Morgunblaðið - 29.06.1974, Side 8
8
. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JUNl 1974
Wilson og
D’Estaing
hittast í
París
BrOssel, 26. júnf AP-NTB.
HAFT er eftir áreiðanlegurr.
heimildum í BrOssel í dag, að þeir
Harold Wilson, forsætisráðherra
Bretlands, og Valery Giscard
d’Estaing, forseti Frakklands,
muni hittast að máli í París í
næstu viku. Verður þetta fyrsti
fundur þeirra. í dag ræddust þeir
Wilson og Jaques Chirac, for-
sætisráðherra Frakklands, við i
tæpa klukkustund og lét Chirac
þar í ljós óánægju frönsku stjórn-
arinnar yfir gagnrýni brezku
stjórnarinnar vegna kjarnorkutil-
rauna Frakka á dögunum. Hafði
Chirac sagt Wilson, að hann furð-
aði sig á orðalagi mótmæla Breta,
ekki sízt þar sem Wilson hefði nú
viðurkennt, að Bretar hefðu látið
fara fram neðanjarðartilraunir
með kjarnorkuvopn í Bandaríkj-
unum á síðustu vikum.
Gistiheimili
á Blönduósi
1 SUMAR verður starfrækt gist-
heimili f Kvennaskólanum á
Blönduósi. Er þetta fimmta
sumarið f röð, sem skólinn er
nýttur á þennan hátt. Sigurlaug
Eggertsdóttir, húsmæðrakennari
veitir gistiheimilinu forstöðu en
hún hefur haft umsjón með þvf
frá upphafi.
Gistiheimilið, sem tók til starfa
25. júnf sl., verður opið fram í
september og auk venjulegs gisti-
rýmis verða bornar fram margvís-
legar veitingar fyrir þá, sem þess
óska. Þá er ferðafólki, sem er með
eigin útbúnað, gefinn kostur á að
nýta hann og hópferðafólk getur
fengið máltíðir, ef pantað er með
fyrirvara svo og gistiaðstöðu.
Hraðtíðindi
koma út
NÝTT blað kemur út f Reykjavík
í gær (föstudag). Nefnist það
Hraðtíðindi og er ætlað að koma
út vikulega og flytja fréttir um
helztu viðburði í þjóðlífinu. Hrað-
tíðindi binda sig ekki við flokka-
pólitík, en einsetur sér að vera
ábyrgt rit með samvizkusamlega
unnum fréttum. Ritstjórar Hrað-
tíðinda eru Gunnar Finnsson og
Jóhannes Lúðvfksson og eru þeir
jafnframt eigendur. Blaðið er 8
bls. að stærð, sett í Prentverki
Kópavogs og prentað hjá Prent-
smíði. Verð í lausasölu er 75 kr.
2*U>V0unWaíut>
MARGFALDAR
JUt>v0imí)íabit>
MARGFALDAR
iliKÍll "
Keflavík
skrifstofa sjálfstæðisflokksins, í Sjálfstæðishúsinu er opin daglega frá
kl. 14 — 18 og20 — 22, síminn er 2021.
Stuðningsfólk hafi samband við skrifstofuna símleiðis, eða komið í
sjálfstæðishúsið.
D-listann í Kópavogi
vantar sjálfboðaliða
og bila á kjördag, látið skrá ykkur í síma 40708 og 43725.
Sjálfstæðisfélag
Miðneshrepps
heldur félagsfund í Leikvallarhúsinu í Sandgerði laugardaginn 29. júní
kl. 14.
Oddur Ólafsson og Ólafur G. Einarsson, fyrrv. alþingism. mæta á
fundinn.
Stuðningsmenn D-listans fjölmennið.
Stjórnin.
D-listinn
Reykjaneskjördæmi
Upplýsingasímar á kjördag:
Garða og Bessastaðahreppur: 42739.
Gerðahreppur: 92-71 24.
Grindavíkurhreppur: 92-8148.
Hafnarfjörður: bílasimar 50228 og 53727,
kosningastjórn 53725, kjörskrá og starfsfólk 53726.
Hafnarhreppur: Jósep Borgarson 92-6907
Keflavík: bilasimi 92-3050, upplýsingasimi 92-3051.
Kjalarneshreppur: Jón Ólafsson Brautarholti.
Kjósahreppur: Oddur Andrésson Neðra Hálsi.
Kópavogur: bilasimar 40708 og 43725.
Miðneshreppur: Óskar Guðjónsson 92-7557.
Mosfellshreppur: 91-66401.
Njarðvíkurhreppur: 92-3025.
Seltjarnarnes: 28187.
Vatnsleysustrandarhreppur: 92-6560.
Kosningastjórn kjördæmisins 52576. \
Vestfjarðakjördæmi
Hólmavík
D-listinn efnir til almenns stjórnmálafundar i félagsheimilinu Hólmavik
laugardaginn 29. júní n.k. kl. 4 e.h.
Ræður og stutt ávörp flytja Matthías Bjarnason fyrrv. alþingismaður,
Þorvaldur Garðar Krístjánsson fyrrv. alþíngismaður, Ingi Garðar
Sigurðsson tilraunastjóri Reykhólum, Jóhanna Helgadóttir húsfrú
Prestbakka, Sveinn Guðmundsson bóndi Miðhúsum, Reykhólasveit,
Öjöfn Ásbjörnsdóttir kennari Hólmavik, Guðmundur H. Ingólfsson,
bæjarfulltrúi (safirði.
Fundarstjóri verður Kristján Jónsson simstjóri Hólmavik.
Fjölmennið á fundinn og eflið sókn sjálfstæðismanna til sigurs.
Til sölu
Chervolet Pickup árgerð 1972 sjálfskiptur V-8
— 350 cu power stýri, útvarp — lengri gerð af
palli (3m). Upplýsingar á bílasölu Garðars við
Borgartún 1, i dag.
Staðgreiðslutilboð.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9, þriðjudaginn 2 júlí kl. 1 2 — 3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sa/a Varnar/iðseigna.
Skrifstofa Félags
einstæðra foreldra verður lokuð frá 1. júlí til 1.
september, vegna sumarleyfa.
Gröfumaður
Óskum eftir að ráða gröfumann á Hy-Mac
Beltagröfu. Uppl. í síma 66195.
Varmabyggð h. f.
Mótatimbur.
Notað mótatimbur „1x6" til sölu. Uppl. í síma
32320 frá kl. 1 2 — 1 og 6 — 9.
Síldveiðibátar
í Norðursjó
Sjávarútvegsráðuneytið vill vekja athygli eig-
enda fiskiskipa, sem ætla að láta skip sín
stunda veiðar í Norðursjó eftir 1. júlí n.k., að
vegna væntanlegra takmarkana á síldveiðum í
Norðursjó, er nauðsynlegt að þeir sæki um leyfi
til þeirra veiða til sjávarútvegsráðuneytisins
fyrir 1. júlí n.k. Þær umsóknir sem berast eftir
þann tíma, verða ekki teknartil greina.
Sjávarútvegsráðuneytið,
27. júní 1974.
Útgerðarmenn
eigum til afgreiðslu nú
þegar General Motors
bátavélar
af eftirfarandi gerðum:
12V — 71 .....340 hö
8V — 71 .... 230 hö
6—71 ....... 174 hö