Morgunblaðið - 29.06.1974, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JUNÍ 1974
dagsmorgni, því að kassarnir úr
Austur-Skaftafellssýslu verða þá
vart komnir til Seyðisfjarðar, þar
sem talið verður, fyrr en undir
morgun. Um 7000 manns eru á
kjörskrá í Austurlandskjördæmi.
Suðurlandskjördæmi.
Talning atkvæða í Suðurlands-
kjördæmi fer fram á Hvolsvelli.
Páll Hallgrímsson á Selfossi for-
maður yfirkjörstjórnar Suður-
landskjördæmis sagði Mbl., að
flogið yrði með atkvæðin úr Eyj-
um og ætti talning að geta hafizt
um nóttina, en í kjördæminu eru
um 40 kjördeildir. Fámennasta
kjördeildin í kjördæminu er i Sel-
vogshreppi, þar sem búa um 25
manns og atkvæði greiða um 15
manns. Talningu miðaði síðast
mjög hægt í Suðurlandskjördæmi
og bárust lokatölur þaðan síðast
allra kjördæma. Að sögn Páls
Hallgrfmssonar verður nú allt
gert til að slíkt endurtaki sig ekki.
„Við reynum að strekkja ekki
eins taugarnar í fólki og við gerð-
um síðast, þegar talningin dróst á
langinn," sagði Páll.
Reykjaneskjördæmi.
Atkvæði úr Reykjaneskjör-
dæmi verða að vanda talin f
Lækjarskólanum í Hafnarfirði.
Guðjón Steingrímsson í Hafnar-
firði, sem sæti á í yfirkjörstjórn
kjördæmisins, sagði Mbl., að
talning ætti að geta hafizt um kl.
hálf eitt, þegar öll atkvæði hefðu
borizt til Hafnarfjarðar.
Lögreglubílar verða í Kjós og á
Suðurnesjum og munu flytja at-
kvæðakassana til Hafnarfjarðar
jafnskjótt og kjörfundi lýkur.
Reykjavfk.
Talning atkvæða í Reykjavík
fer fram í leikfimisal Austur-
bæjarskólans eins og venja er.
Fer talningin fram með venjuleg-
um hætti, að sögn Hjartar Torfa-
sonar, sem sæti á í yfirkjörstjórn
Reykjavíkur. Kössum verður
safnað saman í skólum borgar-
innar milli kl. 6 og 7 og ekið í
Austurbæjarskólann, þar sem
talning hefst um kl. 7. Fyrstu
tölur úr Reykjavík ættu að berast
strax upp úr kl. 11 og talningu
ætti að vera lokið, ef vel gengur,
um kl. 3—3.30.
Fornleifarannsóknir á elzta
bæjarstæði Reykjavfkur eru
nú hafnar á ný. Það er sænski
fornleifafræðingurinn Else
Nordahl, sem stjórnar rann-
sóknunum og er þetta fjórða
sumarið, sem hún kemur hing-
að til að hafa umsjón með
þessu verki. 1 ár verður ein-
göngu grafið f Suðurgötu, en f
fyrrasumar var grafinn þar
upp helmingur skálabygging-
ar og sumarið 1972 fundust
þar leifar eldstæðis af fornri
gerð. Miðar uppgröfturinn f
sumar að framhaldsrannsókn-
um á þessu tvennu.
Af þeim svæðum, sem könn-
uð hafa verið í Reykjavík, hef-
ur Suðurgata reynzt hafa mest-
ar menjar um búsetu frá ýms-
um skeiðum, allt frá landnáms-
öld fram til loka 15. aldar. í
fyrra fannst þar glerperla, sem
talin er vera frá víkingaöld, og
járnöxi með leifum af tréskafti
frá 10. öld. Þá hafa þar verið
grafnar upp tvær smiðjur, sem
báðar eru eldri en Kötlugos í
lok 15. aldar. í fyrrasumar
fannst einnig torfveggur með
landnámsösku í, sem Else og
aðstoðarfólk hennar telja lík-
legt, að sé annar gaflinn úr
húsinu með eldstæðinu, sem
fannst sumarið ’72.
1 fyrra var ekki unnt að
halda áfram rannsóknum á
eldstæðinu og skálanum þar er
hvort hveggja lá undir lóðina
að Suðurgötu 3, en tilskilin
leyfi til framkvæmda þar voru
þá ekki fyrir hendi. Nú hefur
hins vegar fengizt leyfi til
framkvæmda á lóðinni og í
stað hrörlegra kofa, sem þar
stóðu áður, er nú komin mynd-
arleg hola og Else og aðstoðar-
fólk hennar geta nú óáreitt
haldið áfram rannsóknum sín-
um þar sem frá var horfið.
Rannsóknum í Aðalstræti lauk
að fullu í fyrra og virðast allar
líkur benda til, að elztu mann-
vistarleifar f Reykjavfk sé að
finna, þar sem rannsóknir
standa nú yfir í Suðurgötu.
