Morgunblaðið - 29.06.1974, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JUNl 1974
23
Betri hafnaraðstaða er
okkar stærsta áhugamál
A HEIMILI Margrétar Pálsdóttur
f Sandgerði beið mikið og fagurt
lið blaðamanns Mbl. Þangað voru
komnir helztu forvfgismenn
Sjálfstæðisflokksins á staðnum,
og veittu góðfúslega þær upplýs-
ingar, sem blaðamaðurinn óskaði
eftir. Þetta voru þau Jón Júlfus-
son, Björgvin Pálsson, Rósa Jóns-
dóttir, Kári Sæbjörnsson, Óskar
Staldrað við
í Sandgerði
Höfnin f Sandgerði.
Guðjónsson, Sigurður Jóhanns-
son og svo að sjálfsögðu húsmóð-
irin, Margrét Pálsdóttir. Fyrst
voru þau spurð um það hve
margir fbúar væru f Sandgerði.
„Hér í Sandgerði eru íbúar um
1100. Þeim hefur heldur fjölgað
upp á síðkastið. Nýlega var út-
hlutað 50 lóðum, og er byrjað að
byggja á sumum þeirra. Þá voru
reist hér 10 Viðlagasjóðshús á sín-
um tíma, og eru 8 þeirra seld. Hér
hefur verið tilfinnanlegur skort-
ur á íbúðarhúsnæði. Þá má einnig
geta þess, að hafin er bygging nýs
verzlunarhúss, svo og bygging
björgunar- og slökkvistöðvar“.
'lZSr-'
— Nú er Sandgerði mikill út-
gerðarbær?
„Já, hér er sjávarútvegurinn
undirstaðan. Á vetrarvertíð róa
héðan um 40 bátar, og enn fleiri
leggja hér upp afla. Fjögur frysti-
hús eru á staðnum, Miðnes hf.,
Rafn hf., Atli hf. og Jón Erlings-
son hf. Þá eru væntanlegir hingað
tveir skuttogarar, en þeir koma
báðir um næstu áramót. Því er
orðin mikil nauðsyn á hafnarbót-
um hér.“
— Hvernig er ástandið í hafnar-
málum?
„Það er vægast sagt slæmt, og
brýn nauðsyn orðin á því að gera
endurbætur sem allra fyrst. Höfn-
in er okkar stærsta mál f dag.
Eins og er geta bátar ekki verið
hér í vondum veðrum, þá verða
þeir að leita annað. Þá hefur það
komið fyrir, að þeir hafi lokazt
inni í höfninni í aftakaveðrum,
innsiglingin hefur orðið öfær. I
fyrra sukku hér bátar í höfninni
þegar vonda veðrið gerði í
september.
Það mun kosta hundruð
milljóna króna að gera höfnina
góða, þ.e. að gera nýja garða og
dýpka. Við höfum fengið 40
milljóna fjárveitingu frá Alþingi,
en peningarnir hafa ekki enn
fengizt, og því eru framkvæmdir
ekki hafnar, en fyrst verður ráð-
izt í gerð suðurgarðs."
— Hvaða framkvæmdir aðrar
eru helztar á döfinni?
„I því sambandi má t.d. nefna
hltaveitumálið, sem er brýnt
hagsmunamál fyrir Sandgerð-
inga. Samkvæmt áætlun á að
koma hingað hitaveita frá Svarts
engi 1976, og við vonum að sú
áætlun standist. Það verður geysi-
legur sparnaður að fá hitaveitu
hingað.
I fyrra var lögð olíumöl á veg-
inn frá Keflavík, og var það mikið
framfaraspor. Þá hefur verið lögð
olíumöl á götur í bænum, og því
verki verður haldið áfram í sumar
og olíumöl lögð á nokkrar nýjar
götur. Enn vantar olíumöl á veg-
inn norðanmegin við plássið, og
einnig vantar veg frá Stafnesi yf-
ir f Hafnir, en með slfkum vegi
fengjum við hringveg. Þá er einn-
ig nauðsyniegt að bæta veginn
héðan út á Stafnes, en það er
einhver hættulegasti staður, sem
íslenzkur sjómaður getur lent í f
strandi, og því mikið i húfi að
hafa góðan veg þangað.
Þá má nefna, að i sumar verður
unnið að endurbótum á íþrótta-
vellinum hér, sem blöð hafa kall-
að sandkassann. Þegar er byrjað
að mala efni í nýtt slitlag. Ennþá
vantar hér aðstöðu, til frjálsra
íþrótta.
— Hvernig er ástand í skóla-
málum?
