Morgunblaðið - 29.06.1974, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JUNI 1974
29
IÞROTTAFRETTIR MORGUNBIAflSINS
Iþróttafréttir eru
einnig á bls. 42
En eftir þessa hressilegu byrj-
un var leikurinn heldur daufleg-
ur. Ónákvæm spörk voru allsráð-
andi, og aðeins sárasjaldan voru
mörkin í hættu. Víkingar voru
greinilega ákveðnari en Vals-
menn og fljótari á knöttinn, en
skipulagi í leik þeirra var ekki
fyrir að fara — yfirleitt höfnuðu
sendingar þeirra hjá Valsmönn-
um. Mjög lítið var gert til þess að
dreifa spilinu og allt gekk upp
vallarmiðjuna hjá báðum liðum,
þar sem varnarmenn voru jafnan
í þéttum hnapp.
A 40. mínútu virtist ekki geta
farið öðru vfsi en Víkingar skor-
uðu. Knötturinn kom fyrir mark-
ið, þar sem Valsvörnin var algjör-
lega úti að aka, þeir Kári Kaaber
og Jóhannes Bárðarsson voru báð-
ir í dauðafæri og áttu að hafa
nógan tíma. En Kári var of fljótur
á sér og skallaði knöttinn beint í
fangið á Sigurði Haraldssyni
Valsmarkverði.
Á næstu mínútu skoruðu svo
Valsmenn fyrra mark sitt. Knött-
urinn hafði þvælzt upp að víta-
teigi Víkings þar sem Alexander
náði til hans og renndi honum
framhjá varnarmanni Vfkings og
Diðrik markverði, sem hlaupið
hafði úr markinu. Var þetta frem-
ur ódýrt mark.
I seinni hálfleik var þófið jafn-
vel ennþá meira en í fyrri hálf-
leik. Til undantekninga heyrði ef
knötturinn gekk oftar en tvisvar á
milli samherja og sem fyrr var
vallarmiðjan vettvangur slagsins.
Á 15. mínútu hálfleiksins
greiddist þó einu sinni örlítið úr
þvögunni. Kári Kaaber átti þá
sendingu fyrir Valsmarkið frá
vinstri, Jón Gíslason hafði verið of
seinn í stöðu sína, þannig að Jó-
hannes Bárðarsson var óvaldaður
og tókst honum að kasta sér fram
og skafla knöttinn f markið hjá
Val. Þetta var laglega gert hjá
Jóhannesi, en Valsvörnin hefði
átt að geta komið í veg fyrir mark-
ið með svolftið meiri hreyfingu.
Flestir vallargestir höfðu sætt
sig við eitt jafnteflið enn, þar sem
tfminn var búinn samkvæmt
vallarklukkunni, en svo gerðist
það mjög svo óvænt, að Ingi Björn
Diðrik Ólafsson gripur
knöttinn af höfði Alex-
anders, en hann skoraði
fyrra mark Valsmanna.
AFSLATTARFERÐIR A SKAGANN
— GUÐNI MEÐ ÍBK GEGN ÍBV
fyrir mikla hreyfingu sumra leik-
mannanna voru þeir alltaf ofan í
andstæðingum sfnum. Víkingslió-
ið er skipað svo góðum leikmönn-
um, að það ætti hiklaust að geta
ógnað meira í sóknarleik sínum
með því að reyna að dreifa meira
spilinu og fá andstæðingana frá
markinu.
Sömu höfuðgallar voru á Vals-
liðinu í þessum leik og að undan-
förnu. Einstakir leikmenn þess
eru alltof staðir og virðast stund-
um áhugalitlir. Það voru helzt
„útlendingarnir" í liðinu: Dýri
Guðmundsson og Þór Hreiðars-
son, sem börðust vel í leiknum
ásamt með Sigurði Haraldssyni
markverði, sem sýndi skemmtileg
tilþrif þá sjaldan hann þurfti á
því að halda. Nýliðinn Atli
Eðvaldsson gerði marga hluti lag-
lega, en greinilegt er, að hann
skortir líkamsburði til þess að
geta staðið sig sem skyldi í hinum
harða slag sem 1. deildar keppnin
býður nú upp á.
1 STUTTU MÁLI:
Laugardalsvöllur 27. júnf.
íslandsmótið 1. deild:
Urslit: Valur — Vfkingur 2:1
(1:0),
TVEIR leikir fara fram í 1.
deild íslandsmótsins f
knattspyrnu f dag. Keflvík-
ingar leika í Vestmanna-
eyjum gegn ÍBV og á
Skaganum leika heima-
menn gegn KR-ljónunum.