Else Nordahl við eldstæðið forna í Suðurgötu.
flogið með kassa frá Stranda-
sýslu, Barðastrandarsýslu og
Inndjúpi ef veður leyfir, en
annars verður að aka með
kassana og tefst þá talningin eitt-
hvað. Víða eru fámennar kjör-
deildir í Vestfjarðakjördæmi, 17
manns eru á kjörskrá í Djúpa-
víkurhreppi, 18 i Mýrarhreppi á
Ingjaldssandi, 18 í Bakkakjör-
deild i Ketildælahreppi (þar sem
Hannibal Valdimarsson býr). í
Flatey greiða 28 manns atkvæði,
en þaðan verður að flytja at-
kvæðin sjóleiðis. AIls er kosið á 39
stöðum I Vestfjarðakjördæmi, en
kjördeildir eru nokkru fleiri, á
Isafirði eru t.d. fjórar deildir. i
siðustu alþingiskosningum var
búið að telja öll atkvæði úr kjör-
dæminu siðdegis á mánudegi og
sagði Guðmundur Marinósson, að
vart mætti búast við úrslitum
miklu fyrr nú en þá, enda þótt allt
yrði gert til að flýta fyrir, sem
hægt er.
Norðurlandskjördæmi
vestra
Jóhann Salberg formaður yfir-
kjörstjórnar Norðurlandskjör-
dæmis vestra sagði, að talning í
sínu kjördæmi hæfist strax um
nóttina eftir kosningarnar og
yrðu allir atkvæðakassar sendir
tafarlaust til Sauðárkróks, þar
sem talið yrði. Alls eru 38 kjör-
deildir í kjördæminu, en lengst er
að fara með atkvæðakassana úr
Staðarkjördeild I V-Húnavatns-
sýslu. Öllum kössunum verður
ekið með bílum, en þó er notkun
flugvélar f athugun. Að sögn
Jóhanns verður reynt að ljúka
talningunni strax um nóttina, en
um 6100 manns eru á kjörskrá i
kjördæminu.
Norðurlandskjördæmi
eystra
Um 13400 manns greiða at-
kvæði í Norðurlandskjördæmi
eystra í 44 kjördeildum. Fyrir-
hugað er að nota flugvélar við
söfnun atkvæðakassa frá Grímsey
og kauptúnunum f austurhluta
kjördæmisins, Þórshöfn, Raufar-
höfn og Kópaskeri og jafnvel
einnig frá Húsavfk. Talið verður í
Oddeyrarskólanum á Akureyri og
gerði Ragnar Steinbergsson for-
maður yfirkjörstjórnar kjör-
dæmisins ráð fyrir, að hægt yrði
að byrja að telja skömmu eftir
að kjörfundi lyki, kl. 11. Ef
ekki verður flugfært til
Grímseyjar má gera ráð fyrir,
að varðskip verði notað til að
sækja atkvæðin þangað, en þar
greiða 42 kjósendur atkvæði.
Fámennasta kjördeildin er Fjalla-
hreppur, þar sem 20 manns eru á
kjörskrá. I síðustu kosningum
voru öll atkvæði komin til Akur-
eyrar um kl. 1.30 og talningu
lokið um kl. 4 og sagðist Ragnar
vonast til, að henni lyki ekki síðar
nú. Ef ekkert yrði hægt að nota
flugvélar mætti þó búast við, að
úrslit lægju ekki fyrir fyrr en um
kl. 7 að morgni.
Austurlandskjördæmi.
Fámennasta kjördeildin á
landinu er vafalaust Grundar-
kjördeild í Mjóafjarðarhreppi, en
þar greiða atkvæði vitavörðurinn
á Dalatanga og fjölskylda, samtals
fjórir. í Austurlandskjördæmi er
kosið á 36 stöðum og verða
notaðar flugvélar ef flugveður
verður til að sækja atkvæðin
lengst að, úr Austur-Skaftafells-
sýslu, Vopnafirði og e.t.v. vfðar,
að sögn Erlends Björnssonar for-
manns yrfirkjörstjórnar kjör-
dæmisins. Ef allt gengur eins og
bezt verður á kosið ætti talningin
að geta hafizt milli kl. þrjú og
fjögur og ætti þá að vera lokið
milli klukkan fimm og átta að
morgni. Ef ekki verður hægt að
fljúga verður sennilega ekki
byrjað að telja fyrr en á mánu-
Talningu í öllum kjördæmum landsins verður flýtt svo
sem kostur er að loknum kosningunum nk. sunnudag. Ef
veður leyfir verða flugvélar notaðar í nokkrum kjör-
dæmum til að koma atkvæðakössum frá afskekktum
stöðum, þangað sem talið verður, en jafnframt verður
notazt við bíla og báta. Kjörstjórnir í öllum kjördæmum
hafa að undanförnu unnið markvisst að undirbúningi
kosninganna og Mbl. hafði samband við fulltrúa í kjör-
stjórnum allra kjördæma til að spyrjast fyrir um at-
kvæðatalninguna.
