Morgunblaðið - 15.10.1975, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÖBER 1975
200 mílur
31
Frá viðræðum Ólafs Jóhannessonar og Edwards Heaths.
skipavernd. 23. janúar var svo dráttarbáturinn States-
man sendur á Islandsmið til fulltingis brezkum land-
helgisbrjótum. Síðan má segja að þróunin hafi stöðugt
stefnt til hins verra unz brezkir togaraskipstjórar tóku
þá ákvörðun 17. maí að sigla af brott af Islandsmiðum
þar sem þeir fengju ekki herskipavernd.
HERSKIPIN
19. mai taldi svo brezka stjórnin að hún gæti ekki
lengur setið aðgerðalaus, þar sem engir brezkir togar-
ar höfðu veitt innan fslenzku 50 mílnanna I tæpa tvo
sólarhringa og kl. 14.30 að ísl. tíma tilkynnti Joseph
Godber, sem þá var orðinn sjávarútvegsráðherra, tog-
araskipstjórum að þeir myndu fá flotavernd. Morgun-
blaðið skýrir frá því 20. mai, að f simskeyti frá brezka
eftirlitsskipinu Othello til Englands hefði sagt: „Við
lékum brezka ættjarðarsönginn „Land of hope and
glory“ svo að öll nærliggjandi skip mættu heyra —
eftir að við fengum fréttina um að flotinn væri á
leiðinni."
Olafur Jóhannesson forsætisráðherra sagði í viðtali
við Mbl. sem birtist þriðjudaginn 22. maí, að hann liti
á aðgerðir Breta sem ofbeldi og sagði íslendinga ekki
geta setzt að samningaborði fyrr en flotinn hefði verið
kvaddur á brott á ný. Lýsti forsætisráðherra þvi
jafnframt yfir að landhelgin yrði varin eftir aðstæðum
og með öllum tiltækum ráðum. I Mbl. er einnig
frásögn af flugferð blaðamanns þess yfir miðin á
mánudegi og þá voru 15 brezkir togarar að veiðum
innan 50 mílnanna og gættu þeirra hvorki meira né
minna en 3 freigátur og 4 aðstoðarskip auk þess sem
brezkar Nimrodþotur sveimuðu yfir miðunum. A
mánudeginum greip fslenzka ríkisstjórnin einnig til
gagnráðstafana, er ákveðið var að brezkum herflug-
vélum yrði ekki leyft að lenda á íslandi, þar sem þeim
hefði m.a. verið ætlað að stunda eftirlitsflug hér við
land. Þá var sendiherra Islands í Lundúnum einnig
kallaður heim til viðræðna og skýrslugjafar.
Forsætisráðherra sagði þá á fundi með fréttamönn-
um, er hann var að þvi spurður hvort hann liti á
ástandið sem strfðsástand: „Já, að nokkru leyti, en
erfitt er að hugsa sér slíkt ástand milli stórveldis eins
og Breta og óvopnaðrar smáþjóðar eins og íslend-
inga.“ Hann sagðist vona að ekki þyrfti að koma til að
slfta þyrfti stjórnmálasambandi við Breta. Á þriðju-
deginum hafði norska rikisstjórnin formlegt samband
við ríkisstjórnir Isiands og Bretlands og bauð fram
hjálp Noregs til að miðla málum, en fslenzka ríkis-
stjórnin hafnaði á föstudag tilboðinu án samráðs við
utanríkismálanefnd og stjórnarandstöðu. Var þessi
afgreiðsla gagnrýnd af Geir Hallgrímssyni varafor-
manni Sjálfstæðisflokksins í samtali við Mbl.
Fimmtudaginn 24. maí boðaði Alþýðusamband Is-
lands til útifundar á Lækjartorgi vegna flotainnrásar
Breta og var geysileg þátttaka í fundinum, 20—30
þúsund manns að þvi er lögreglan taldi.
Fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna fluttu þarna
ræðu og ríkti mikill samhugur á fundinum. Samþykkt
var ályktun, þar sem flotainnrásinni var harðlega
mótmælt og skorað á ríkisstjórnina að hún hlutaðist
þegar í stað til um að tillaga yrði lögð fyrir allsherjar-
þing S.Þ. og öryggisráð um fordæmingu á ofbeldisár-
ásinni og þess krafizt að fastaráð NATO fordæmdi
aðgerðir Breta og fyrirskipaði þeim að afturkalla
flotann. Bretar hefðu lokað öllum samningaleiðum og
íslendingar myndu aldrei semja undir v.aldbeitingu.
EVERTON
Alvarlegustu átök þroskastríðsins áttu sér stað laug-
ardaginn 26. maí, er varðskipið Ægir skaut föstum
skotum að brezka togaranum Everton kl. 12.30, þar
sem hann var að taka inn trollið á Sporðagrunni um 20
mílur fyrir innan fiskveiðimörkin. Var skipstjórg tog-
arans fyrirskipað að stöðva skip sitt, en hann sinnti
því engu og hélt á fullri ferð austur á bóginn. Til að
itreka fyrirmælin ákvað skipherra varðskipsins, Guð-
mundur Kjærnested, að skjóta lausum skotum á togar-
ann og síðan kúluskotum fyrir framan hann. Þar sem
togarinn sinnti ekki þessum stöðvunarmerkjum áleit
skipherra varðskipsins nauðsynlegt að skjóta á skipið
sjálft og var þá skotið 4 skotum fyrir framan togarann
og einu skoti I netalest hans. Kom þá leki að togaran-
um. Ægir skaut svo nokkru síðar enn einu skoti i
fiskilest togarans. George Mussell skipstjóri Everton
lét sér þó ekki segjast og hélt áfram að sigla á fullri
ferð til austurs. Nokkur leki var kominn að skipinu og
það farið að síga að aftan. Er um þrir tímar voru liðnir
frá því að Ægir kom að togaranum nálguðust aðrir
brezkir togarar skipin og herskipið Júpiter var á fullri
ferð á staðinn. Hætti þá skipherra varðskipsins eftir-
för en kallaði Everton upp og sagði: „Skipstjóri, þú ert
hugrakkur maður, ég vona að þú fáir aðstoð, gangi
ykkur vel.“
Framhald á næstu síðu
mmmmmtr.itxxg.
Frá fjöldafundinum á Lækjartorgi 24. maf.