Morgunblaðið - 15.10.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTOBER 1975
7
r
Verðtrygging
sparifjár og
fjárskuld-
bindinga
Aron Guðbrandsson
hefur ritað athyglisverðar
greinar I dagblaðið Vísi
um verðtryggingu spari-
fjðr. Hann segir ma:
„Á fáu hafa menn graatt
meira á umliðnum ðrum
en að fá lánað fé. Almenn-
ingur þekkir þetta mjög
vel. Menn fá lánaða pen-
inga til allskonar fjárfest-
inga, eignirnar hækka sið-
an stórkostlega i verði. en
skuldirnar, sem sköpuðu
verðmætin, greiðast niður
með sömu krónutölu. —
Það rétta hefði vissulega
verið, að visitölutryggja
Aron Guðbrandsson
allar skuldir og innstæður
fyrir löngu, því ð meðan
menn eygja þann mögu-
leika mestan til gróða, að
skulda, þá er freistingin
fyrir hendi til þess, að
eyðileggja þá undirstöðu,
sem gjaldmiðillinn hvilir
á. .. ."
Skuldari spari-
skírteina
Um spariskirteini rikis-
ins segir Aron: „Ég hefi
alltaf taiið og tel enn. að
rikið þurfi að fara varlega
í útgáfu þessara verð-
bréfa. Ástæðan er sú að
skirteinin eru verðtryggð
og margfaldast þvi fljót-
lega að verðmæti þegar
peningarnir eru i hröðu
hruni. Ég tel heldur ekki
rétt, að taka lán með
þessum kjörum til skipu-
lagslítilla framkvæmda.
Hitt hefði verið réttara að
verja andvirði þeirra til
ákveðinna verka, sem
siðan hefðu verið tekin
inn á fjárlög við gjalddaga
skírteinanna, en ekki að
gefa út ný bréf til
innlausnar þeim
eldri. . . ."
Dæmi Arons
Þá tekur Aron dæmi um
gagnkvæman ávinning
slíkra skirteina: „Við för-
um upp i ráðuneyti og
óskum þar eftir að lagður
verði vegarspotti, sem
okkur vanhagar um.
Ráðamenn svara því til,
að vegur þessi verði
lagður eftir 5 ár, þá sé
hann á vegaáætlun og
verði þá tekinn á fjárlög.
Við bjóðum ráðherranum
þá að lána rikinu það fé,
sem þarf til verksins,
gegn þvi, að við fáum
sömu verðmæti eftir 5 ár
og þá muni kosta að
leggja veginn. Þessu boði
getur rikið tekið, þvi við
það skeður þrennt: 1) Við
munum fá veginn 5 árum
fyrr en ella, 2) Útgjöld
rikisins munu ekki aukast
frá áætlun, 3) Við fáum
okkar verðmæti óskert.
— Frá sjónarmiði þeirra,
sem skirteinin kaupa er
málið augljóst: Þetta er
eini möguleikinn sem
menn hafa til þess að
bjarga þvi sem bjargað
verður i hruninu, ef menn
hafa ekki það mikið fé
undir höndum að þeir geti
staðið i stórframkvæmd-
um, og jafnvel þótt menn
hefðu það, þá gætu
skírteinin orðið hag-
felldari."
Siðar i greininni segir
hann: „Oft hefi ég verið
spurður að þvi, hvort rikið
muni verða þess umkomið
að endurgreiða þessi skir-
teini. Ég vil ekki vera svo
bölsýnn að halda að rikis-
gjaldþrot verði hér, en ef
svo yrði, hvers virði eru
þá peningaseðlarnir? Og
hvað er þá með allt
þjóðarstoltið?"
Niðurstöðurnar virðast
þvi þessar. Fara á varlega
I útgáfu og sölu verð-
tryggðra spariskirteina
rikisins. Andvirði þeirra á
að verja til áveðinna arð-
bærra verka. sem hag-
kvæmt er að flýta fram-
kvæmdum á, bæði til þess
að þau komist fyrr i gagn
og arðgjöf, og vegna þess
að framkvæmdakostn-
aður vex það ört, að það
kann að reynast rikinu
þyngra i skauti að fresta
framkvæmdum en standa
undir kostnaði af
verðtryggðum spari-
skirteinum, sem flýtt geta
tilteknum verkum um
nokkur ár.
— Semjum til
sigurs
Framhald af bls. 1
þýzku togurunum var að toga fyr-
ir innan mörkin, en þrir þeirra
voru rétt utan markanna. Enn
utar, u.þ.b. 10—15 sjómílur, voru
fjórir vestur-þýzkir togarar að
veiða í bezta veðri. Voru þetta allt
stórir skuttogarar og mátti þekkja
þar kunn nöfn landhelgisbrjóta,
svo sem Sleswig og Arcturus.