1 2. deild fara fram 2 Ieikir
og f þeirri þriðju verða 10
leikir í dag.
Guðni Kjartansson verður að
nýju með félögum sfnum í ÍBK-lið
inu í dag og þarf ekki að efast um,
að endurkoma fyrirliðans mun
verka eins og vítamínssprauta á
ÍBK-liðið. Guðni hefur átt við að
stríða meiðsli á handlegg og ekk-
ert leikið í Islandsmótinu. Síðast-
liðinn hálfan mánuð hefur hann
æft af krafti og er að sögn kominn
í ágæta æfingu. Félagi Guðna,
Einar Gunnarsson, er hins vegar
enn á sjúkralista og verður þar að
likindum mestan hluta sumars-
ins. Einar liggur nú á sjúkrahúsi
og er að jafna sig eftir uppskurð,
en brjósk var fjarlægt úr hné.
Eins og fram kemur annars
staðar á síðunni leikur Gfsli
Torfason ekki með IBK-Iiðinu f
dag. Eigi að síður var hugur í
Keflvíkingum, er við ræddum við
þá í gær og þeir ætluðu sér stóra
hluti í Eyjutn í dag.
Síðast þegar Keflvíkingar léku í
Vestmannaeyjum töpuðu þeir 1:6,
árið 1972. Hæpið er, að sömu tölur
verði uppi á teningnum f dag, þó
svo að Vestmannaeyingar muni
leggja höfuðáherzluna á sóknar-
leikinn. Árangur Vestmanna-
eyinga á heimavelli er ekki sér-
lega góður í ár, þeir hafa hlotið
þar 3 stig af 6 mögulegum, en með
sigri í dag myndu þeir bæta um
betur. Ekki er vitað um neinar
breytingar á liði ÍBV frá því í
síðustu leikjum, en þó má reikna
með því, að Kristján Sigurgeirs-
son og Snorri Rútsson standi
orðið nálægt liðinu. Þeir hófu
báðir æfingar seint, þar sem þeir
voru í skólum á fastalandinu, en
voru báðir fastamenn f liðinu í
fyrra.
Á Akranesi mætast í dag
klukkan 16, lið ÍA og KR — þau
tvö lið, sem efst er f 1. deildinni
um þessar mundir. Skagamenn
ættu að standa betur að vígi, þar
sem þeir leika á heimavelli og
sigri þeir í dag hafa þeir örygga
forystu í 1. deild að fyrri umferð-
inni lokinni. Akraborgin nýja
verður í ferðum fyrir knatt-
spyrnumenn f dag í sambandi við
leikinn og verða veitt sérstök af-
sláttarfargjöld fyrir þá, sem fara
upp á Skaga til að sjá leikinn.
Teitur Þórðarson leikur ekki með
Skagamönnum í dag vegna
meiðsla, sem hann hlaut í leikn-
um við Víking. Eins og það er
slæmt fyrir Skagamenn að missa
þennan hættulega leikmann,
þakka KR-ingar örugglega að
sama skapi fyrir að Teitur skuli
verða fjarverandi.
I 2. deild leika í Kópavogi f dag
klukkan 16, Breiðablik og Völs-
ungur og á Isafirði mætast
klukkan 15 IBÍ og FH. Ættu
toppliðin FH og UBK að vera
örugg með sigur í þessum leikj-
um.
í 3. deild fara eftirtaldir
leikir fram:
Varmárvöllur kl. 16:
Afturelding — Vfðir
Sandgerði kl. 16:
Reynir — Þór
Háskólavöllur kl. 14:
ÍR — Grótta
Grindavík kl. 16:
Grindavfk — Stjarnan
Árbæjarvöllur kl. 14:
Fylkir — Leiknir
Þingeyri kl. 16:
HVÍ — Bolungarvík
Seyðisf jörður kl. 16:
Huginn — Einherji
Eskifjörður kl. 16:
Austri — Höttur
Fáskrúðsfjörður kl. 16:
Leiknir — Sindri
Reyðarfjörður kl. 16:
Valur — Þróttur.
Bezt fyrir alla aðila,
að ég dragi mig í hlé
segir Gísli Torfason, sem ekki
leikur með IBK á nœstunni
— ÞAÐ þýðir ekkert að vera f
þessu hafi maður ekki áhuga á
fþróttinni, sagði Gfsli Torfason,
einn af snjöllustu leikmönnum
lsiandsmeistara tBK, er við
ræddum við hann f gær. Gfsli
hefur ákveðið að draga sig f hlé
frá knattspyrnuiðkunum um
sinn að minnsta kosti og ástæð-
an er áhugaleysi að þvf er hann
segir sjálfur.
