Morgunblaðið - 15.10.1975, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTOBER 1975
41
fclk f
fréttum
+ Anthony Quinn hefur nú yf-
irgefið eiginkonu sfna
Yolöndu, en þau hafa verið gift
I 29 ár og eiga saman tvö börn,
Francesco 12 ára og Danielo 10
ára. Leikarinn er sagður hafa
fundið sér aðra konu, leikkon-
una Claire Bloom, sem mun
vera 43ja ára. Hún er þekktust
fyrir hlutverk sitt f mynd
Chaplins „Limelight“. Skilnað-
urinn kom öllum á óvart. Al-
mennt var talið að hjónaband
þeirra Anthony og Yolöndu
væri mjög hamingjusamt. En
Atnhony Quinn sagði: — Það er
ekki hægt að búa með sömu
konunni alla ævina. Það er svo
niðurdrepandi.
Anthony Quinn og Yolanda
meðan allt lék f Iyndi.
Claire Bloom.
Eyrarbakki:
Milljónatjón
í eldsvoða
Eyrarbakka 14. okt.
LAUST fyrir kl. 3 f nótt varð vart
við eld f veiðarfærageymslu Hrað-
frystistöðvarinnar á Eyrarbakka.
Var þá þegar mikill eldur f hús-
ínu og þegar slökkviliðið kom á
vettvang nokkrum mfnútum
seinna var þak hússins fallið að
hluta og húsið alelda. Var engu
hægt að bjarga úr þvf og húsið
brann til kaldra kola með öllu
sem f þvf var. Hús þetta var
steinhús, hæð og ris með timbur-
lofti og áfast við það var 300 ferm.
bogaskemma. 1 húsinu var geymt
mikið af veiðarfærum, m.a. öll
humartroll Hraðfrystistöðvar-
innar ásamt miklu af öðrum
veiðarfærum, bæði frá Hrað-
frystistöðinni og viðskiptabátum
hennar. Einnig var f húsinu lftil
trilla sem brann einnig.
Tjón f þessum eldsvoða skiptir
Skoðanakönnun BSRB:
85% vilja
verkfallsrétt
A TlMABILINU frá 3,—13.
október hélt BSRB alls 53 fundi
víðs vegar um land til þess m.a. að
gera skoðanakönnun meðal félaga
BSRB um verkfallsrétt. 3300
manns sóttu þessa fundi en í skoð-
anakönnuninni voru lagðar fram
tvær spurningar. 1. Vilt þú að
aukin áherzla verði lögð á bar-
áttuna fyrir verkfallsrétti öpin-
berra starfSmanna? 2. A að grlpa
til aðgerða 1. nóv. n.k., ef samn-
ingar takast ekki, f stað þess að
leggja málið fyrir Kjaradóm?
Fyrri spurningunni svöruðu
3248 og sögðu 2776 já, eða 85,5%,
en nei sögðu 472, eða 14,5%.
Seinni spurningunni svöruðu
3112 og Sögðu 2614 já, eða 84%,
en nei sögðu 498, eða 16%. 95
seðlar voru auðir og ógildir.
mörgum milljónum króna, en
veiðarfæri voru lágt vátryggð
miðað við það verð sem nú þarf til
þess að koma sér upp öðrum
stofni. Eldsupptök eru ókunn.
— Óskar.
Ekki
stríðshugur
Framhald af bls. 48
orðalags og ráðherrar voru
þeirrar skoðunar að ef þau
væru rétt túlkuð væri um alvar-
lega tilraun að ræða til að stór-
spilla fyrir samningaumleitun-
um. Hver voru viðbrögð manna
hér?
„Menn hér í Grimsby
fögnuðu þessum ummælum að
sjálfsögðu, einkum og raunar
eingöngu vegna þess að al-
menningi I sjávarútvegi finnst
ekkert vera að gerast I land-
helgismálinu. Nú er ekki nema
tæpur mánuður eftir af sam-
komulaginu og menn vilja fara
að sjá hreyfingu. Ég held að
tilgangur Croslands hafi fyrst
og fremst verið að ýta við Is-
lendingum en ekki að hóta
. þeim, þótt því verði ekki neitað
að út úr ummælunum hafi mátt
lesa harðlínuafstöðu."
