Morgunblaðið - 15.10.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1975
5
Annar Rússi fær
Nóbelsverðlaun
Stokkhólmi, 14. október. AP. Reuter.
NÓBELSVERÐLAUNUM í hagfræði var í dag úthlutað
Bandarfkjamanni af hollenzkum ættum, prðfessor Tjall-
ing Koopmans við Yaleháskðla, og sovézkum prðfessor,
dr. Leonid Kantorovich, sem hefur beitt sér fyrir vald-
dreifingu í sovézku efnahagslífi.
Sænska vísindaakademían
veitti þeim verðlaunin fyrir störf
þeirra að hagkvæmri nýtingu
efnahagsauðlinda og sagði að þeir
hefðu stuðlað að bættri skipu-
lagningu efnahagsmála. Dr.
Kantorovich er fyrsti hagfræð-
ingurinn frá Austur-Evrópu sem
hefur fengið verðlaunin síðan
þau voru fyrst veitt 1969.
Prófessor Erik Lindberg úr
sænsku vísindaakademíunni
kveðst hafa áhyggjur af því að
Kantorovich fái ekki leyfi til að
fara til Stokkhólms og taka við
verðlaununum þar sem sovézk
yfirvöld hafa reiðzt því að friðar-
verðlaun Nóbels voru veitt
Andrei Sakharov.
Lindberg sagði að þetta væri
„athyglisverð og erfið spurning".
Hann bætti því við að nefndin
hefði ekki haft hugmynd um að
Sakharov ætti að fá friðarverð-
launin.
„Ólánið virðist elta okkur,“
sagði hann. „I fyrra völdum við
Svía, Gunnar Myrdal, og þá fengu
tveir Svíar bókmenntaverðlaunin
og núna veljum við Rússa og þá
fær Rússi friðarverðlaunin."
Dr. Kantorovich sagði I dag að
hann vonaðist til að geta tekið við
verðlaununum. „Verðlaunin eru
mér mikils virði, sérstaklega þar
sem þau eru veitt fyrir 40 ára
starf mitt á þessu sviði,“ sagði-
hann. „Nefndin nýtur mikils álits
og öllum vísindamönnum þykir
vænt um slíka viðurkenningu."
Starf Koopmans og Kantorovich
felst i því að meta hvað eigi að
framleiða og hvernig. Þeir meta
einnig hvað mikið af framleiðslu
eigi að fara í neyzlu og hvað mikið
í sköpun nýrra verðmæta.
Giscard í Moskvu
Moskvu, 14. október. Reuter.
FORSETI Frakklands Valery
Giscard d'Estaing, kom til
Moskvu í dag í fimm daga opin-
bera heimsókn. Hann mun aðal-
Iega ræða við sovézka ráðamenn
um frekari slökun spennu I
Evrópu.
Forsetinn er fyrsti vestræni
þjóðarleiðtoginn sem komið hefur
til Moskvu siðan Helsinki-
ráðstefnan var haldin. Tugir
þúsundir Moskvubúa fögnuðu
honum á leiðinni M Kremlar.
Leonid Brezhnev cók á móti
honum og virl.„t % .ð góða heilsu
þrátt fyrir fréttir um alvarleg
veikindi.
Hugsanlegt er, að Giscard
d’Estaing ræði við Boris Spassky,
fv. heimsmeístara í skák, sem ný-
lega kvæntist starfskonu franska
sendiráðsins. Forsetinn mun
leggja áherzlu á loforð Rússa um
aukið persónufrelsi, ferðáfrelsi
og upplýsingafrelsi og aukin
mannleg samskipti.
F abiao lét undan
Lissabon 14. október.AP.
YFIRMAÐUR portúgalska
Iandhersins, Carlo Fabiao
hershöfðingi, lét undan
kröfum uppreisnarher-
manna í dag og samþykkti
að hermenn sem hafa verið
Flugslys
reknir úr flutningaher-
deild í Oporto yrðu aftur
teknir í herdeildina.
Samkomulag varð um
þetta á fundi sem Fabiao
átti í Oporto með for-
ingjum uppreisnarinnar og
þar með virðist hafa verið
afstýrt hættu á átökum
innan hersins. Samkomu-
lagið gæti bundið enda á
uppreisnina en gengur í
berhögg við þá stefnu
stjórnarinnar að koma aft-
ur á aga i hernum, segja
fréttaritarar.
O. Johnson & Kaaber hf PÓSTHÓLF 1436, REYKJAVIK. >4 MUSTAD
THE FISH HOOK PEOPLE
O MUSTAD & SÖN A/S NORWAY
— Skarpur oddur, af augljósum ástaaðum.
— Rétt öngullag. svo að fiskurinn sleppi ekki af.
— Nákvæm málmherðing, til að fyrirbyggja öngulbrot.
— Og auðvitað, mikið ryðviðnám.
MUSTAD KEY BRAND önglar hafa alla þessa eiginleika,
sem er skýring þess, að fiskimenn um allan heim treysta á
norsku önglana frá MUSTAD.
A öllum fiskveiðum er góður afli forsenda góðs fjárhags.
Á öllum linuveiðum er góður afli háður gæðum önglanna.
Hverjir eru eiginleikar góðs önguls?
Valletta, 14. okt. Reuter
AÐ minnsta kosti þrír flugliðar og
ein kona biðu bana þegar Vulcan-
sprengjuþota brezka flughersins
sprakk f tætlur og steyptist til
jarðar skömmu fyrir lendingu á
Möltu f dag. Tveir flugliðar björg-
uðust í fallhlíf. Óvfst er um afdrif
fimm manna.
r
Askorun
Dyflinni, 14. október. Reuter.
ÍRSKU stjórninni barst í dag
hljóðrituð áskorun frá hollenzka
iðnrekandanum Tide Herrema
um að sleppa þremur föngum sem
ræningjar hans krefjast að fá
leysta úr haldi í skiptum fyrir
hann. Þar með hefur í fyrsta
skipti heyrzt frá Herrema sfðan á
fimmtudag.
Bylting í Argentínu?
Buenos Aires, 14. október. AP.
ANGELO Robledo, innanríkisráð-
herra Argentinu, neitaði því í dag
að hugsanlegt væri að herinn
gerði byltingu. Þó er þrálátur orð-
rómur um byltingu þar sem
Isabel Peron forseti hyggst taka
aftur við völdum á föstudag.
Rússum lánað?
London, 14. október. Reuter.
RÚSSAR þreifa fyrir sér um að
minnsta kosti 300 milljón dollara
lán á alþjóðlegum peninga-
markaði samkvæmt góðum
heimildum.
Nr. 41 — 46 Kr. 5.550
Skóverzl. Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll — Sími 14181
Léttir og
liprir úr mjúku
rauðbrúnu
leðri og með
slitsterkum sólum
Verð kr. 4.995
Léttir og
liprir úr mjúku
rauðbrúnu leðri
með slitsterkum
Nr. 35 - 40 Kr. 5.450