— Það má engin halda, að ég
sé óánægður með þjálfarann,
félaga mfna f liðinu eða knatt
spyrnuforystuna hér f Kefla-
vfk, sagði Gfsli. Það er alls eng-
in óána'gja á ferðinni. Ástæð-
an fyrir þvf að ég dreg mig
f hlé er einfaldlega sú,
að ég er orðinn þreyttur og
leiður og hef ekki gaman
af knattspyrnunni lengur.
Mig langar ekki lengur á
æfingar og þegar ég mæti geri
ég það af skyidu. Þegar málum
er svo komið tel ég betra fyrir
alla aðila, að ég hætti, þvf að
áhugaleysí eins leikmanns get-
ur komið niður á öllu liðinu.
Ekki er loku fyrir það skotið,
að áhuginn vakni aftur og um
leið og mig fer að langa mæti
ég fyrstur manna á æfingar,
sagði Gfsli að lokum.
Fyrsti sigur
Valsmanna
MARK, SEM Ingi Björn Alberts-
son skoraði eftir að venjulegum
leiktfma var lokið, færði Vals-
mönnum fyrsta sigurinn f 1.
deildar keppni Islandsmótsins f
knattspyrnu í sumar. Vfkingar
voru sigraðir og f annað skiptið á
tiltölulega skömmum tfma henti
það þá að vera skárri aðilinn á
vellinum, en tapa samt. Leikur-
inn f fyrrakvöld var heldur slakur
og þófkenndur. Einkenni hans
var þóf á vallarmiðjunni og send-
ingar milli mótherja. Fjárakorn-
ið: Við þurfum ekki útlendinga
til að kenna okkur þetta.
Fyrstu þrjár mfnútur leiksins
gáfu fyrirheit um skemmtilegan
leik, en þá komust bæði mörkin 1
mikla hættu, sérstaklega þó mark
Víkinga, er Atli Eðvaldsson, sem
greinilega er mikið knattspyrnu-
mannsefni, gaf vel fyrir til Inga
Björns, sem skallaði að markinu.
Náði Diðrik með naumindum að
verja f horn og upp úr horninu,
sem Atli tók, var enn mikil hætta
við Víkingsmarkið.
Albertsson fékk stungusendingu
inn fyrir Víkingsvörnina og
aldrei þessu vant spretti hann vel
úr spori, tók-st að losa sig við
varnarmennina, sem veittu hon-
um eftitför, og skora framhjá Dið-
rik, sem hlaupið hafði út úr mark-
inu. Þar með var fyrsti Valssigur-
inn í mótinu í sumar í höfn.
Sem fyrr greinir voru Víkingar
allan tímann betri aðilinn í leikn-
um — ákveðnari og fljótari, en
þessa eiginleika sfna tókst þeim
illa að nýta, hvorki til þess að
skora mörk né skapa sér tækifæri.
Liðið leikur alltof þröngt og þrátt
Texti: Steinar J. Lúðvfksson.
Myndir: Ragnar Axelsson.
Mörk Vals: Alexander Jóhannes-
son á 43. mín. og Ingi Björn
Albertsson á 91. mfn.
Mark Vfkings: Jóhannes Bárðar-
son á 60. mfnútu.
Áminning: Óskari Tómassyni,
Víkingi, var sýnt gula spjaldið.
Ahorfendur: 1046.
Dómari: Guðmundur Guðmunds-
son og dæmdi hann sæmilega.
LIÐ VALS: Sigurður Haraldsson 2, Jón Gfslason 1, Grfmur
Sæmundsen 2, Þór Hreiðarsson 3, Dýri Guðmundsson 3, Jóhannes
Eðvaldsson 2, Atli Eðvaldsson 2, Hörður Hilmarsson 2, Kristinn
Björnsson 2, Ingi Björn Albertsson 1, Alexander Jóhannesson 1.
LIÐ VlKINGS: Diðrik Ólafsson 1, Eirfkur Þorsteinsson 2,
Magnús Þorvaldsson 2, Jón Ólafsson 2, Þórhallur Jónasson 2,
Jóhannes Bárðarson 2, Gunnar örn Kristjánsson 2, Kári Kaaber
1, Páll Björgvinsson 3, Óskar Tómasson 1, Bjarni Gunnarsson 1,
Gunnlaugur Kristfinnsson (varamaður) 1.