Morgunblaðið - 15.10.1975, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTOBER 1975
Landhelgisgæzlan ekki nógu vel útbúin:
„Verður hægt að verja þessa
stóru landhelgi?"
„Það vitum við ekki og það er
víst bezt að segja sem minnst
um landhelgisgæzluna, en hins
vegar er það ljóst að hún getur
aldrei varið 200 mflna mörkin
nákvæmlega."
„Á að semja við Breta og
Þjóðverja?"
„Við eigum ekki að tala við
Þjóðverja en við eigum að
semja við Breta til skamms
tíma og lofa þeim að vera f 1—2
ár að veiðum utan við 50 mílna
mörkin. Þjóðverjar hafa hins
vegar hagað sér þannig gagn-
vart Islendingum, að það er
engu líkt. Og ef við eigum að
ræða við þá, verða þeir fyrst að
sjá um að tollfvilnanir íslands
gagnvart Efnahagsbandalagi
Evrópu taki gildi.“
Gæzlan þarf fleiri skip
Skipverjar á Svani RE eru að
gera skipið klárt til síldveiða,
en það hefur verið í viðgerð að
undanförnu. Aftur á bátapalli
hittum við Ragnar Ingibergs-
son stýrimann og hann sagði
m.a.:
„Mér lfzt vel á útfærsluna
eins og flestum. Ef útfærslunni
verður framfylgt og landhelgin
varin af einhverju viti, þá er
þetta sennilega lokaáfangi
okkar í landhelgismálum."
„En finnst þér landhelgis-
gæzlan nógu vel búin skipa-
kosti og flugvélum til þess að
hægt sé að verja þessa víðáttu-
miklu lögsögu?"
„Það er ekkert vafamál að
gæzlan þyrfti að hafa fleiri skip
til þess að sinna sfnu hlutverki
betur.“
„Á að semja við Þjóðverja
eða Breta?“
„Við eigum ekki að semja við
þá og eigum ekki að semja við
útlendinga."
„ Viö skulum aðeins
semja í stuttan tíma”
Rætt við nokkra sjómenn um 200 mílna útfærsluna
Erfitt að verja stóra lög-
sögu
„Mér lízt mjög vel á út-
færsluna," sagði Ingimundur
Magnússon skipstjóri og aðal-
eigandi Svans, „annars held ég
að við þurfum að vera vel vak-
andi yfir öllum hræringum f
þessum málum. Þá er land-
helgisgæzlan ekki nógu vel út-
búin, því þetta er geysileg vfð-
átta, sem þarf að verja. Ef vel á
að vera þarf landhelgisgæzlan
bæði fleiri skip og flugvélar,
enda mjög erfitt fyrir fá skip að
verja lögsöguna."
„Hvað viltu segja um
samninga við aðrar þjóðir?"
„Bezt væri að þurfa ekki að
semja, en svo getur farið að það
þurfi að semja við Breta og eða
Þjóðverja á einhvern hátt, en
það verður þá að vera til
skamms tíma og helzt alls ekki
hleypa þeim inn fyrir 50 milna
mörkin." {>.0.
ÞAÐ er stór dagur I augum
flestra sjómanna landsins I
dag, þegar Islendingar ná þeim
áfanga að ráða nú yfir land-
grunninu öllu. t tilefni út-
færslu fiskveiðilögsögunnar I
200 mflur skrapp Mbl. niður að
höfn f gær og ræddi þar við
nokkra sjómenn, sem voru að
störfum I skipum sfnum. Sumir
voru að landa fiski, aðrir að
mála skipin, verið var að skipta
um vél I einu og eitt skipanna
var að fara á sfldveiðar.
Sjómennirnir voru einkum
spurðir um þrennt, útfærsluna,
landhelgisgæzluna og
samninga við aðrar þjóðir.
Landhelgisgæzlan
ekki nógu vel
búin tækjum
„Mér lfzt vel á útfærsluna,"
sagði Atli Örvar vélstjóri á Kóp
RE, en þegar okkur bar að
garði var verið að ljúka við
löndun á 16 tonnum af fiski
sem báturinn hafði fengið á 7
dögum. „Vonandi á útfærslan
eftir að bera einhvern árangur,
þannig að við öflum meir en nú.
Um þessar mundir er allt dautt
á miðunum og mikið þarf að
hafa fyrir þvf að ná í fiskinn.
Þá eigum við ekki lengur að
láta erlenda togara skaka á
okkar miðurn." „Telur þú þetta
vera lokaáfangann í landhelgis-
baráttu íslendinga?"
„Sennilega er þetta loka-
áfanginn, en hins vegar má
reikna með að einhverjar breyt-
ingar verði á landhelgismálum
f framtíðinni.“
„Finnst þér landhelgisgæzlan
nógu vel búin tækjum, þannig
að hún geti varið landhelgina?"
