Morgunblaðið - 15.10.1975, Qupperneq 15
14 200 mílur MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÖBER 1975
Olatur inors, tv. torsætisráð- Hans G. Andersen, sendiherra
herra
Jóhann Þ. Jósefsson, fv. þingm.
og ráðherra.
Stefán Jóhann Stefánsson, fv. ráð- Jóhann Hafstein, fv. ráðherra
herra.
Sagan, þörfin og rétturinn:
Útfærslur íslenzkrar
fiskveiðilandhelgi
LANDHELGI ÍSLANDS
FRAM YFIR 1900
Frá upphafi þjóðveldis á Islandi og fram á 17. öld
mun ekki hafa verið um fiskveiðilandhelgi að ræða við
Island í þeim skilningi sem lagður er í það orð nú á
tímum. Islendingar bjuggu þá aleinir að fiskimiðum
við landið allt þjóðveldistfmabilið eða fram á þann
tima að landið var komið undir erlend yfirráð.
I doktorsritgerð Gunnlaugs Þórðarsonar, sem hann
varði við Sorbonneháskóla í París í maí 1952, er
íslenzk landhelgi á tímabilinu 1631 til 1662 talin hafa
verið sex mílur og á tímabilinu frá 1662 til 1859 fjórar
mflur eða 16 sjómílur.
Frá 1859 fram um aldamótin 1900 framfylgdu
dönsk yfirvöld landhelgisvörzlu ekki nema að einni
mílu, þrátt fyrir áskoranir Alþingis um víðfeðmara
vörzlusvæði. Þessi slaka gæzla skerti þó á engan hátt
lagalegan né sögulegan rétt okkar til stærri landhelgi. -
1901 gerðu svo dönsk stjórnvöld sérstakan samning
við Breta þess efnis, að ekki skyldi gilda gagnvart
þeim stærri landhelgi við ísland en 3 sjómflur.
UNDIRBtlNINGUR AÐGERÐA
Arið 1946 var að tilhlutan Ólafs Thors, þáverandi
forsætis- og utanrfkisráðherra, ráðinn þjóðréttarráðu-
nautur f þjónustu ríkisstjórnarinnar, Hans G. Ander-
sen, sem fyrst og fremst skyldi vinna að undirbúningi
aðgerða af íslands hálfu til útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar. Hefur hann allar götur síðan verið helztur
ráðunautur íslenzkra stjórnvalda í þessum þýðingar-
mikla málaflokki.
Jóhann Þ. Jósefsson, sjávarútvegsráðherra i ríkis-
stjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar, hafði forgöngu
um, að fyrsta skrefið til útfærslu fiskveiðilandhelg-
innar var stigið með setningu laga frá 5. apríl 1948 um
vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins (land-
grunnslögin), sem allar síðari breytingar á fiskveiði-
landhelgi okkar eru byggðar á. Löngu áður hafði þessi
sami stjórnmálamaður beitt sér fyrir því, meðan Danir
önnuðust enn vörzlu landhelginnar, að Vestmanna-
eyingar keyptu björgunar- og gæzluskipið Þór, sem
var fyrsta strandgæzluskip Islendinga og upphafið að
landhelgisgæzluflota okkar.
Siðari hluta árs 1948 flytja þrfr þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, þeir Jóhann Hafstein, Sigurður
Bjarnason og Gunnar Thoroddsen, þingsályktunartil-
lögu um landhelgisgæzluna og stækkun landhelg-
innar.
Þingmennirnir Hermann Jónasson og Skúli
Guðmundsson fluttu fyrstir formlega tillögu á Alþingi
um uppsögn samningsins við Breta frá 1901, en það
kom í hlut Bjarna Benediktssonar, þá utanrfkisráð-
herra, síðla árs 1949, að segja samningum upp. Féll
hann úr gildi 3. október 1951.
Skömmu eftir að landgrunnslögin voru sett, 1948,
hófust málaferli Breta og Norðmanna fyrir Haagdóm-
stólnum. Var í upphafi ljóst og við það miðað, að mjög
myndi íslendingum hagstætt að hafa hliðsjón af úrslit-
um dómstólsins við undirbúning eigin aðgerða á þess-
um vettvangi. Var þó ákveðið að hefja fyrstu aðgerð-
ina á grundvelli landgrunnslaganna. Ólafur Thors,
þáverandi sjávarútvegsráðherra, gaf út reglugerð um
verndun fiskimiða fyrir Norðurlandi 22. apríl 1950,
þar sem afmarkað var svæði eftir skandinavísku regl-
unni, þ.e. að dregin var grunnlína um yztu skerja og
útnesja og fyrir mynni flóa og fjarða, en markalínan
sjálf sett fjórum mílum utar. Á þessu svæði var
íslendingum jafnt sem útlendingum bannaðar veiðar
með botnvörpu og dragnót og erlendum aðilum jafn-
framt allar aðrar veiðar (þ.á m. síldveiðar).