„Hér eru rúmlega 200 börn í
skóla, og er aðstaða þeirra engan
veginn góð. Til dæmis vantar
alveg íþróttahús, sundlaug, skóla-
bókasafn og alla aðstöðu til sér-
kennslu. Þá vantar einnig félags-
lega aðstöðu. Þetta er mál, sem
þarfnast skjótrar afgreiðslu.“
Frystihúsin að stöðv-
ast á Suðurnesjum
Ingvar Jóhannsson er
sjötti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins, fæddur
Reykvfkingur er hefur
búið I Njarðvíkunum sl. 19
ár, þar sem hann er fram-
kvæmdastjóri fyrir Kefla-
víkurverktaka. Afskipti
Ingvars af stjórnmálum
hófust er hann var kjörinn
í hreppsnefnd Njarðvíkur
árið 1966, hann var sfðan
varamaður þar f hrepps-
nefnd frá 1970, en var nú
aftur kjörinn í hrepps-
nefndina og er oddviti
hreppsins. Þá var hann
annar varamaður Sjálf-
stæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi á árunum
1970—74 og átti sæti á Al-
þingi árið 1971.
— Hvernig eru horfur f at-
vinnumálum Suðurnesja þessa
stundina, Ingvar?
„Engan veginn góðar og fara
versnandi. Frystihúsin sum hver
orðið áþreifanlega var við þetta 1
sambandi við málningarvörur.
— En svo við snúum okkur að
þínum viðskiptum. Hvernig er að
reka fyrirtæki sem þetta hér 1
Keflavík?
— Reksturinn hefur gengið vel
og það hefur verið mikið að gera
hérna hjá okkur að undanförnu
enda full þörf fyrir þjónustu sem
þessa hér í Keflavík. Það eina,
sem ef til vill háir okkar rekstri
eitthvað, er, að við þekkjum
marga viðskiptavinina, sem hing-
að koma, þannig að lánsviðskipti
eru kannski örlítið meiri en góðu
hófi gegnir, en það hefur ekki
komið að sök, a.m.k. ekki ennþá.
— Hvernig eru Keflvfkingar
staddir f húsnæðismálum?
— Eftir að Vestmannaeyingar
fóru að hverfa heim og viðlaga-
sjóðshúsin losnuðu til kaups
hefur orðið mikil og góð hreyfing
f sambandi við húsnæðismálin. Þá
hefur verið hér töluvert um smfði
einbýlishúsa eftir að Keflavíkur-
bær gerði landakaupin hér norð-
vestur af bænum. En í þessu sam-
bandi vil ég bæta því við, að nokk-
ur byggingarfélög, sem staðið
hafa að smiði raðhúsa og fjölbýlis-
húsa, hafa, einhverra hluta
vegna, ekki fengið þá fyrir-
greiðslu hjá lánastofnunum, sem
nauðsynleg er, en hér er að sjálf-
sögðu um mikið hagsmunamál að
ræða, sem ráða þarf bót á.
— Hvaða hagsmunamál og
framfaramál ber hæst hjá Kefl-
víkingum um þessar mundir, að
þínum dómi?
— Um þessar mundir einblfna
bæjarbúar á hitaveitumálið enda
er hitaveitan brýnasta hagsmuna-
málið fyrir fbúana hér. Þá þarf að
gera átak hér í hafnarmálunum
og að mínum dómi er mjög aðkall-
andi að við Suðurnesjamenn
knýjum fram menntaskóla hér
suður frá. Það er staðreynd, að
við sjáum árlega á eftir miklum
fjölda fólks til Reykjavíkur af
þessum sökum, bæði foreldrum
unglinga á menntaskólaaldri og
svo þeim sjálfum. Og það, sem
verra er, menntafólkið skilar sér
ekki aftur. Hér suðurfrá er t.d.
enginn verkfræðingur, enginn
viðskiptafræðingur eða arkitekt
en það er augljóst að í þessu vax-
andi bæjarfélagi þurfum við á
fólki að halda með þessa menntun
og á fleiri sviðum. En þar sem við
erum farnir að tala um hags-
munamál vil ég bæta því við, og
mér er -engin launung á því, að
það, sem við þurfum hér á Suður
nesjum er nýtt kjördæmi fyrir
okkur, en ég tel, að eins og nú er,
séum við afskiptir hvað þing-
mennina varðar. Hagsmunir
okkar fara ekki saman með hags-
munum Hafnfirðinga og byggð-
unum þar 1 kring. Ég lít þannig á,
að við séum á mörgum sviðum í
samkeppni við þá eins og t.d. í
skólamálum og hafnarmálum svo
að eitthvað sé nefnt. Við þurftum
t.a.m. að beita hörðu til að fá
iðnskóla hingað, — hann átti að
vera f Hafnarfirði og svo rekast
hagsmunir okkar á í sambandi við
fyrirhugaða sjóefnavinnslu. Þetta
eru aðeins tvö dæmi af mörgum.
