Morgunblaðið - 15.10.1975, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1975 200 mílur 17
-164
FÆREYJAR
62
-60
Kortið sýnir 3ja
mílna fiskveiði-
mörkin, sem
breytt var á ár-
unum 1950 til
1952 og nýju 200
mflna markalfn-
una, sem verður
að veruieika f
dag. Reiknað
hefur verið út,
að 3ja sjómflna
svæðið hafi ver-
ið 25 þúsund
ferkílómetrar,
en hið nýja er
750 þúsund fer-
kflómetrar og
hefur þvf fisk-
veiðilögsagan
30-faldast á sfð-
ustu 25 árum.
Barátta fyrir
miklu
velferðarmáli
„ÞEGAR litið er á fiskveiðimörkin eins og
þau voru við setningu landsgrunnslag-
anna frá 1948 og þau mörk, sem taka gildi
í dag, verður augljós sá stórkostlegi árang-
ur, söm náðst hefur á síðustu áratugum."
Þetta sagði Hans G. Andersen, sendiherra
og formaður íslenzku sendinefndarinnar á
Hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna,
er Morgunblaðið ræddi við hann um gild-
istöku reglugerðarinnar um fiskveiðiland-
helgi Islands, sem tekur gildi í dag.
Hans G. Andersen er sá maður, sem
gjörþekkir sögulega þróun „landhelgis-
málsins“, þvl að allt frá upphafi baráttu
íslendinga fyrir víðari fiskveiðimörkum,
hefur hann verið sá embættismaður, sem
staðið hefur í orrahríðinni á alþjóðavett-
vangi og barizt þar fyrir réttindum Islend-
inga. Hans G. Andersen sagði:
„Við setningu landgrunnslaganna voru
mörkin 3 mílur frá lágfjöru á ströndum,
þó þannig, að i flóum og fjörðum var
þriggja mílna fjarlægðin miðuð við línú,
þar sem 10 mílur voru yfir fjörð eða flóa
næst mynni. 1 dag er miðað við 200 mílna
mörk frá beinum grunnlínum, sem dregn-
ar eru þvert yfir flóa og firði. Hin nýju
mörk, sem ganga I gildi í dag, eru byggð á
þeim árangri, sem náðst hefur á alþjóða-
vettvangi og þá fyrst og fremst á Haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.“
„Hver eru helztu atriðin 1 þessari þró-
un?“
„Aðalatriðin i þróuninni eru tvö. Ann-
ars vegar að stefnan var mörkuð með
setningu landgrunnslaganna frá 1948.
Með þeim var það mark sett, að öll fiski-
mið landgrunnsins ættu að vera innan
hins islenzka yfirráðasvæðis. Hitt var, að
unnið var markvisst að þvi að hafa áhrif á
þróun þjóðarréttar, þannig að hægt væri
að framkvæma landgrunnslögin á grund-
velli þeirrar þróunar. Þvi var hrundið af
stað með því, að alþjóðalaganefndinni var
falið samkvæmt tillögu íslands 1949 að
taka reglur þjóðarréttarins á þessu sviði
til gagngerrar heildarrannsóknar. Nefnd-
in vann að verkinu fram til 1956 og skilaði
þá viðamiklu uppkasti að hafréttarsátt-
mála, en lagði til að kölluð yrði saman
alþjóðaráðstefna til að semja um viðáttu
landhelgi og fiskveiðimarka. Þetta tvennt
hefur haldizt í hendur — þróun þjóðar-
réttar og framkvæmd landgrunnslaganna.
Og nú stöndum við andspænis markinu."
„Þetta hefur verið þungur róður allan
tfmann?"
„Þessi barátta hefur verið löng og hörð.
Jafnvel fyrir fáum árum á fyrstu og ann-
arri hafréttarráðstefnunni 1958 og 1960,
var það alveg ljóst, að útilokað var að fá
samþykki fyrir víðari fiskveiðimörkum en
12 mflum. Jafnframt var ljóst, að eina
Hans G. Andersen flytur ræðu á
Hafréttarráðstefnunni f Caracas
sumarið 1974.
Sendinefnd íslands á Hafréttarráðstefnunni í Genf f vor. Fremst situr
Hans. G. Andersen formaður nefndarinnar, í annarri röð eru Þórar-
inn Þórarinsson og Lúðvík Jósepsson og aftast Benedikt Gröndal og
Jón Arnalds.
Spjallað við
Hans G. Andersen
um fiskveiði
lögsöguútfærslur
fyrr og nú
leiðin til breytinga væri fólgin í að bíða
þess, að fleiri ríki, sem hlynnt yrðu út-
færslu, bættust í hóp samfélags þjóðanna,
þannig að atkvæðamagn gjörbreyttist. TIu
árum seinna var þessi breyting komin og
ákvað þá Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna samkvæmt tillögu Islands og ann-
arra ríkja að kveðja sarnan þriðju Hafrétt-
arráðstefnuna og að sérstök undirbún-
ingsnefnd skyldi vinna að málinu. Sú ráð-
stefna kom saman í Caracas sumarið 1974
og var haldið áfram I Genf síðastliðið vor.
Og nú er aðstaðan öll önnur en áður var,
enda þótt málinu sé enn eigi lokið.“
„Hvað liggur svo eftir allar þessar ráð-
stefnur?"
„Það sem fyrir liggur nú á Hafréttarráð-
stefnunni er frumvarp að heildartexta,
sem unnið verður eftir við framhald máls-
ins. I þessu uppkasti er gert ráð fyrir, að
strandriki sé heimilt að koma á efnahags-
lögsögu allt að 200 mílum frá ströndum,
þar sem það hafi fulíveldisrétt yfir auð-
lindum. Að þvi er fiskistofna varðar, er þá
miðað við að strandrikið ákveði sjálft
leyfilegan hámarksafla á svæðinu og getu
sína til að hagnýta hann, en leyfi erlend-
um mönnum að hagnýta það, sem umfram
er samkvæmt sérstökum samningum og
skilyrðum.“
„Er reglugerðin, sem tekur gildi f dag, í
samræmi við þennan texta, sem skapazt
hefur á Hafréttarráðstefnunni?“
„Reglugerðin, sem tekur gildi í dag,
hefur stoð I þessum texta, enda þótt þar sé
ekki um samþykktan texta að ræða, því að
þessi texti er sönnun fyrir hinum mikla
stuðningi, sem þessar meginreglur hafa á
ráðstefnunni. Hins vegar telja þær þjóðir,
sem hagsmuna hafa að gæta á íslands-
miðum, að þær séu ekki bundnar af upp-
kasti því, sem fyrir Hafréttarráðstefnunni
liggur, fyrr en endanlegt samk,omulag
hafi náðst og er það þá skilyrði af hálfu
Framhald á bls. 33