Morgunblaðið - 20.06.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUNÍ 1976
— Gætirðu ekki komið við í Damms fornsölunni í Osló
og tekið viðtal við Claes Nyegaard fyrir mig, sagði annar
ritstjóri Morgunblaðsins við undirritaðan, er hann fvrir
nokkru brá sér til Noregs í sumarfrí. — Þetta er
ábyggilega merkilegur náungi og hann hefur mikinn
áhuga á öllu sem viðkemur íslandi og íslenzkum hókum.
Þar með var það ákveðið, því að þótt blaðamaður hafi
ætlað sér að gera allt annað í Noregi en að ræða við
hókagrúskara, þá tók því ekki að neita þessu, þetta skipti
ekki svo miklu máli, — en ekki verkaði verkefnið
sérlega spennandi. Það fór þó svo, að heimsóknin til
Nyegaards varð einn ánægjulegasti hluti Noregsferðar-
innar, og maðurinn allt annað en venjulegur bókagrúsk-
ari.
Claes Nvegaard er maður um sextugt og hefur f 37 ár
rekið „Damms Antikvariat" í Osló. Verzlanir fyrirtækis-
ins eru þrjár og lögðum við leið okkar einn dag fyrir
nokkru í „Bókahúsið“ í Ekebergsgötu 14. Þar prýða um
50 þúsund bækur alla veggi og flestar eru þær mjög
gamlar, auk korta frá ýmsum tímum, merkilegum hús-
gögnum og spennandi gripum frá miðöldum, sem setja
sinn svip á þann ævintýraheim sem er innan veggja
hússins. Ilúsið, sem er ósköp venjulegt, stendur í einu af
eldri og virðulegri íbúðahverfum Oslóar. Innan veggja
þess eru bækur frá flestum heimshornum og þangað
leggja leið sína á ári hverju hundruð bókamanna. Bæk-
urnar, kortin og gripirnir allir tala sínu máli og sjálfur
hefur Nyegaard frá ýmsu merkilegu að segja, og gefum
honum orðið:
í heimsókn hjá Claes Nyegaard í
Sérhver bók
hefur sína sál
V)
Sjaldgæfar bækur
Nýr bæklingur
.ARCTICA"
er kominn út. í honum er að finna um
750 bækur og landakort yfir Island,
Grænland ofl. Af því má nefna bækur
m.a Skálholtsprentanir Verð N kr 10
(innifalinn flutningskostnaður). Damrhs
Antikvariat, A/S, Tollbodgt, 25, N-Oslo
1 , Norge.
Texti og myndir:
Ágúst I. Jónsson.
— Það er mjög sjaldgæft að
rekast á gamlar íslenzkar bækur á
uppboóum. Flestar þeirra eru í
söfnum og ganga ekki kaupum og
sölum, segir Claes Nyegaard. —
Annað veifið hefur maður þó
heppnina með sér og ég gleymi
því aldrei er ég alveg óvænl
komst yfir 13 íslenzkar bækur,
sannkallaða dýrgripi.
— Þetta var í fyrrahaust og ég
var á ferð um Frakkland. í París
fór ég á bókauppboð, en átti ekki
von á að rekast á neitt sérstakt
sem hugur minn girntist. En viti
menn, þarna voru 13 íslenzkar
bækur boðnar upp og ekki var
betur búið að þeim en svo að þær
höfðu verið látnar liggja nokkurn
tíma fram að uppboðinu í hrörleg-
um pappakassa, og ég var ekki
lengi að festa mér allar bækurnar
13. Því sé ég ekki eftir þó aó þær
hafi kostað talsvert mikið, því að
þarna var um að ræða bækur
prentaðar í Hrappsey, Skálholti
og á Hólum og eru meðal þeirra
f.vrstu sem prentaðar voru á ís-
landi.
Nyegaard nefnir íslenzku stað-
ina eins og innfæddur og talar um
bækurnar eins og gamla kunn-
ingja. Hann heldur áfram: — Sag-
an að baki hverrar bókar er ekki
síður athyglisverð en bókin sjálf.
Til dæmis kom það á daginn, þeg-
ar ég fór að kanna hvaðan þessar
bækur væru komnar og hvernig
Auglýsing frá Damms
Antikvariat í Morgun-
blaðinu.
þær hefðu komizt til Frakklands,
að þa*r voru í eigu Napóleons
prins, sennilega um 1850, og Guð
má vita hvernig hann hefur kom-
izt yfir þær.
ALÞJOÐLEGT STARF
Starf Nyegaards og þeirra
þriggja sem með honum vinna í
„Damms Antikvariat" í Osló mið-
ast ekki eingöngu við Noreg eða
Norðurlönd. Starf þeirra er al-
þjóðlegt og í stað Dananna, sem
voru i heimsókn í bókahúsi verzl-
unarinnar við Ekebergsgötu
þennan dag. hefðu það allt eins
getað verið Japanar, Grænlend-
ingar, Bandaríkjamenn eða fólk
frá einhverju öðru heimshorni.
Á hverju ári ferðast Nyegaard
víða um heim til að næla sér í
nýjar bækur til sölu í verzlun
sinni. Eins og hann sagði sjálfur,
hefur hann vakandi auga með og
er i stöðugu sambandi við upp-
boðshaldara allt frá Tokyo til
Hollywood.
— Þetta er geysilega spennandi
starf, annars hefði ég ekki verið
við þetta í 37 ár samfleytt, segir
Nyegaard. — Eg var t.d. einu
sinni á uppboði í Hannover, og
þar var meðal annarra hluta boð-
in upp mjög merk ferðasaga skrif-
uð af Huyghen van Linschoten og
gefin út árið 1601. Hún var metin
Claes Nyegaard meö Guðbrandsbiblfu