Morgunblaðið - 20.06.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNI 1976
3
Sumarferð Varðar 1976:
„Leiðin
• HIN árlega sumarferð Lands-
málafélagsins Varðar verður að
þessu sinni farin um Þingvelli,
Þjórsárdal, Sigöldu og Landsveit
sunnudaginn 27. júní n.k. Varðar-
ferðirnar hafa notið mikilla vin-
sælda á undanförnum árum og
eru nú orðnar fastur liður hjá
fjölda fólks á hverju sumri og
hafa þátttakendur skipt hundruð-
um. Ferðirnar hafa enda verið vel
skipulagðar og jafnan hefur verið
lögð áherzla á að fá beztu leið-
sögumenn sem völ er á hverju
sinni. Aðalleiðsögumaður í
ferðinni á sunnudaginn verður
hinn kunni ferðagarpur Einar
Guðjohnsen. Verður komið vfða
við og staðir skoðaðir sem þekktir
eru bæði fyrir náttúrufegurð og
sögufrægð.
I stuttu samtali við Mbl. sagði
Einar Guðjohnsen að leiðin sem
farin yrði á sunnudaginn væri
sérstaklega skemmtileg og byði
upp á stórbrotna náttúrufegurð
auk þess sem tækifæri gæfist til
að skoða ýmsa sögufræga staði.
Verður lagt upp frá Sjálfstæðis-
húsinu kl. 8 að morgni sunnudags
og ekið sem leið liggur til Þing-
valla. Þar verður snæddur árbítur
og tækifæri gefst til að teygja úr
sér og skoða sig um á hinum forn-
fræga þingstað. Síðan verður ekið
um Gjábakkann og til Laugar-
vatns og áfram um Laugardal og
yfir Brúará hjá Efstadal og síðan
niður Reykjaveginn til Skálholts.
Þar gefst væntanlega tækifæri til
að skoða sig um á staðnum t.d.
kirkjuna sem þykir mjög falleg.
Því næst verður farið um Gnúp-
verjahreppinn upp í Þjórsárdal
og ekið hjá Hjálparfossi og að
býður
f tfr einni af hinum glæsilegu og fjölmennu Varðarferðum. t þessari ferð voru þátttakendur rúmlega 1200
upp a "
stórbrotna náttúrufegurð”
Stöng. Þar verður framreiddur
hádegisverður og fólk fær tæki-
færi tilaðgangaumgjánasem að
sögn Einars er ein af perlunum í
Þjósárdal. Að loknum hádegis-
verði og skoðunarferð verður ekið
yfir Þjórsárbrúúa nýju hjá Sand-
felli og áfram inn í Sigöldu. Verða
öll mannvirki þar skoðuð undir
leiðsögn starfsmanna á staðnum.
Að lokinni skoðunarferð um Sig-
öldu verður ekið sem leið liggur
niður hjá Tröllkonuhlaupi og
niður í Landsveit. I Galtalækjar-
skógi verður framreiddur kvöld-
verður og fólki gefst tækifæri tii
að skoða sig um í skóginum sem
rómaður er fyrir fegurð þar sem
Hekla gamla gnæfir yfir og Ytri-
Rangá, sem er með fallegri berg-
vatnsám á landinu, rennur við
skógarjaðarinn. Frá Galtalækjar-
skógi verður ekið niður á Suður-
landsveg hjá Vegamótum og
þaðan skemmstu leið í bæinn um
Selfoss og Hellisheiði.
Óskar Friðriksson, formaður
ferðanefndar, gat þess við Mhl. að
ástæða væri til að benda fólki á að
nú væru síðustu forvöó að skoða
Sigöldu á framkvæmdastigi þar
sem mannvirkin yrðu brátt tekin
í notkun. Þá lagði Óskar áherzlu á
að ferðin væri öllum opin, ekki
sízt félögum úr sjálfstæðisfélög-
unum í nágrenni Reykjavíkur. og
hvatti menn til að fjölmenna þar
sem ferðin byði upp á mikla
yfirsýn á einum degi auk þess
sem hún hefói það fram yfir
samsvarandi ferð á einkabilum,
að menn gætu ferðazt
áhyggjulaust og fyrirhafnarlaust
í glöðum hópi. Sagði Óskar að
lokum, að Varðarferðirnar hefðu
ávallt heppnazt með miklum
ágætum og hefðu þær jafnan
verið fjölmennustu ferðir, sem
farnar hefðu verið héðan úr
borginni á sumrin.
Verði farmiða er mjög í hóf
stillt eins og áður, en fvrir
fullorðna kostar ferðin 2500 kr og
fyrir börn 1500 kr. og eru þar
innifalin hádegisverður, kvöld-
verður og leiðsögn.
— segir aðalfararstjórinn,
Einar Guðjohnsen
Hirin kunni ferðagarpur Einar Guðjohnsen verður aðalleiðsögumaður
f sumarferð Varðar á sunnudaginn.
Ágætur aðbúnaður í nýjum íbúðum
Zodiaco, og góðum hótelum Gloria og Dex
Verð frá kr. 46.600- í 2 vikur
Fáein sæti laus á bezta tíma sumarsins.
2. og 16. júlí, 20. og 27. ágúst,
3. og 10. september.
erðaskrifstofan
Kostakjör á Costa Brava
^TJÆREBORG REJSER
Utsýn er eina íslenzka ferðaskrifstofan,
með reglubundið leiguflug til
Lloret de Mar,
sem flestir telja glaðværasta
og skemmtilegasta baðstað Spánar.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
ERICAN E X
AUSTURSTRÆTI 17 SÍMI 26611
• s