Morgunblaðið - 15.10.1975, Blaðsíða 48
„Fylgi við 200 mílurnar
vaxandi hvort sem er”
— segir Amerasinghe, forseti haf-
réttarráðstefnunnar, í samtali við
Morgunblaðið um útfærsluna í nótt
Kjarvals-
myndum
I DAG verður opnuð í Brautar-
holti 6, þriðju hæð, sýning á
nokkrum verkum Jóhannesar
Kjarvals heitins, sem ekki hafa
áður komið fyrir almennings sjón-
ir. Hér er mestmegnis um að ræða
teikningar og skissur. Elztu
myndirnar eru frá 1911—1912 og
ná alla daga fram til láts hans.
Það eru börn og barnabörn Kjar-
vals sem eru með þessari sýningu
að kynna teikningarnar fyrir
fólki en þær eru unnar á skemmri
tfma en olfumálverkin, sem hann
öðlaðist fyrst frægð fyrir. Myndir
þessaf eru einungis brot af þeim
fjölda teikninga, sem meistarinn
lét eftir sig og eru þær teiknaðar
á margs konar pappír, þ.á m.
serviettu. 1 dag hefði meistari
Kjarval orðið 90 ára.
Veiðiheimild Breta:
forseti ráðstefnunnar, er Mbl.
náði sambandi við hann f aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna f
New York f gær. „Fylgi við 200
mflna efnahagslögsögu fer hrað-
vaxandi og hefði gert það hvort
sem var. Eg held að mikill meiri-
hluti fulltrúa geti fallizt á út-
færslu fiskveiðilögsögu f 200 mfl-
ur, þótt ef tíl vill séu auðlindir
sjálfs hafsbotnsins annað mál. En
þróunin er vissulega f átt til sér-
stakrar efnahagslögsögu rfkis f
200 mflna fjarlægð frá ströndum
þess.“
„Nei, ég held að okkur muni
ekki takast að ljúka umræðum
okkar og samþykkja nýjan haf-
réttarsáttmála á næsta fundi ráð-
stefnunnar i marz hér í New
York," sagði Amerasinghe enn-
fremur. „Tíminn hefur satt að
segja hlaupið frá okkur. Ég efast
um að þetta takist á næsta fundi
ekki sizt vegna þess, að almenna
samstöðu þarf til að ákvörðun sé
gild. Hins vegar hefur mér virzt
að hugmyndin um enn einn fund
sé ekki sérlega vinsæl."
Framhald á bls. 41
„Ekki stríðshugur í fólki”
„ÉG VEfT ekki hvort útfærsla
fslendinga muni hafa áhrif á
gang mála á hafréttarráðstefn-
unni þ.e. á umræðurnar sjálfar,
en ég efast alla vega um að þau
áhrif verði alvarleg,“ sagði
Hamilton Shirley Amerasinghe,
Hamilton Shirley Amerasinghe
Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
TOGAÐ VIÐ GÖMLU MÖRKIN — Vestur-þýzki skuttogarinn Lubeck frá Kiel á
togveiðum rétt utan 50 mflna markanna útaf Reykjanesi í gær. Ekki langt frá var
varðskipið Týr á verði.
Atvinnulausir brezkir sjómenn
vilja komast á íslenzka togara
— rætt við Jón Olgeirsson í Grimsby
Grimsby I gær — Frá blaðamanni
Morgunblaðsins, Ingva Hrafni Jónssyní.
„ÞAÐ ER ekki stríðshugur í
fólki hér, allir vilja að samn-
ingaleiðin verði farin en margir
eru óneitanlega uggandi um sig
og atvinnu sína,“ sagði Jón 01-
geirsson ræðismaður íslands í
Grimsby I samtali við Morgun-
blaðið í dag.
