Morgunblaðið - 15.10.1975, Blaðsíða 47
47
Sjálfstæðisfélögin:
Fundur um
útfærsluna
í 200 mílur
SJALFSTÆÐISFÉLÖGIN í
Reykjavík efna í kvöld til fundar
um útfærslu fiskveiðilögsögunnar
í 200 mflur. Fundurinn verður
haldinn í Súlnasal Hótel Sögu og
hefst klukkan 20.30.
A fundinum munu Geir Hall-
grímsson, forsætisráðherra og
Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, flytja ræður.
Leiðrétting
I FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
um sýningu Ragnars Páls listmál-
ara á Kjarvalsstöðum féllu niður
gæsalappir á kafla f fréttatilkynn-
ingu frá Ragnari Páli þar sem
sagði m.a.: „Sýning Ragnars Páls
er opin daglega kl. 16—22 til
sunnudagskvölds 19. október og
þar fær almenningur að kveða
upp sinn dóm um réttmæti
ákvörðunar sýningarráðs Kjar-
valsstaða, sem að meirihluta var
skipað listamönnum, en það var
núverandi hússtjórn, sem leyfði
Ragnari Páli að sýna að Kjarvals-
stöðum.“
— Sjómenn
Framhald af bls. 48
ingu vegna óhagstæðrar stærðar-
flokkunar á fiski og ört minnk-
andi afla. Mest vegna þess að
fiskimenn fá ekki raunverulegt
verð til skipta. Okkur er ekki
unnt að skilja hvers vegna fiski-
menn einir allra stétta þurfi að
lækka í launum þegar laun ann-
arra stétta hækka svo sem fram
kemur I nýlegu hækkuðu land-
búnaðarverði og ýmissi þjónustu.
Einnig lýsum við vantrausti á
fulltrúum sjómanna, útgerðar-
manna og oddamann sem sæti
eiga f Verðlagsráði sjávarúfvegs-
ins. Krefjumst við lagfæringa á
fiskverði okkur til hagsbóta og
teljum hæfilegan frest eina viku
svo róðrar ekki falli niður og öll
forsenda hlutaskipta sé ekki al-
gjörlega brostin."
Morgunblaðið hafði í gærkvöldi
samband við Matthías Bjarnason
sjávarútvegsráðherra og spurði
hann um skeytið frá bátaflotan-
um. „Það er rétt,“ sagði Matthías,
„að fjöldi skipa hefur sent mér
skeyti sem sjávarútvegsráðherra,
en ég vil taka fram að hér er um
alvarlega missögn að ræða hjá
þeim sem standa fyrir þessari
undirskriftasöfnun. Ég vil vekja
athygli á þvf að fiskverð hækkaði
frá 1. jan. s.l. um 14,5—15%, frá
1. júní s.l. um 11—12% og frá 1.
okt. um 4,5—5%. Hér er allt
miðað við ársafla, en miðað við
haustafla er hækkunin um 3,3%
nú.
I áætlunum Verðlagsráðs um
skiptingu S þorski á vetrarvertfð,
þ.e. jan.—maf, var reiknað með að
41,8% væri í stærsta flokki (75
sm og yfir), 41,5% í millistærð
(54—74 sm) og 16,7% smáfiskur
(43—54 sm).
í reynd miðað við þann fisk sem
kom á land á vetrarvertíð og
umreiknaðist sem óslægður fisk-
ur upp á 151 þús. tonn, voru 20200
tonn óflokkuð. Þar var yfirstærð,
75 sm og yfir, alls 68,7% og milli-
stærð 27,8% og 3,5% var smáfisk-
ur. Þetta þýðir ekki að stærð
fisksins hafi verið þessi, heldur
verð, en hins vegar er mér alveg
ljóst að það er betri útkoma á
þessum árstíma en öðrum.
Nú er verðjöfnunarsjóður fisk-
iðnaðarins tómur að undanskil-
inni saltfiskdeild. Þvf hefur rfkis-
sjóður, til þess að greiða fyrir því
að fiskverð næðist, heitið þvf að
ganga i ábyrgð fyrir verðjöfn-
unarsjóðinn til áramóta, en ætlað
er að þessi ábyrgð muni nema allt
að 45 milljón kr. á haustvertfð.
Viðmiðunarverð verðjöfnunar-
sjóðs fiskiðnaðarins námu um
1860 millj. kr. og talið er að þau
muni nema á þessu ári 2100 millj.
kr. miðað við núverandi gengis-
skráningu og markaðsverð. Þetta
er f fyrsta skipti sem rfkissjóður
verður á þennan hátt að ganga f
ábyrgð fyrir Verðjöfnunarsjóð.