Þarna var einnig vestur-þýzka eft
irlits- og aðstoðarskipið Meer-
katze á fullri ferð milli togaranna.
Skammt innan 50 mílna mark-
anna útaf Reykjanesi var flagg-
skip varðskipaflotans, Týr, á
hægri ferð og fylgdist með vestur-
þýzku togurunum. Var ekki
annað að sjá en Týr væri tilbúinn
í slaginn, því í skut hans mátti sjá
togvíraklippurnar frægu ef
grannt var skoðað.
Skipakostur Landhelgisgæzl-
unnar er nú við upphaf 200 mílna
fiskveiðilögsögu við tsland
samtals 6 varðskip og ein flugvél.
Fjögur stærri varðskip eru í flot-
anum, Týr, Ægir, Þór og Óðinn,
en síðastnefnda skipið er í klöss-
un í Danmörku en verður væntan-
lega komið I gagnið um eða upp
úr næstu mánaðamótum. Tvö
minni varðskip eru i flotanum,
Albert og Arvakur. Landhelgis-
gæzlan á eina Fokker flugvél, TF-
SÝR, og önnur er í smiðum fyrir
stofnunina í Hollandi. Þyrla
Landhelgisgæzluunnar, TF-GNÁ,
eyðilagðist er hún hrapaði til
jarðar fyrir nokkrum dögum.
Samkvæmt reglugerðinni nýju
er fiskveiðilögsagan mörkuð 200
sjómflum utan við grunnlínu, sem
dregin er milli staða sem nánar
eru tilgreindir i reglugerðinni.
Auk þess eru dregnar marklínur
umhverfis Kolbeinsey, Hvalbak
og Grimsey, 200 sjómílur frá
þeim.
Þar sem skemmra er en 400
sjómílur milli grunnlina Færeyja
og Grænlands annars vegar og
Islands hins vegar afmarkast fisk-
veiðilögsaga íslands af miðlínu.
Reglugerðinni verður ekki fram-
fylgt að svo stöddu, eða þar til
annað verður ákveðið, utan mið-
línu milli grunnlina Jan Mayen
annars vegar og Islands hins
vegar.
Island er fyrsta þjóðin við Norð-
ur-Atlantshaf sem færir fiskveiði-
lögsögu sína út í 200 sjómílur.
Með gildistöku reglugerðarinn-
ar um 200 mílna fiskveiðilögsögu
frá og með miðnætti s.l. er allt
hafsvæði út að 200 sjómílum allt I
kringum landið lýst lögsögusvæði
islands. Frá miðnætti s.l. er því
öll veiði erlendra skipa innan 200
milna markanna óheimil sam-
kvæmt íslenzkum lögum nema til
komi sérstök heimild veitt af ís-
lenzkum stjórnvöldum. Núgild-
andi samningar um veiðiheimild-
ir renna út hinn 13. nóv. n.k.
Hafsvæði hinnar íslenzku fisk-
veiðilögsögu nærgftir útfærsluna
til 758 þúsund ferkilómetra. 50
mílna lögsagan náði til 216
þúsund ferkilómetra og 12 milna
lögsagan til 75 þúsund ferkíló-
metra. Hin nýja 200 mflna lögsaga
er því þrisvar og hálfum sinnum
stærri en 50 mílna lögsagan og tiu
sinnum stærri en 12 mflna lög-
sagan. Ef miðað er við sjálft is-
land er hin nýja fiskveiðilögsaga
rúmlega sjö sinnum stærri en
landið. Sé miðað við láð og lög
hefur íslenzkt yfirráðasvæði rúm-
lega tvöfaldazt við útfærsluna i
200 milur.
A meðfylgjandi korti má sjá hvar erlendir togarar héldu sig á
Islandsmiðum f gær. Bretar voru dreifðir frá Hvalbak norður fyrir að
Húnaflóa, en sýnt er hvar þeir voru flestir. Þá sýnir kortið friðunar-
svæði f hinni nýju fiskveiðilögsögu.
F/t'
Fiskveiéimork samkv. reglugerá
8°
Lítið ekin vel með farin Jaguar bifreið til sölu.
Uppl. í síma 82345 milli kl. 5 — 7.
S___________________________________________________________^
RJP 8196
R O Y A L
SKYNDIBÚÐINGARNIR
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragðtegundir
Hinn
margumtalaði
og vinsæli
Útsölumarkaöur
vekur
athygli á
m m m
Þaö koma ávallt nýjar
vörur í hverri viku á
markaðinn
Ótrúlegt
vöruúrval
á frábærlega
verði
Látið ekki
happ
úr hendi
sleppa
ATHUGIÐ!
Markaðurinn
stendur aðeins
stuttan tíma