FJÖGURRA SJÓMlLNA
FISKVEIÐILANDHELGI 1952
Sem fyrr segir þótti rétt, er samningurinn við Breta
féll úr gildi 3. október 1951, að fresta frekari aðgerð-
um samkvæmt landgrunnslögunum þar til sýnt væri,
hvern veg mál horfðu við eftir Haagdóminn í deilu
Breta og Norðmanna. I janúar 1952 fóru síðan fram
viðræður milli Breta og Islendinga. Af okkar hálfu
tóku þátt í þeim: Ólafur Thors, Agnar Kl. Jónsson og
Hans G. Andersen. Þar lagði Ólafur Thors fram eftir-
farandi yfirlýsingu.
0 „1. Samkvæmt beiðni brezku ríkisstjórnarinnar
frestaði islenzka ríkisstjórnin frekari aðgerðum í Sam-
bandi við verndun fiskimiða, þar til vitað væri um
úrslit Haagdómstólsins.
0 2. Lögfræðilegir ráðunautar ríkisstjórnarinnar,
bæði innlendir og erlendir, telja nú að íslenzku ríkis-
stjórninni sé heimilt að taka upp a.m.k. sams konar
reglur og Norðmenn. Þetta fyrirkomulag höfðu Is-
lendingar einnig áður en samningurinn frá 1901 var
gerður, bæði að því er varðar grunnlínur og fjögurra
mílna fjarlægð frá þeim.
0 3. Islendingar eru nú að undirbúa ráðstafanir
sínar á þessum grundvelli."
Ríkisstjórnin gaf síðan út bráðabirgðalög 19. marz
1952, sem staðfest voru á Alþingi að hausti sama árs,
er fólu í sér fjögurra mílna landhelgi miðað við
grunnlinur dregnar frá yztu skerjum og annesjum.
Bannaðar voru botnvörpu- og dragnótaveiðar innan
markanna, bæði innlendum og erlendum veiðiskipum,
og útlendum jafnframt allar aðrar veiðar.
1 lögum þessum var og heimild til atvinnumála-
ráðuneytisins þess efnis, að það gat takmarkað fjölda
veiðiskipa sem og hámarksveiði hvers einstaks skips,
ef það teldi að um ofveiði væri að ræða.
LÖNDUNARBANN
A ISLENZKAN FISK I BRETLANDI
Haustið 1952 knúðu brezkir togaraeigendur fram
löndunarbann á Islenzkan fisk í Bretlandi, sem stóð
allar götur fram í nóvembermánuð 1956.
Arið 1948 var sett á stofn í París Efnahagssamvinnu-
stofnun Evrópu (OEEC), sem greiða átti fyrir efna-
hagslegri samvinnu aðildarríkja. Islenzka ríkisstjórn-
in tók þessa brezku refsiaðgerð upp innan vébanda
þessarar stofnunar. Ólafur Thors flutti málið þar fyrir
hennar hönd, en Pétur Benediktsson, sem var fasta-
fulltrúi Islands í ráði stofnunarinnar, fylgdi svo
málinu eftir. Málinu lyktaði síðan, eftir fjögurra ára
löndunarbann, árið 1956 með samkomulagi brezkra og
ísíenzkra togaraeigenda og gagnkvæmum yfirlýsing-
um stjórna beggja ríkjanna.
Samningur þessi var umdeildur, einkum af hálfu
kommúnista, en hann fjallaði m.a. um frestun frekari
aðgerða af hálfu Islendinga unz þá yfirstandandi
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna lyki, búlkun
veiðarfæra innan landhelgismarka og rétt skipa til að
leita vars í neyðartilfellum.
KOMMÚNISTAR
1 ORÐI OG A BORÐI
Um þessa gagnrýni sagði Ólafur Thors m.a.:
„I þessum efnum hefi ég hvorki beint eða óbeint
leynt eða ljóst, aðhafzt neitt annað en það, sem allir
ráðherrar f stjórn Steingríms Steinþórssonar og stjórn
minni voru sammála um, og engar tilslakanir viljað
gera, sem núverandi stjórn (fyrri vinstri stjórnin),
sem kommúnistar sjálfir eru í, hefur ekki lagt nafn
sitt við. — Hvernig geta ráðherrar kommúnista setið
áfram í ríkisstjórn, sem gefið hefur þær yfirlýsingar,
sem gefnar voru á fundi Efnahagssamvinnustofnunar-
innar í gær eða leyft þann löndunarsamning, sem
íslenzkir togaraeigendur hafa nú gert við brezka
Pétur Benediktsson, fv. sendi- Steingrfmur Steinþórsson, fv.
herra ráðherra
Agnar Kl. Jónsson, sendiherra