Morgunblaðið - 20.06.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 20. .IUNT 1970
15
Jón Aðalsteinn Jónsson:
Hefð bókstafsins z
í íslenzku ritmáli
upp svonefnd hlaðamannastaf-
setninp. op þar var z enn haldið
í stofni, svo sem í orðum eins op
pæzla, beztur. leizt op lízt (af
líta). en aftur sleppt í endinp-
um sagnorða. Þessi regla pilti
svo í flestu rituðu máli þar til
árið 1918. er stjórnarstafsetn-
ingin var auglýst. Þá fyrst
hvarf z algerlega úr rituðu máli
samkvæmt auglýstum reglum.
Þeir voru samt fjolmargir. stm
rituðu hana áfram. enda olli
brevtingin 1918 miklum um-
ra'ðunt ekki síður en nú á dög-
unt. Kftir allmikil fundahöld
var enn brevtt til árið 1929
JON SIGURÐSSON
RASMUS KRISTJÁN RASK
AÐ UNDANFÖRNU hefur bók-
stafurinn z orðið fyrir slíku
gerningaveðri, að þess eru
engin dæmi áður í sögu
íslenzkrar stafsetningar. Ilef-
ur í þeim ákafa gætt þeirrar
minnimáttarkenndar, að hann
sé einungis „heldri manna
stafur“ og jafnvel hefur skotið
upp Danahatri, þar sem þvi er
haldið að almenningi, að hann
sé fundinn upp af dönskum
málfræðingi. Satt er það að
vísu, að sá heimsfrægi mál-
fræðingur, Rasmus Kristján
Rask, tók z upp i stafsetningu
þá, sem hann bjó islenzku rit-
máli um 1830, en hins vegar er
það staðreynd, að hún er
miklu eldri í íslenzku en frá
dögum Rasks. Fyrir þá, sem
hleypidómalaust og af skyn-
semi vilja líta á íslenzk staf-
HALLDÓR KR. FRIÐRIKS-
SON
setningarmál, eru eftirfarandi
linur um bókstafinn z ætlaðar
— nú að nýafstöðnu gerninga-
veðrinu.
Það er rétt, að reglur þær,
sem við höfum haft um rithátt z
frá árinu 1929, eru i veigamikl-
um atriðum samhljóða reglum
Rasks og þvi um 150 ára í is-
lenzku ritmáli. En hefðin nær
þó miklu lengra, því að z hefur
verið rituð i íslenzku allt frá 13.
öld, en þó án ákveðinna reglna,
þar til á 19. öld. Bendir Einar G.
Pétursson cand. mag. réttilega
á þetta í grein í Mbl. 29. f.m. Þá
má og nefna það, að í Nýja
testamenti Odds Gottskálksson-
ar frá 1540, elztu prentaðri bók
á íslenzku, er z allmikið notuð.
I stafsetningarreglum frá 18.
öld er z nefnd, og Eggert lög-
maður Ölafsson ritar z fyrir st í
ALEXANDER JOIIANNESS.
miðmynd sagna I Réttritabók
sinni frá um 1760. Var stafsetn-
ing hans notuð á ýmsum ritum í
lok 18. aldar, svo sem Ritum
Lærdómslistafélagsins.
Reglur Rasks um z eru þær,
að hann notar alls staðar z inni í
orðum til þess að tákna sam-
drátt úr ðs, ds og ts, þar sem
borið er fram s. Má þar taka
sem sýnishorn gæzka (úr gæð-
ska), hanzki (úr hand-ski) og
veizla (úr veit-sla).
Jón Sigurðsson tók stafsetn-
ingu Rasks upp í riti sínu,
Nýjum félagsritum, i flestum
greinum og þá z í stofni. Sama
gerði Halldór Kr. Friðriksson,
sem var íslenzkukennari við
Lærða skólann í rúma hálfa öld
og samdi stafsetningarreglur.
Var það skólastafsetningin svo-
kallaða. Árið 1898 var tekin
SIGURDUR NORDAL
FREYSTEINN (il NNARSSON
f.vrir tilstilli þáverandi
kennslumálaráðherra. Jónasar
Jónssonar, og z þá tekin up|) að
nýju. Voru hinar nýjti reglur í
flestum greinunt i samrtemi við
tillögur hinna revndustu sköla-
nianna á þeim timum. Nægir
þar að nefna menn eins og
Alexander Jóhannesson og Sig-
urð Nordal. kennara við
Háskóla Islands. Jakob .)
Smára. islenzkukennara við
Menntaskölann i Reykjavik. og
Freystein Gunnarsson. sem
lengi var skólastjóri Kennara-
skóla Islands.
Af þvi. sem hér hefur verið
rakið að frarnan. tná öllum vera
Ijöst. að bókstafurinn z hefur
verið notaður i almennum is-
lenzkum ritreglum nærteiit
allan þann tíma, sem nokkurn
veginn fastmótaðar reglur hafa
gilt, og það segir sina sögu.
Teg. 3614. Brúnir leður, fóðraðir
og með hrágúmmísóla. Stærðir
nr. 3—7 í Vi nr. Verð kr.
5.575.
Teg. 5615. Fáanlegir i brúnu
leðri með leðursóla Stærðir: nr
3—7’/z í ’/2 nr. Verð kr. 5.575.
Teg. 5614. Brúnt leður og með
hrágúmmísóla. Stærðir: nr.
2 Vz — 7 í ’/z nr. Verð kr. 4.880.
Teg. 1623. Brúnt leður og með
hrágúmmísólum. Stærðir nr.
35—42 Verð kr. 3.980.
Teg. 1418. Hvitt leður og slit
sterkum sólum. Stærðir: nr
2'/2 — 7 i ’/z nr. Verð kr. 3.485.
Teg. 176. Svart rúskinn
Stærðir nr. 36—41. Verð kr
2.885
Póstsendum
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
sími 14181.
Teg. 400. Rautt leður og með
hrágúmmísólum. Stærðir
36—41 Verð kr. 2.950.
Teg. 500. Brúnt leður og með
hrágúmmísólum