Vesturlandskjördæmi
í Vesturlandskjördæmi verður
talið í Borgarnesi og hefst talning
um leið og öll kjörgögn hafa
borizt kjörstjórninni. AUs eru um
40 kjördeildir í Vesturlandskjör-
dæmi, þar af tvær á Akranesi. Um
7900 manns eru á kjörskrá í kjör-
dæminu, en fámennasta kjör-
deildin mun vera í Fróðárhreppi
á Snæfellsnesi, þar sem 24 eru á
kjörskrá. Síðast lauk talningu í
Vesturlandskjördæmi kl. rúmlega
9 á mánudagsmorgni, en að sögn
Stefáns Sigurðssonar á Akranesi
formanns yfirkjörstjórnar í kjör-
dæminu verður allt gert til að
hraða talningunni sem mest,
þannig að ef vel gengur ættu loka-
tölur nú að berast úr Borgarnesi
síðari hlutar nætur. Eins og
annars staðar annast lögreglan
söfnun kjörkassanna úr kjör-
deildunum og kemur þeim i
Borgarnes. Ekki er gert ráð fyrir
notkun flugvéla við flutning at-
kvæðakassa í þessu kjördæmi.
Vestfjarðakjördæmi
Atkvæði úr Vestfjarðakjör-
dæmi verða talin í Alþýðuhúsinu
á ísafirði. Að sögn Guðmundar
Marinóssonar formanns yfirkjör-
stjórnar í kjördæminu verður
800 nemendur í Hagaskóla
Atta hundruð nemendur voru í Hagaskóla sl. vetur, en skólanum var
slitið 31. maf.
208 nemendur luku prófi úr 1. bekk. Hæstu einkunn hlaut Sigrfður
Kristjánsdóttir, 9.20.
Að þessu sinni tóku 230 nemendur unglingapróf og hæstu einkunn
hlaut Ingibjörg Skúladóttir, 9,28. I þriðja bekk tóku 228 nemendur
próf, þar af 114 í landsprófsdeild. í almennri bóknámsdeild og
verzlunardeild gengu 94 nemendur til prófs — 87 stóðust prófið.
Hæstu einkunn hlaut Guðjón Ríkhárðsson, 8.25. 20 nemendur tóku
próf í framhaldsdeild og af þeim náðu 12 inngöngu í 4. bekk. 114
nemendur tóku landspróf miðskóla. 81 hlaut framhaldseinkunn í
fyrstu atrennu, en 15 að auki hafa heimild til að endurtaka próf að
hluta eða ljúka sjúkraprófum. Hæstu einkunnir hlutu Finnur Svein-
björnsson og Ásgeir Jónsson, 9,2, í landsprófsgreinum. Gagnfræðapróf
þreyttu 123, en alls stóðust 115 prófið. Þar hlaut hæstu einkunn Anna
Steinunn Ölafsdóttir, 8.35.
ingur æf ður
EINS OG komið hefur fram f fréttum hefur verið ákveðið að
senda póst frá Reykjavfk til Skagafjarðar með sérstakri ferð á
hestum f tilefni þjóðhátfðarársins. Verður farið frá gamla póst-
húsinu f Reykjavík 3. júlf og komið að Vindheimamelum f
Skagafirði 13. júlf. Farið verur með eitt tonn af pósti á 20 hestum,
en 3 hestar munu bera útbúnað póstmanna og aðrir tveir hafðir
til taks, ef á þarf að halda. Leiðangursmenn, sem verða sex, munu
sfðan hafa þrjá hesta hver til reiðar.
Nýlega var haldin æfing á þessum flutningum, þar sem athuguð
voru viðbrögð hestanna við því að bera póstkassa. Var með-
fylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Á myndinni eru Sigurður
Björnsson frá hestamannafélaginu Gust, Sigurður Kjartansson
frá sama félagi og Þorlákur Ottesen frá Fák, en hann verður
leiðangursstjóri norður. Aðrir f ferðinni verða Magnús Þórðarson
frá Fák, Kristinn Þorgeirsson frá Herði og Þórður Jónsson frá
Herði.
Fólk getur komið bréfum með þessari ferð hvert á land sem er,
en hér er um að ræða ábyrgðarpóst og kostar 200 krónur undir
hvert bréf og verður að frímerkja bréfin þeirri upphæð. Bréf
sendist pósthúsinu merkt „hestapóstur.”
Talningu alls staðar
Hring
urinn
Hestapóstflutn-
hraðað sem kostur er
Fámennasta kjördeildin með 4 kjósendur
þrengist
um Ingólf