Kjördæmamálið hefur verið tölu-
Hópurinn á tröppunum hjá Margréti.
— Nú hefur mér skilizt, að
símamálin séu höfuðverkur hér?
„Já, sfmamál okkar Sandgerð-
inga eru í algjörum ólestri. Við
þurfum að sitja við símann
klukkustundum saman til að ná
sambandi við Reykjavík, og sam-
bandið er auk þess oft slæmt þeg-
ar það næst á endanum. Það er
talað um að þetta stafi af miklu
álagi á símanum, en það er hæpið,
þvf þess eru dæmi, að það taki
menn þrjú kortér að ná sambandi
við Reykjavik um miðja nótt. Þá
teljum við það mikið óréttlæti að
þurfa að borga yfirgjald, jafnvel
þótt ekki sé hringt lengra en til
Keflavíkur. Þarna sitjum við ekki
við sama borð og aðrir.“
— Og að lokum, hvernig leggj-
ast kosningarnar f ykkur?
„Hér f Sandgerði náði Sjálf-
stæðisflokkurinn 100% atkvæða-
aukningu f hreppsnefndarkosn-
ingunum 26. maí s.l. og því getum
við ekki annað en verið bjartsýn á
úrslit alþingiskosninganna. Ef við
stöndum okkur eins vel í kosning-
unum nú, fer að lækka risið á
þessum stjórnarherrum. Við sjálf-
stæðismenn stefnum að því að
koma þremur kjördæmakosnum á
þing. En það má einnig geta þess í
leiðinni, að við hér á Reykjanesi
teljum brýna þörf á að breyta
kjördæmaskipuninni, því hún er
orðin mjög óréttlát, og bitnar það
harðast á okkur.“
Rætt við Ingvar
Jóhannsson,
sjötta mann
á lista Sjálf-
stæðisflokksins
eru á uppboði, önnur hafa stöðvað
rekstur sinn og þau, sem enn eru i
gangi, eru rekin með tapi. Og hag-
ur bátaútgerðarinnar er það
vert rætt manna á meðal hér
suðurfrá og þótt það fari ekki hátt
enn sem komið er verður það stór-
mál áður en langt um líður.
Hvað segirðu um viðhorf í
stjórnmálum hér á Suðurnesjum,
svona rétt fyrir kosningar?
— Eins og alþjóð er kunnugt
vann Sjálfstæðisflokkurinn
mikinn sigur í nýafstöðnum
sveitastjórnarkosningum og hvað
viðvíkur fylgisaukningunni hér f
Keflavík vil ég nefna tvær ástæð-
ur: I fyrsta lagi tvfskinningur og
ábyrgðarleysi núverandi stjórn-
valda í varnarmálum og f öðru
lagi fádæma klúður þessara sömu
herra í efnahagsmálum. Fólk
hefur aldrei haft eins mikið fé
milli handa og einmitt nú en um
leið hafa menn aldrei verið sér
eíns vel meðvitandi að lifað er um
efni fram. Þetta sést bezt á því, að
fólk gerir almennt grin að niður-
greiðslum landbúnaðarvaranna.
Hvernig er lfka annað hægt en að
hlægja að þessum skrípaleik.
slæmur, að fjöldinn allur af bát-
um er ekki gerður út. Þjónustu-
iðnaðurinn er síðan lamaður
vegna greiðslugetuleysis sjávar-
útvegsins.
Ég get nefnt sem dæmi, að ég
var fyrir fáeinum dögum staddur
í skipasmíðastöð Njarðvíkur. Þá
voru þar 18 bátar uppi í slipp, þar
af 9 á söluskrá, 4 dæmdir ónýtir
en 5 voru þar af eðlilegum ástæð-
um. Þessi fjöldi báta er annars
skiljanlegur, þegar haft er í huga,
að meðalaldur báta á Suðurnesj-
um er um 14 ár en í kjördæmi
sjávarútvegsráðherra, Lúðvíks
Jósepssonar er hann um 4 ár. I
öðrum hlutum landsins mun
meðalaldur bátanna vera á bilinu
frá 5—7 ár.“
— Hvað veldur þessum háa
meðalaldri báta á Suðurnesjum?
„Ástæðurnar eru fyrst og
fremst þær, að Suðurnesjabúar
sitja ekki við sama borð og aðrir
landshlutar í lánamálum og þeim
sjóðum, sem Framkvæmda-
Framhald á bls. 24.