. Tók Naxon
undir það og sagði, að þjóðir
Bandarfkjanna og Sovétrfkjanna
óskuðu einskis fremur en að
friður gæti haldizt f heiminum.
A morgun, laugardag, var
ætlunin að Nixon héldi til eeim-
Framhald á bls. 4.‘l
skoðun, að réttindi strandríkis
verði undir öllum kringumstæð-
um aukin verulega og að fiskveið-
ar I framtíðinni hljóti því að
byggjast á gagnkvæmum samn-
ingum og kvótafyrirkomulagi.
Brezk fiskimið eru því með í
Framhald á bls. 43
Nixon Bandarfkjaforseti sté út
úr bifreið sinni á Moskvutorgi
til að heilsa ýmsum þeirra
borgara, sem safnazt höfðu
saman. Hylltu menn forsetann
og kölluðu til hans velviljuð
hvatningarorð. „Þetta er
elskulegt og gott fólk, sem
þráir af einlægni að friður
haldist," sagði forsetinn, þegar
hann hélt áfram ökuferð sinni
til fundar við Brezhnev.
„KOMDU SEM OFTAST
TIL SOVÉTRlKJANNA”
O
HARÐRI kosninga-
baráttu er að Ijúka.
Línurnar í þessum
kosningum eru skýr-
ar. Valið stendur á
milli Sjálfstæðis-
flokksins og sundraðr-
ar vinstri fylkingar.
Sjálfstæðisflokkurinn
er sterkur, samhentur
og traustur flokkur.
Vinstri fylkingin hef-
ur splundrazt í a.m.k.
10 flokka og flokks-
brot. Slfkur er
glundroðinn, óeining-
in og sundrungin á
vinstri væng fslenzkra
stjórnmála.
□
Kjósendur hafa
þriggja ára reynslu af
vinstri stjórn. Á morg-
un fá þeir tækifæri til
að kveða upp dóm sinn
yfir störfum þessarar
stjórnar. Hún tók við
góðu búi. Hún naut
einstaks góðæris til
sjávar og sveita. En
hver er niðurstaðan af
valdaferli hennar? At-
vinnuvegirnir eru að
stöðvast. Lífskjör al-
mennings hafa farið
versnandi með mán-
uði hverjum að undan-
förnu. Rfkissjóður er
rekinn með gífurleg-
um halla. Gjaldeyris-
varasjóður lands-
manna er að tæmast.
Fjárfestingarsjóðirnir
eru tómir. Ríkisfyrir-
tæki eru fjárhagslega
á heljarþröm. Hvar-
vetna blasa við vanda-
mál, sem næsta ótrú-
legt er, að skuli vera
til staðar f slfku ár-
ferði.
□
Þeir, sem þannig
hafa haldið á málum,
eru ekki trausts verð-
ir. Samt er það fastur
ásetningur þeirra að
gera tilraun til mynd-
unar nýrrar vinstri
stjórnar að kosning-
um loknum. Þá ætla
þeir að starfa saman,
framsóknarmenn og
Möðruvellingar, sem
skildu að skiptum fyr-
ir nokkrum vikum. Þá
ætla þeir að starfa
saman framsóknar-
menn og kommúnist-
ar, sem hafa valið
hver öðrum hin verstu
hrakyrði sfðustu vik-
ur. Þá ætla sumir
þeirra, sem lýstu van-
trausti á vinstri stjórn
í byrjun maí að ganga
inn í nýja vinstri
stjórn tveimur mánuð-
um seinna. Þessi
glundroðaöfl eru ófær
um að takast á við
þann vanda, sem við
blasir.
□
Sjálfstæðisflokkur-
inn vann mikinn sigur
í byggðakosningun-
um. Sá sigur var í
senn traustsyfirlýsing
til Sjálfstæðisflokks-
ins og vantraustsdóm-
ur yfir vinstri stjórn.
En sá sigur var aðeins
áfangi á þeirri braut
að víkja burt vinstri
stjórn. Á morgun
verða úrslitin ráðin.
Mikill og afdráttar-
laus sigur Sjálfstæð-
isflokksins tryggir
tvennt: vinstri stjórn
verður ekki mynduð á
ný og ísland verður
áfram varið land.
Þetta eru þeir tveir
kostir, sem kjósendur
standa frammi fyrir.
Á morgun er valdið í
ykkar höndum og þið
kveðið upp ykkar dóm.
Sá dómur verður að
vera afdráttarlaus og
skýr:
Víkjum burt
vinstri stjórn