Morgunblaðið - 20.06.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNl 1976
Siglfirðingar bora
eftir heitu vatni
BORANIR eftir heitu vatni eru
nú að hefjast að nýju f Siglufirði
og var jarðborinn Narfi, sem ver-
ið hefur við boranir á Blönduðsi,
væntanlegur til Siglufjarðar (
gær. I fyrra fengust 20 til 30
sekúndulftrar af heitu vatni fyrir
Siglufjörð og standa vonir til að
nú fáist meira vatn.
Samkvæmt upplýsingum
Matthíasar Jóhannssonar, frétta-
ritara Mbl. í Siglufirði, var í fyrra
borað niður á 1.100 metra, en þá
brotnaði króna borsins. Boranir
fara fram í Skútudal, en þar er
álitið að nægilegt vatn sé fyrir
hitaveitu Siglufjarðar.
9 I KVÖLD kl. 21 lýkur sýningunni tslenzk nytjalist. Mjög göð
aðsókn hefur verið að sýningunni og einnig hafa tfzkusýningar á
fatnaði finnska hönnuðarins Vuokko vakið mikla athygli. Sfðustu
sýningar verða f dag kl. 16 og 21. Myndin var tekin þegar iðnaðar-
ráðherra, Gunnar Thoroddsen, og kona hans, Vala Thoroddsen,
skoðuðu sýninguna.
Reykjanesbraut:
Tvær akreinar
sunnan Kópavogs
VEGAGERÐ ríkisins er nú
að láta smíða brú yfir
Kópavogslæk og er brúar-
smíðin liður f breikkun
Reykjanesbrautarinnar,
en fyrirhugað er að bæta
43 hvalir
hafa veiðzt
Það sem af er hvalvertið hafa
veiðzt 43 hvalir, þar af 13 búr-
hveli og 30 langreyðar. Kjöt af
langreyðinni er fryst í frystihúsi
Hvals hf. í Hafnarfirði. Ur búr-
hvalnum er unnið búrhvalslýsi og
beinamjöl. Á sama tíma í fyrra
var veiðin um það bil að hefjast
vegna verkfalls sem var í júní-
mánuði i fyrra.
við akrein um Arnarnesið.
Er gert ráð fyrir að brúar-
smfðinni verði lokið upp
úr mánaðamótunum og
verður þá hafizt handa um
vegargerðina um Arnar-
nes. Hve langt verður unnt
að fara með veginn er svo
háð skipulagsmálum f
Garðabæ.
Helztu vegaframkvæmdir í
nágrenni Reykjavíkur er vega-
gerð í Gerðum, austur í Flóa og
einnig við Kiðafell í Kjós. Á
tveimur fyrstnefndu stöðunum
verður sett varanlegt slitlag á
vegi, en við Kiðafell verður brú,
sem smíðuð var í fyrra, tengd við
veginn. Er það allmikil vegarbót,
þar sem gamla brúin á ánni var
komin allnokkuð til ára sinna.
Ungur listamaður sýnir
Ungur listamaður, Ómar Stefánsson, heldur um þessar
mundir málverkasýningu f Mocca-kaffi. Á sýningunni
eru yfir 20 myndir, allt olíumálverk. Þrjár myndir hafa
þegar selzt. — Þetta er fyrsta einkasýning Ómars, enda
er hann ungur að árum, aðeins 15 ára. — Myndin er af
Ómari við eitt af málverkum hans.
Ljósmynd Friðþjófur
BRUÐKAUPIÐ — Mynd þessi var tekin á flugvellinum við Stokkhólm á föstudag þegar forseti Islands
herra Kristján Eldjárn, kom þangað til að sitja brúðkaup Svíakonungs og Silviu Sommerlath. Það er
Bertil prins, sem býður forsetann velkominn, en á bak við þá sést Guðmundur 1. Guðmundsson
sendiherra. Vegna bilana á símastreng er myndin því miður ekki skýr.
Norrœnu músíkdagarnir
KAMMERTÓNLEIKAR
Kammertónleikar verða í
Norræna húsinu f kvöld og hefast
þeirkl. 20.
Á þessum- tónleikum verður
flutt verk eftir finnska tónskáldið
Jarmo Sermilá sem nefnist
Perception. Þá syngur Ruth L.
Magnússon í verki eftir sænska
tónskáldið Lars-Erik Rosell sem
heitir Poem in the dark við ljóð
eftir skáldkonuna Nelly Sachs.
Ragnar Björnsson stjórnar. Ilona
Moaros syngur verk eftir finnska
tónskáldið Gottfried Grásbeck,
Att i sit öga. Ragnar Björnsson
stjórnar einnig því verki og í því
leikur Einar G. Sveinbjörnsson
sem nú starfar sem konsert-
meistari í Málmey. Fimm danskir
pfanistar flytja verkið Genklang
eftir danska tónskáldið Karl Age
Framhald á bls. 43
Brúarframkvæmdirnar við Kópavogslæk.
Sjálfstæðísflokkurinn
efnir til 18 héraðsmóta
I SUMAR efnir Sjálfstæðisflokk-
urinn til héraðsmóta vfðsvegar
um landið. Er ákveðið að halda
a.m.k. 18 héraðsmót á tfmabilinu
2. júlf til 15. ágúst.
Á héraðsmótunum f sumar
flytja forustumenn flokksins,
ráðherrar hans og þingmenn,
ávörp.
Skemmtiatriði verða mjög fjöl-
breytt. Hljómsveitin Næturgalar
og Ágúst Atlason munu leika og
annast ýmis skemmtiatriði.
Óperusöngvararnir Kristinn
Hallsson og Magnús Jónsson
munu koma fram og syngja vin-
sæl einsöngslög og dúetta. Er ekki
að efa, að marga mun fýsa að
hlýða á þá hressilegu og ágætu
listamenn. Einnig mun Jörundur
fara með margháttuð gamanmál
og skemmtiþætti ásamt hljóm-
sveitinni. Að hverju héraðsmóti
loknu verður haldinn dansleikur
þar sem Næturgalar leika fyrir
dansi. Hljómsveitina skipa Skúli
K. Gislason, Einar Hólm, Birgir
Karlsson og Ágúst Atlason.
Það nýmæli var tekið upp á
héraðsmótum Sjálfstæðisflokks-
ins s.l. sumar, að efna til happ-
drættis og naut það mikilla vin-
sælda. Er hér um að ræða ókeypis
happdrætti. I sumar verður happ-
drættismiði afhentur með hverj-
um aðgöngumiða. Vinningar
verða ferðir til Kanaríeyja með
Flugleiðum, auk þriggja auka-
vinninga á hverjum dansleik.
Héraðsmótin verða á föstudög-
um, laugardögum og sunnudögum
og hefjast kl. 21. Mótin verða á
þeim stöðum er hér segir:
Dalvlk 2. júll
Húsavfk 3. júlf
Þórshöfn 4. jú 1 f
Siglufirði 9. júlf
Sauðárkróki 10. júlf
Asbyrgi I Mlðfirði 11. júlf
Sævangi, Strand. 16. júlf
Stykkishólmi 17. júlf
BúÓardal 18. júlf
Vík f Mýrdal 23. júlf
Hellu 24. júlf
Flúðum, Arn. 25. júlf
Höfn, Hornafirði, 6. ágúst
Egilsstöóum, 7. ágúst
Eskiflrði 8. ágúst
Patreksfirði, 13. ágúst
Bolungarvfk 14. ágúst
Flateyri, 15. ágúst
Mótin verða nánar auglýst síðar
hverju sinni.