Ástæðan er of lágt verð á öllum
afurðum erlendis á undanförnum
tæpum tveimur árum. Það þarf
hins vegar engan að undra þótt
það verði lækkun á millistærð
ufsa ef við lítum á það að frystur
ufsi er seldur á 63,50 kr. pundið
miðað við sif-verð en þorskur að
meðaltali á 119,75 kr. pundið
miðað við sif-verð, en þetta meðal-
verð er reiknað af blokk og
frystum fiskiflökum. Meðalverðið
á ýsu er 115 kr„ 118 kr. á steinbít
og 77 kr. á karfa. Samkvæmt
ákvörðun verðlagsráðs verður
mest hækkun á stærsta þorsk-
inum, eða úr 42,80 kr. kg í 47 kr.
og millistærð úr 35,80 f 38 kr.
Steinbíturinn hækkar úr 25,10 í
26 kr. og karfi úr 19. kr. í 19.50.
Stórufsi stendur í stað f 26,50, en
millistærðin lækkar úr 20,60 kr. f
17.50.
I heild, eins og ég hef áður sagt,
er um hækkun á fiskverði að ræða
en ekki lækkun og því hljóta
þessar fréttir að vera rang-
túlkaðar fyrir sjómönnum.
Við stöndum nú frammi fyrir
því, tslendingar, að Verðjöfnun-
arsjóður er tómur og afurðaverð
okkar engan veginn nægilega hátt
miðað við framleiðslukostnað, en
leiðin til þess að sigra þessa erfið-
leika er ekki sú að sigla í höfn og
hætta veiðum, því ríkissjóður
getur á engan hátt staðið undir
aðalatvinnuvegi iandsins, það er
aðalatvinnuvegurinn sem hefur
fyrst og fremst staðið undir
þjóðarbúskapnum og þegar syrtir
í álinn eins og nú gerir þá þýðir
ekkert að snúast við vandanum á
annan hátt en taka á honum og
sigrast á honum. Hins vegar er
mér bæði ljúft og skylt að taka
fram að ég tel að mörg störf I
landi séu allt of hátt launuð
miðað við störf sjómanna. Staða
útgerðarinnar er mjög slæm og
við verðum því fyrst og fremst að
hugsa um að halda eðlilegri starf-
rækslu atvinnuveganna þar til úr
rætist.
Hins vegar finnst mér mjög
óverðskuldað það vantraust sem
kemur fram í skeytinu f garð
þeirra manna sem vinna að verð-
lagningu sjávarafurða lögum sam-
kvæmt, þvf að þeir eiga við ákaf-
lega mikla erfiðleika að etja og
hafa lagt sig alla fram um það að
gera sitt til þess að leysa I bili
þennan mikla vanda.“
Morgunblaðið hafði einnig sam-
band við Ingólf Ingólfsson full-
trúa Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins f Verðlagsráði og
yfirnefnd. Hann sagði um
skeytið: „Þeir sem standa að
sendingu skeytisins gefa ákveð-
inn frest til lagfæringa, eins og
þeir orða það, en þeir benda þó
ekki á nein sérstök atriði og
virðast ekki heldur hafa kjörið
sér neina talsmenn sem að sjálf-
sögðu þyrfti ef til viðræðna ætti
að koma. Það er hins vegar ekki
óeðlilegt að töluverðrar óánægju
gæti, en þetta mál er eins erfitt
að eiga við eins og raun ber vitni.
Að þessu sinni erum við fulltrúar
seljenda kallaðir sökudólgarnir
og kemur þar vel á vonda, en við
teljum að aðstæður séu þannig að
við höfum gert svo rétt sem við
gátum miðað við aðstæður og for-
sendur sem lögin ætla okkur að
vinna eftir, en við erum bundnir
lögum um verðákvörðun í megin-
atriðum. Hins vegar ef við gætum
ákveðið fiskverð án slíks tillits, þá
væri gaman að lifa.
Staða Verðjöfnunarsjóðs er
skýr, tómur, en hann hefur greitt
verulega með verðinu til selj-
enda, því markaðsverð er iægra á
mörgum tegundum framleiðsl-
unnar en svo að það borgi sig
hreinlega að veiða þær tegundir
og ,þar á meðal er ufsinn eitt
mesta vandamálið um þessar
mundir.
Það má lfka taka það fram að
það er erfitt að gera samanburð í
snöggu bragði t.d. miðað við fisk-
verð í Færeyjum eins og gert
hefur verið. Þar er verðjöfnunar-
sjóður í gangi sem greiðir helm-
ing ufsaverðsins til seljenda og
þessi mál eru svo margslungin að
það þarf að huga að mörgu áður
en hægt er að taka afstöðu í við-
miðun, en á morgun verður nýtt
fiskverð ákveðið í Færeyjum svo
þar er ekkert víst heldur."