„Að mínu mati er hún ekki
nógu vel búin. T.d. þarf hún
fleiri flugvélar og það þarf ekki
að sjá eftir þeim aurum, sem til
þeirra kaupa renna. Hins vegar
held ég að skipin séu orðin
nógu mörg. Þá held ég, að við
eigum ekki að semja við Breta
og Þjóðverja.“
Ekki lokaáfanginn
„Það var orðið bráðnauðsyn-
legt að færa út landhelgina, þvf
við verðum að hafa yfirráð á
hafsvæðinu kringum tsland. Ég
held þó að þetta verði ekki loka-
áfangi okkar í landhelgis-
málum, þvf varla verður alltaf
miðað við einhverjar vissar
fjarlægðir," sagði Sigurður
Petersen stýrimaður á Kóp.
„Getur landhelgisgæzlan
varið þessa stóru fiskveiðilög-
sögu?“
„Það held ég ekki. Land-
helgisgæzlan hefur aldrei verið
nógu vel útbúin, hvort sem við
höfum haft fjögurra, tólf eða
fimmtfu mílna fiskveiðilög-
sögu. Þó svo að við færum fisk-
veiðilögsöguna út í 200 mílur,
þá er svæðið sem varðskipin
þurfa að gæta, lítið stærra en
áður, því miðin hér við land eru
þau sömu. Með betri flugvéla-
kosti er hægt að hafa miklu
betra eftirlit en nú úr lofti, en
ég vil ekki tjá mig og hef ekki
þekkingú til að segja hvaða
flugvélar ætti að kaupa.“
„Eiga Islendingar að semja
við Breta og Þjóðverja?“
„Ég held að það verði slagur,
hvort sem við semjum eða ekki.
Ummæli brezkra ráðamanna nú
nýverið gefa heldur ekki tilefni
til samninga, og þvi ættum við
ekki að leggja neina áherzlu á
samninga við þá. Og ef af
samningum verður á ekki að
Ingimundur Magnússon
Kunnum ekki að nýta
landhelgina
Um borð i Arnarnesinu hitt-
um við eiganda þess og skip-
stjóra Jón Guðjónsson. Hann
sagði okkur að verið væri að
skipta um vél í bátnum og um
leið væri tækifærið notað til að
„skvera“ hann vel. Þegar Mbl.
spurði Jón um útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar f 200 mflur
sagði hann:
„Það var nauðsynlegt fyrir
okkur að færa út landhelgina í
200 mílur og hefði átt að vera
búið að því. Hins vegar er ég
handviss um, að við höfum
ekkert að gera með þessa stóru
landhelgi, þar sem við kunnum
ekki að nýta hana. Það verður
að vera mikil breyting á, ef
hrossakaup og vitleysa eiga
ekki að vera allsráðandi, þegar
kemur að friðunaraðgerðum og
vísindalegri nýtingu land-
helginnar.“
„Er þetta lokaáfangi íslands í
útfærslumálum?"
„Það held ég, komumst við
miklu lengra út?“
„En landhelgisgæzlan er hún
nógu vel búin og eigum við að
semja við Breta og Þjóðverja?"
„Gæzlan er alveg nógu vel
undirbúin til að verja þessa
landhelgi okkar. Og við eigum
skilyrðislaust að semja við
Breta og Þjóðverja um veiðar
inn að 50 mílna mörkunum. Við
höfum hvorki bolmagn né efni
á þvi að semja ekki við þessar
þjóðir. Sjálfir seilumst við eftir
afla upp f fjörusteina annars-
staðar og mótmælum kvóta-
skiptingum, sem samþykktar
eru og á ég þar við okkar fram- hvað þeir vildu segja um út-
komu varðandi sildveiðar í færsluna.
Norðursjó." „Tvö hundruð mflurnar eru
Bræðurnir Stefán og Guð-
bjartur Einarssynir
Frá höfninni, varðskipið Þór f baksýn. — Ljósm. Mbl.: Brynjólfur.
Ragnar Ingibergsson
Sigurður Petersen
Semja yið Breta
en ekki Þjððverja
Uti við Granda lá Aðalbjörg
RE og voru eigendur hennar,
bræðurnir Stefán og Guðbj'art-
ur Einarssynir, að mála bátinn
þegar Mbl. bar að garði. Að
sjálfsögðu spurðum við þá fyrst
Jón Guðjónsson
það sem koma skal víða um
heim. Og að sjálfsögðu er þetta
lokaútfærsla okkar, þvf ekki
getum við fiskað á botnlausu
vatni. Núna verður að nota
tækifærið og stöðva algjörlega
smáfiskadrápið sem er hreint
hryllilegt."