— Er þetta mál mjög ofarlega
á baugi hjá mönnum hér?
„Já, ég held að það verði að
segjast, að I mínum daglegu
samskiptum við menn í fisk-
iðnaðinum eru menn alltaf að
spyrja mig hvað sé að gerast.“
— Eru menn herskáir?
„Nei, það vilja allir fara
samningaleiðina og segja að
það verði að forðast annað
þorskastríð. Menn hafa einnig
mikinn áhuga á að fá fisk af
fslenzkum skipum, bæði freð-
fisk og fsfisk. Ég hef undan-
farið fengið 4 fyrirspurnir frá
mönnum sem vilja kaupa freð-
fisk frá íslandi og það er í
fyrsta skipti síðan 1972.
Markaðshorfur eru einnig
geysilega góðar. íbúum Hull og
Grimsby er mjög hlýtt til Is-
lendinga og vilja eiga góð sam-
skipti við þá og þorskastríðin
hafa aðeins verið leiðindatíma-
bil sem allir harma. Það er hins
vegar eðlilegt að þetta fólk
hugsi um atvinnu sfna, því að
það er ekki glæsilegt ástand f
atvinnumálum í Bretlandi f
dag. Margir hafa t.d. spurt mig
hvort ekki sé hægt að fá pláss á
fslenzkum togurum og það eru
menn sem hafa misst atvinnu
sfna undanfarið. Þeir skilja af-
stöðu Islendinga til friðunar-
mála en eiga erfitt með að sætta
sig við að vera útilokaðir frá
miðum sem þeir hafa stundað í
500 ár. Flest skipin eru líka
þannig úr garði gerð hvað
stærð snertir að þau geta ekki
veitt utan 50 mílnanna þótt vilji
væri fyrir hendi. Tugum skipa
hefur verið lagt á undanförn-
um árum og ef 50 mflurnar
verða lokaðar þýðir það, að
langstærstum hluta flotans yrði
að leggja."
— Fylgi
Framhald af bls. 48
„Ég vil ekki segja að einhliða
útfærsla landa eins og íslands og
Mexico muni torvelda að sam-
komulag náist,“ sagði
Amerasinghe að lokum. „Þetta er
svo afskaplega viðkvæmt mál.“
— Veiðiheimild
Framhald af bls. 48
viðbúin að stugga við væntan-
legum landhelgisbrjótum,
Vestur-Þjóðverjum, sem eiga
nú að fara út fyrir 200 mfl-
urnar, og Bretum með um-
samin svæði, þá er sú kynlega
staða fyrir hendi um sinn að
brezkir landhelgisbrjótar á
50—200 mflna bilinu geta flú-
ið inn fyrir 50 mflurnar á um-
samin svæði.
Þegar Morgunblaðið spurði
Ólaf Jóhannesson dómsmála-
ráðherra um þetta atriði f gær,
svaraði hann: „Réttur Breta
nær aðeins til þeirra ákveðnu
svæða, sem um er samið. Hann
er bundinn við ákveðin svæði,
nánar tiltekin á 12—50 mflna
bilinu.“
i
F / A T
r
125P STATION
* lækkun'
á
verksmiðjuverði J
MHCtUMCMHCCfCfl
Áður Nú 4
2 964.000— 884.000—
Vegna nýrra hagstæðra samninga
við Fiat verksmiðjurnar
getum við nú boðið hinn glæsilega
Fiat 125P á þessu hagstæða verði.
Hafið samband við okkur sem fyrst
og tryggið ykkur góðan bíl
á hagstæðu verði.
Sýningarbíll á staðnum
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.,
SÍÐUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888.
Upplýsingar í dag, miðvikudag — í síma 12929.
Garðahreppur
Byggung, Garðahreppi
Aðalfundur Byggung i Garðahreppi verður haldinn i félagsheimilinu við
Lyngás, miðvikudaginn 22. okt. kl. 8.30 stundvíslega.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa, mun Páll Friðriksson, framkv.stj.
segja frá nýjungum i byggingariðnaði og rætt verður um stofnun nýrra
byggingarhópa.
Fjölmennið og mætið stundvíslega.
s,
IMDILcr;-q rf EF ÞAÐ ER FRÉTT- 8) NÆMTÞÁERÞAÐÍ % MORGUNBLAÐINU