Kristján Ragnarsson, formaður
LltJ, sagði um skeytið:
„Það gætir örugglega mikils
misskilnings í þessu máli, eða að
mennirnir hafa ekki haft næga
vitneskju um verðákvörðunina,
því að f henni felst verðhækkun,
sem nemur 3,3—4,6% eftir þvi
hvort miðað er við væntanlegan
haustafla eða ársafla. Það hefur
komið skýrt fram f fréttum hvert
afurðaverð er nú á fiskafurðum
okkar og hver staða verðjöfnunar-
sjóðs er. Verðlagsráð á þvf ekki
annarra kosta völ en að miða við
þær staðreyndir, en það hefur
hins vegar ekki aðstöðu til að
leysa efnahagsvanda þjóð-
arinnar."
+
Innilegar þakkir sendum við öll-
um þeim, er auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför elskulegs sonar okkar
og bróður,
RÚNARS
' BJÖRGVINSSONAR.
Björgvin Sveinsson,
Hólmfrlður Vigfúsdóttir,
og systkini hins látna.
Móðursystir mín, + SOFFÍA JÓHANNSDÓTTIR,
Hverf isgötu 112,
lézt i Landakotsspltala mánudaginn 13. október. Fyrii hönd vanda-
manna, Arndfs Stefánsdóttir.
Systir okkar. + SVAVA THORDERSEN, Ölduslóð 4, Hafnarfirði,
andaðist 14 október Sigrfður Thordersen,
Helga Thordersen, Stefán Ó. Thordersen.
t
Ástkær eiginkona min, móðir, tengdamóðir og amma.
HULDA ANDRÉSDÓTTIR,
Sogavegi 210, Reykjavík,
andaðist i Borgarspitalanum 1 3. þ.m.
Stefán Þ. Gunnlaugsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Kveðjuathöfn um móður okkar, tengdamóður og ömmu,
VIGDÍSI LYDÍU SIGURGEIRSDÓTTUR,
frá Ólafsvik,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16 október kl. 3 e.h.
Jarðsett verður frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 1 8. október kl. 2 e.h.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför,
KARLS G. PÁLSSONAR,
Grettisgötu 48 B,
Sérstakar þakkir færum við stjórn og starfsmannafélagi bifreiðastöðvar-
innar Bæjarleiða
Jóna V. Guðjónsdóttir,
Ólafur G. Karlsson, Guðrún A. Árnadóttir
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug, samúð og vináttu við andlát og jarðarför föður okkar,
fósturföður, tengdaföður afa og langafa,
JÓNASAR JÓNSSONAR,
f.v. kaupmanns.
Sérstakar þakkir færum við stjórn og kór Filadelfiusafnaðarins.
Guðrun S. Jónasdóttir Guðbjörn Bjarnason
Bergdís R. Jónasdóttir Guðm. H. Sigurðsson
Ingólfur R. Jónasson Marta Jónsdóttir
Jóhann M. Jónasson Sigriður Gunnarsdóttir
Sigurður Sigurðsson Margrét Eggertsdóttir
Björgvin K. Grfmsson Ásta M. Guðlaugsdóttir
barnabörn og
barnaharnabörn.
+ Útför föður okkar
KARLS WÍUM VILHJÁLMSSONAR
verður gerð frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 10.30. 16. október klukkan
* Helga Wíum Brynjólfur Wíum
+
Móðirokkar, tengdamóðir, amma og langamma,
RUTH JÓNSDÓTTIR
frá Patreksfirði,
lést i Vífilsstaðaspltala aðfaranótt 14 október
Sigurður Jónasson, Hildur Bjarnadóttir,
Álfheiður Jónasdóttir, Jakob Ágústsson,
börn og barnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
ÁSGEIRS JÓNSSONAR,
Kópavogsbraut 80.
Jóhanna Sigurðardóttir,
Björn Ásgeirsson.
Jón Snorri Ásgeirsson,
Sigurður Ásgeirsson.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginkonu og
móður okkar
ÖNNU VÍDALÍN PÁLSDÓTTUR.
Durihaga 1 7. Reykjavfk
Valdimar Hildibrandsson,
Guðjón Már Valdimarsson.
Páll B. Vfdalfn Valdimarsson.
+
Hjartans þakkir til allra er vottuðu samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför eiginkonu minnar
STEINUNNAR PÁLSDÓTTUR,
Fögrubrekku 1, Kópavogi.
Fyrir hönd ættingja
Jón Þorvaldsson.
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát, sonar okkar og bróður
HAUKS KRISTJÁNSSONAR
Ágarðsveg 7.
Húsavfk.
Gerður Björnsdóttir Kristján Arnljótsson
Björn Kristjánsson
Sigurbjörg Kristjánsdóttir Hulda Kristjánsdóttir.