„Að mínu áliti verður að
leggja megináherzluna á samn-
ingaleiðina, um að sókn verði
minnkuð á miðin svo lengi sem
Bretar, Þjóðverjar og aðrar
þjóðir, sem hagsmuna hafa að
gæta, skilja okkar sjónarmið og
eru tilbúnir til að koma til móts
við okkur. Ef ekki tekst að
semja við Breta er ekki um
nema tvennt að velja, að Bretar
sætti sig við lokun 50 míln-
anna, sem myndi þýða, að
mestum hluta ísfisksflota
þeirra yrði lagt og ég veit af
kynnum mfnum við fólkið að
það kemur ekki til greina.
Enginn getur sætt sig við að
missa atvinnuna og geta ekki
fætt og klætt sig og sína. Hin
leiðin fyrir Breta er að halda
áfram veiðum við ísland er nú-
gildandi samkomulag rennur út
og þá undir vernd stjórnvalda
sem þýðir nýja flotaíhlutun en
eins og fram hefur komið telja
Bretar sig eiga lagalegan rétt á
að veiða alveg upp að 12 mílum
verði ekki samið á ný. Ef það
gerist þýðir það að floti þeirra
mun veiða á þeim svæðum sem
skipstjórarnir sjálfir vilja og
þar með myndum við tapa
okkar friðuðu hólfum þar til og
ef 200 mílurnar verða sam-
þykktar á Hafréttarráðstefn-
unni.“
— Nú vöktu ummæli Cros-
lands í fyrri viku mikla athygli
á Islandi sökum hins harða
Framhald á bls. 41
J6n Olgeirsson
Takmörkuð
við hólfin
Sjómenn á 119 skip-
um mótmæla fiskverði
Misskilningur og ónógar upplýsing-
ar, segja forsvarsmenn í landi
1 GÆR voru þrír brezkir tog-
arar að veiðum um það bil 10
sjómflur utan 50 mflna fisk-
veiðilögsögumarkanna, en f
dag yrðu sömu togarar á sömu
sióðum landhelgisbrjótar
gagnvart fslenzkum lögum.
Hins vegar eiga þeir rétt á,
meðan núgildandi fiskveiði-
samningur Breta og fs-
lendinga er við lýði, að fara
inn fyrir 50 mflna mörkin til
þess að vera Iöglegir gagnvart
fsienzkum lögum, en eins og
kunnugt er hafa Bretar
heimild til veiða fram til 13.
nóv. á ákveðnum svæðum
innan 50 mílna markanna.
Þar sem varðskipin eru nú
Framhald á bls. 41
Sjávarútvegsráðherra barst f
gær skeyti frá 119 skipum á
miðunum f kring um landið þar
sem mótmælt er niðurstöðu yfir-
nefndar Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins á nýja fiskverðinu og
gera sjómenn þvf skóna að sigla f
land að viku liðinni ef leiðrétting
fæst ekki á þessum málum þeim f
hag. I skeytinu er lýst yfir van-
trausti á fuiltrúa sjómanna og
útgerðarmanna f Verðlagsráði, en
þeir samþykktu hið nýja fiskverð
ásamt öðrum. 1 samtölum
Morgunblaðsins við þá f gær-
kvöldi og Matthfas Bjarnason
sjávarútvegsráðherra, kom fram
að þeir telja afstöðu sjómann-
anna á miðunum byggða á mis-
skilningi m.a. vegna þess að fisk-
verð f heild hafi ekki lækkað,
heldur hækkað um 3,3 % eða þar
um bil. Fer hér á eftir skeytið til
ráðherra, en sfðan fara viðtölin á
eftir.
„Til sjávarútvegsráðherra.
Við undirritaðar skipshafnir
119 skipa lýsum undrun okkar á
nýauglýstu fiskverði og mótmæl-
um harðlega þeirri kjaraskerð-
ingu, sem þar kemur fram til við-
bótar undangenginni kjaraskerð-
Framhald á bis. 47.
Sýning á
nokkrum
ósýndum